Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 23
FRJÁL5 VERZLUN
21
Starfsfólk fólagsins að Laugavegi 176.
Starfsfólkið.
Fá fyrirtæki hafa jafn fjöl-
mennan hóp viðskiptavina eins
og tryggingafélög, sérstaklega
þau, sem taka að sér bæði bruna-
og líftryggingar auk annarra
tryggingagreina. Fyrir því er
aldrei kostur á að ná persónulegu
sambandi nema við tiltölulega fáa
af þeim mikla hópi viðskiptavina,
nema í gegnum innheimtu ið-
gjalda og með dreifibréfum. Má
geta þess, að á sl. ári sendi félagið
frá sér um 78.000 kvittanir og
skírteini.
Félagið hefur á öllum tímum
haft ágætu starfsfólki á að skipa
og hefur fjöldi starfsmanna starl'-
að þar milli 30 og 40 ár, en fastir
starfsmenn eru nú 73.
Rétt þykir að nefna nöfn
nokkurra þeirra og þá um leið
þeirra, sem jafnframt hafa nán-
ust tengsl og samskipti við við-
skiptamenn félagsins. Hafa marg-
ir þeirra starfað við sömu trygg-
ingadeild frá því viðkomandi
tryggingagrein var tekin upp.
Þessi nöfn þekkja viðskipta-
menn félagsins vegna góðra og
ánægjulegra samskipta, svo sem
Axel J. Kaaber, deildarstjóra í
Sjódeiid og skrifstofustjóra um
11 ára skeið, deildarstjóra og yfir-
umboðsmann Líftryggingardeild-
ar, þá Egil Daníelsson og Matthías
Matthíasson, í Bifreiðadeild þá
Runólf Þorgeirsson, deildarstjóra,
Ólaf Bergsson og Stefán Stefáns-
son, í Brunadeild þá Braga Hlíð-
berg, deildarstjóra, og Sveinbjörn
Egilson, í Sjódeild ennfremur þá
Hannes Þ. Sigurðsson og Arnljót
Björnss., áður lengst við ábyrgð-
artryggingar, Önnu Thorlacius,
aðalgjaldkera, Loft Helgason,
aðalbókara, Guðna Þ. Guðmunds-
son og Vilhelm Kristinsson, svo að
nokkrir séu nefndir.
Félagið hefur ávallt leitast við
að gjöra viðskiptavinum sínum til
hæfis og reynt að ganga til móts
við þá, ef nokkur kostur hefur
verið.
Á þessum merku tímamótum
félagsins þakkar það og félags-
stjórn öllum viðskiptavinum, jafnt
þeim smæstu sem stærstu, fyrir
traust þeirra á félaginu.
Jafnframt þakkar félagið öllum
umboðsmönnum sínum víðsvegar
um landið, svo og starfsfólki og
öðrum þeim, er stutt hafa að vexti
þess og viðgangi.