Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 38

Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 38
36 FRJALS VERZLUNi EGILL DANÍELSSON: LÍFTRYGGINGAR MeS tilkomu tímabundinna líftrygginga og hóplíftrygginga, hafa framtiðarmöguleikar fyrir líftryggingar aukizt. Þegar Líftryggingardeild Sjóvá- tryggingarfélags íslands h.f., var stofnuð, hinn 1. desember 1934, var ekkert íslenzkt líftryggingar- félag starfandi hér á landi. Aftur á móti voru hér á landi starfandi umboðsmenn útlendra líftrygg- ingarfélaga, sem selt höfðu líf- tryggingar um 30—40 ára skeið og hafði þeim orðið töluvert ágengt. Má þar fyrst og fremst nefna líftryggingarfél. „Skandia", .,Svea“ og „Thule“, sem öll voru sænsk. Þessi félög eru ákaf- lega öflug og hafa starfað í Sví- þjóð um fjölda ára. „Thule“ sem er þeirra öflugast, er stærsta lif- tryggingarfélagið á Norðurlönd- um, og stærst þeirra, sem starfað hafa á íslandi. „Thule“, var harð- asti keppinautur Líftryggingar- deildar, þegar hún byrjaði. Svo fór þó, að „Thule“ hætti líftrygg- ingarstarfsemi sinni hér og keypti Sjóvá líftryggingarstofninn ís- lenzka, þann 1. janúar 1937, en hann var þá að upphæð ca. 17 millj. króna (líftryggingarupp- hæð). Hætti þá „Thule“ líftrygg- ingarstarfsemi sinni hér á landi. Síðar kaupir Sjóvá svo líftrygg- ingarstofn „Svea“, sem einnig hættir sinni starfsemi hér, frá 1. janúar 1938. Frá árinu 1938 tekur Sjóvá svo að sér að annast líf- tryggingar „Skandia“, sem þá hættir hér. Þann 1. janúar 1948 kaupir Sjóvá líftryggingarstofn líftrygg- ingarfélagsins „Danmark“, Kaup- mannahöfn, sem eins og „Thule“ var sterkur keppinautur Líftrygg- ingardeildarinnar. Stofninn var þá ca. 6 millj. króna. Einnig „Danmark“ hætti allri sinni hí- tryggingarstarfsemi hér á landi frá þeim tíma, sem Sjóvá yfirtek- ur tryggingar þess. Svo kaupir Sjóvá líftryggingarstofn líftrygg- ingarfélagsins „Tryg“ í Kaup- mannahöfn. Möguleikar líftryggingarstarf- semi fyrrgreindra líftryggingarfé- laga minnka það mikið hér á landi, þegar Líftryggingardeildin byrjar sína starfsemi, að þau eru Egill Daníelsson: SJÓVÁ fyrsta íslenzka Iíftrygg- ingafélagið. tilneydd að hætta, starfsemin svar- ar ekki kostnaði, enda jókst sala líftrygginga Sjóvá, ár frá ári, alit fram til seinni heimsstyrjaldar- innar, þannig að árið 1935 er tryggt fyrir rúmar 3 millj. króna, en á árinu 1939 tryggt fyrir rúmlega 9 millj. króna. Síðan fara nýtryggingar minnkandi. Orsök þess er sú, að þá fer dýrtíð vax- andi og íslenzka krónan að íalla í verði. Fólk fór að trúa því, að krónan myndi halda áfram að falla, sem og reyndin varð, og minnkuðu því nýtryggingar mjög: á þessum árum og síðar. Þessu til sönnunar má geta þess, að eftir verkfallið í desember 1955, sem lauk með því að kauphækk- anir urðu engar, eða því sem næst, jukust nýtryggingar 1956 töluvert, en er á daginn kom, að verðhækk- anir héldu áfram, minnkuðu ný- tryggingar enn á ný. Frá 1. janúar 1959 tók Sjóvá að sér líftryggingar fyrir Lífeyris- og dánarbótasjóð Félags ísl. botn- vörpuskipaeigenda og hefir hann starfað æ síðan. Tryggingum þess- um er þannig háttað, að skipstjór- ar og stýrimenn á botnvörpung- um hafa lagt allt að 25 þús. krón- ur á ári til líftrygginga, sem er þeim skilyrðum bundin, að líf- tryggingarupphæðin, sem þeir fá hverju sinni, útborgast að 1/10 hluta á ári, sem lífeyrir. Þessir að- ilar hafa notið þeirra réttinda, hjá Líftryggingardeildinni, að þeii hafa fengið lán, ef þeir óskuðu þess, allt að 80% af árlegri inn- borgun. Þessi lán hafa þeir notað til íbúðakaupa eða nýbygginga. Lán þessi nema ca. 100—300 þús. kr. hjá sumum þessara aðila. Tryggingar þessar eru þannig upp byggðar, að þær greiðast út sem lífeyrir, við 55, 60, 65 eða 70 ára aldur, og þá með 1/10 hluta af tryggingarupphæðinni á ári. Ef tryggður deyr fyrir þennan aldur, byrja greiðslur til ekkju eða barna strax, þannig er dánaráhætta inni- falin í þessum tryggingum. Þeir skipstjórar og stýrimenn, sem eru í þessum lífeyrissjóði, hafa lýst ánægju sinni yfir þessari til- högun. Þá hefir Líftryggingardeildin einnig annazt aðrar lífeyris- og dánarbótatryggingar, svo sem fyr- ir Slippfélagið í Rvk, hlutafé-

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.