Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 38
AUKA-
FÉLAGAR FÍT
teljast þeir félagar, sem lokið
hafa námi frá viðurkenndum
skólum í auglýsingateikningu
eða myndskreytingu, en hafa
ekki aðaltekjur sínar af aug-
lýsingateikningum, eða hafa
hætt störfum í þeirri grein.
ÁGÚSTA P. SNÆLAND
Fyrsti lærði auglýsingateikn-
arinn hérlendis. Frú Ágústa
hefur unnið af og til við margs
konar teiknistörf. Hún hefur
nýverið unnið tvær samkeppn-
ir um teikningu merkis, m. a.
hlaut hún fyrstu verðlaun í
samkeppni um merki fyrir
Listahátíð í Reykjavík.
GUÐBERGUR AUÐUNSSON
Guðbergur hefur unnið við
auglýsingateiknun, bæði sjálf-
stætt og fyrir auglýsingastofur,
erlendis og hérlendis. Gerði
merki ferðaskrifstofunnar
Sunnu, auglýsingar fyrir Kúba
sjónvörp, o. fl. Hann starfaði
síðast hjá auglýsingastofunni
Argusi, en er nú kennari við
Leirárskóla.
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON
Skólastjóri Myndlista- og
handíðaskólans. Kunnur list-
málari. Hefur átt mikinn þátt
í bættu útliti íslenzkra bóka,
m. a. fyrir bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs, og telst einn af
brautryðjendunum í þeirri
grein. Teiknaði auglýsingar áð-
ur fyrr, m. a. fyrir Almennar
tryggingar h.f. og Loftleiðir.
JÖRUNDURPÁLSSON
Starfar nú sem arkitekt.
Fjölhæfur teiknari. Af teikn-
ingum hans eru vafalaust kunn-
astar myndir hans af íslenzkum
fiskum í Náttúrusafni Ríkisút-
gáfu námsbóka, og myndir á
litprentuðu fiskakorti, sem
þykja afbragðs vel gerðar.
SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR
Hefur jöfnum höndum teikn-
að og mótað í leir. Hún hefur
myndskreytt mikið af bókum,
m. a. bækur móður sinnar,
Ragnheiðar Jónsdóttur, rithöf-
undar. Sigrún og maður henn-
ar, Gestur Þorgrímsson, hafa
nýverið endurvakið fyrirtækið
Laugarnesleir.
SNORRI SVEINN FRIÐ-
RIKSSON
Starfaði fyrst sem umbúða-
teiknari hjá Kassagerð Reykja-
víkur, og í mörg ár sem útlits-
teiknari Vikunnar. Starfar nú
hjá sjónvarpinu sem alhliða
teiknari og við leikmyndagerð.
Hann er einnig kunnur. listmál-
ari.
STEFÁN JÓNSSON
Gerði mikið af auglýsingum
og umbúðateikningum áður
fyrr, en snéri sér síðan að arki-
tektúrnámi, og er nú meðal
þekktari arkitekta. Kunnustu
teikningar hans eru vafalaust
teiknun íslenzku myntarinnar,
svo og frímerkjateikningar.
AUGLYSINGA-
ÞJÖNUSTA
Hérlendis eru nú starfandi
fyrirtæki, sem sjá um auglýs-
ingaþjónustu og aðra skylda
starfsemi fyrir fasta viðskipta-
vini. Nokkur þessara fyrirtækja
hafa á að skipa sérmenntuðu
starfsliði í auglýsingastarfi, og
eru starfsmenn á teiknistofum
þeirra félagar í FÍT, en þessi
fyrirtæki eru:
Auglýsingastofan Argus sf.
veitir viðskiptavinum sinum al-
hliða auglýsingaþjónustu. Fyr-
irtækið gerir auglýsingar fyrir
sjónvarp, útvarp, blöð og tíma-
rit, auk útlitsteiknunar og upp-
setningu bóka, bæklinga og
tímarita. Argus sér einnig um
hvers konar teiknivinnu, svo
sem gerð hljómplötuumbúða,
félags- og firmamerkja, bréfs-
efna, auglýsingaspjalda og þess
háttar. Einnig eru gerðar sund-
urliðaðar auglýsingaáætlanir og
veittar ráðleggingar í sambandi
við ráðstöfun auglýsingafjár.
Argus starfar töluvert í sam-
vinnu við erlend auglýsingafyr-
irtæki vegna auglýsinga er-
lendra aðila hérlendis. Þá sér
fyrirtækið um texta og hand-
ritavinnu fyrir auglýsingar
bæði á íslenzku og erlendum
málum.
Helztu viðskiptavinir Argus
eru Eimskip, Nathan & Olsen,
Hreinn hf., Landsbankinn, Ið-
unn bókaútgáfa, KEA, Happ-
drætti Háskólans og Matvör-
ur hf.
í sumar störfuðu átta manns
36