Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 24

Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 24
og það vinnur síðan að nán- ari útfærslu þessarar átælun- ar og framkvæmir hana. I flestum fyrirtækjum eru samt einhverjir aðilar, sem eru á- byrgir fyrir auglýsingum og sjá um samband við auglýsinga- fyrirtækið, miðla þeim nýjum upplýsingum um framleiðslu og sölu, nýjungar sem verið er að undirbúa, gagnrýna það sem aflaga fer, og yfirleitt gæta hagsmuna framleiðslufyrirtæk- isins gagnvart auglýsingafyrir- tækinu. Auglýsingafyrirtækin taka við allri þjónustu á þessu sviði. Þau sjá um alla prentun, dreifingu á auglýsingum, gerð auglýsinga og taka við öllum reikningum og annast uppgjör, þannig að framleiðslufyrirtæk- ið er laust við allt arg, sem því fylgir. Uppgjör á milli fyrir- tækjanna er síðan samnings- bundið. Auglýsingafyrirtæki hafa oftast einhvern aðila inn- an fyrirtækisins, sem fylgist með útfærslu á auglýsinga- plönum viðkomandi fyrirtækis, „Kontaktmann“. Ef um stór plön er að ræða, er honum ær- ið starf að huga að auglýsinga- málum síns fyrirtækis. Oft er fjöldi starfsmanna auglýsinga- fyrirtækisins, sem aðeins sinna einu fyrirtæki. í flestum lönd- um Evrópu og Ameríku eru starfandi stór auglýsingafyrir- tæki, sem hvert um sig hafa í sinni þjónustu fjölda sérhæfðra manna, t. d. hefur Unilever- auglýsingafyrirtækið LINTAS í Hamborg milli fjögur og fimm hundruð manns í þjónustu sinni. Auglýsingafyrirtæki þessi tengja framleiðandann og kaupandann, þau hafa sína eigin markaðskönnun, þar sem óskir neytandans eru kannaðar og þær látnar framleiðendum í té. Þau segja til um það útlit á auglýsingum og umbúðum, sem markaðinum hæfir, og vinna síðan eftir þeim niður- stöðum. Einn mikilsverður þáttur í starfi svona fyrirtækja er að rannsaka og bera saman söluaðferðir hinna ýmsu fyrir- tækja, sem keppa um markað- inn. Yfirleitt er um fjölda fyr- irtækja að ræða í hverri vöru- tegund, jafnvel tugi, svo mik- ilvægt er að vita, hvað hefur selt vöruna, og er þar margt, sem máli skiptir. Tölur um fjölda framleiðslumerkja í V- Þýzkalandi fyrir nokkrum ár- um sýna m. a. þessa skiptingu: Sjónvarpstegundir 64 Hjólbarðar 24 ísskápar 37 Smjör 90 Hæsta prósentutala eins merkis af heildarsölu vöruteg- undar var í sölu hjólbarða, söluhæsta fyrirtækið er með 35.4% af sölu, annað 27,4% og þriðja 9%, svo ekki verður mikið til skiptanna fyrir hin fyrirtækin 21 að tölu, eða tæp 30%. Sjá má af þessu, að marg- ir eru um kálið, og nauðsyn- legt er hverju því fyrirtæki. sem auka vill hlutdeild sína, að halda vel á sínu. Hlutverk auglýsingafyrirtækis er ekki að sanna hvaða vörutegund sé bezt, heldur að halda fram beztu eiginleikum þeirrar vöru- tegundar, sem því er falið að auglýsa. En framleiðandinn fær samt allar niðurstöður, sem verða af almennum markaðs- könnunum, og eiga þær að auð- velda honum að framleiða betri vöru. í stórum auglýsingafyrir- tækjum er teiknarinn í flest- um tilfellum orðinn hjól í stórri vél, í stað þess að hér á landi er það verk teiknarans og fram- leiðandans í sameiningu að leysa öll vandamál auglýsing- anna. Til eru dæmi þess, að teiknarar vinni að teikningum hjá slíkum fyrirtækjum árum saman án þess að notaður sé nokkur hlutur úr vinnu þeirra, og án þess að fundið sé að kunnáttu þeirra. Út úr svona samvinnu, eins og tíðkast hjá þessum fyrirtækjum, geta kom- ið góðir hlutir frá listrænu sjónarmiði, en aðallega þó hlut- ir, sem seljast og falla í ,,smekk“ neytanda. Mjög marg- ir teiknarar eru þeirra skoð- unar, að niðurstöður markaðs- og auglýsingakannana verki stöðvandi á frumlegar hug- myndir teiknaranna og að nið- urstaðan verði ópersónuleg fjölda-auglýsingagerð. Mörg fyrirtæki hafa því reynt nú á síðustu árum að samræma þessi sjónarmið. Listamönnum er gefið frelsi innan viss ramma, og hefur það borið góðan árangur. Svo sem ég hef áður drepið á, hefur íslenzkum kaupsýslu- mönnum yfirleitt ekki verið ljóst gildi þess að ákveða prósentuupphæð til auglýsinga fyrirfram og að gera áætlun um auglýsingar og fá síðan til sérhæfðan, ábyrgan aðila að sjá um framkvæmd þeirrar á- ætlunar, bæði innan fyrirtæk- isins og utan. Á síðustu árum hafa verið gerðar tilraunir, og tekist að nokkru til að stofna hér auglýsingafyrirtæki, sem gerðu meira en aðeins að teikna auglýsingar, sem sæju um undirbúning og útfærslu auglýsingaáætlana. Rekstrar- grundvöllur þessara fyrir- tækja og ýmsar forsendur starfseminnar eru þó enn ekki til staðar. Erlendis hafa þessi fyritæki, sem önnur heildsölu- fyrirtæki, samninga við alla, sem þau hafa samskipti við og njóta þar ein afsláttar af verði oftast 5-15% eftir hvers konar viðskipti er um að ræða. Aðrir aðilar en auglýsingafyrirtæki njóta engra sérkjara.. Á þessu byggja fyrirtækin tekjur sín- 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.