Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 22
Myndirnar á opnunni eru aðeins
eitt dæmi og sýna hvernig „The
Royal Bank of Scotland" hefur
nýtt merki og leturgerð á smekk-
legan hátt til þess að skapa sam-
ræmt „andlit" fyrirtækisins.
fgfe:
m Íg ]
B
H E |
bw| ■
"«•4 ’i
I h ;
: %Sg ':g j
engan markaðssálfræðing, enga
menn, sem kunna að fram-
kvæma markaðskannanir, enga
viðskiptafræðinga, sem sér-
menntaðir eru í rekstri aug-
lýsingafyrirtækja; og svo mætti
lengur telja. Teiknarinn hefur
orðið algildur sérfræðingur á
þessu sviði. Hann verður að
leysa úr öllum þeim vandamál-
um, er að auglýsingum lúta.
Þessi alhæfing er óhæf til
lengdar. Teiknarinn á erfitt
með að einbeita sér að sínu
sérsviði, teikningunni, vegna
allskonar hliðarstarfa, sem
hann verður að taka að sér,
vegna vöntunar á sérhæfðum
starfskröftum. Það vantar
menn til textavinnu, til að gera
ýmsa samninga, viðskiptalegs
eðlis og fjárhagsáætlanir, menn
til gagnasöfnunar og skipulagn-
ingar á dreifingu auglýsinga,
svo að eitthvað sé nefnt. Mögu-
leikarnir á starfi sármenntaðs
fólks á öllum þessum sviðum
eru þó til staðar. Verkefni
vantar ekki.
Stærsta verkefnið, sem bíð-
ur á þessu sviði, er að kveða
niður að fullu þá bábiiju, sem
riðið hefur hér húsum, að aug-
lýsing sé neyðarúrræði þess.
sem ekki selur nóg, eða styrkt-
arstarfsemi við blöð og tíma-
rit. f báðum þessum tilvikum er
það oftar að kastað er til þess
höndum, sem birt er. Það er
rótgróinn misskilningur að
undirbúningur að birtingu aug-
lýsingar, þ. e. hugmynd, til-
högun, teikning, Ijósmynd,
samning texta, setning og
myndamót sé óþarfur, og ekki
hugsunarvirði og að auki sé
þetta dýr stofnkostnaður.
Góð auglýsing er góð fjár-
festing. Þetta er viðurkennd
staðreynd hvarvetna í við-
skiptaheiminum í kringum
okkur, bæði í austri og vestri,
og þessa staðreynd verða ís-
lendingar að tileinka sér, sem
c.ðrar þjóðir, hvort sem þeim
líkar betur eða verr. Sam-
keppnin er vaxandi og mun
vaxa gífurlega m. a. við stækk-
un markaðssvæða. Þau fyrir-
tæki, sem viðurkenna grund-
vallarstaðreyndir og vilja ná
verulegum árangri af starfi
sínu, verða þegar í upphafi að
vanda allt sitt verk. Stórt sem
smátt, sem frá fyrirtækinu fer,
á að bera þess merki að hugsað
sé um útlit og frágang. Merki
og pappírar eru andlit þess og
það fyrsta, sem hugsa verður
fyrir. Útlit bæklinga og aug-
lýsinga séu samræmd. Hversu
oft gætir hér ekki ósamræmis
og skilningsleysis? Mjög mörg
gömul fyrirtæki hafa notið þess
fram á þennan dag, að um litla
20