Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 7
AUGLÝSINGA SPJALL Frjáls verzlun bauð nokkrum aðiljum, sem unnið hafa við auglýsingagerð eða hafa sér- þekkingu á þeim málum, til umræðufundar. Á fundinum kom margt athyglisvert fram, umræður voru opinskáar og fjörlegar. Þeir, sem tóku þátt í umræðunum voru: Kristín Þorkelsdóttir, auglýsingateikn- ari; Árni Garðar, auglýsinga- stjóri Morgunblaðsins; Ólafur Stephensen, sem nýverið stofn- aði markaðskynningarfyrirtæk- ið Gamma, sem starfar í sam- vinnu við auglýsingastofuna Argus; Guðmundur Ólafsson, verzlunarstjóri hjá Herrahús- inu; og af hálfu Frjálsrar verzl- unar tóku þátt í umræðunum Jóhann Briem, ritstjóri Frjálsr- ar verzlunar og Sigurjón Jó- hannsson, ritstjórnarfulltrúi Alþýðublaðsins. FV: Við bjóðum ykkur velkom- in til þessa umræðufundar. Það er hugmyndin að ræða hér vítt og breitt um auglýsingar, auglýsingagerð og ekki sízt um verksvið auglýsingastofa og tengsl þeirra við kaupsýslu- stéttina. Þar sem Guðmundur er eini fulltrúi kaupsýslustétt- arinnar, er rétt að byrja á því að spyrja hann, hvernig Herra- húsið hagi sínum auglýsingum? Guðmundur: Við höfum senni- lega auglýst mikið í saman- burði við stærð og samanborið við keppinauta okkar, en við höfum alls ekki víðtæka reynslu. á þessu sviði. Við byrj- uðum á því að eyða talsverðu fé í umbúðir, firmamerki og önnur formsatriði. Við lögðum strax mikla áherzlu á glugga- útstillingar og hófum fljótt birtingu blaðaauglýsinga af til- tölulega miklum krafti. Við vorum meðal þeirra allra fyrstu, sem notfærðu sér sjón- varpið. FV: Gerðuð þið sérstakar aug- lýsingaáætlanir í upphafi? Guðmundur: Ég held, að það sé ákaflega erfitt fyrir svona lítil fyrirtæki að verja t. d. á- kveðinni prósentu af umsetn- ingu í auglýsingar; ég held, að slíkt sé ekki hægt nema hjá stærri fyrirtækjum, sem hafa mjög „stabílan“ rekstur og vita nokkurn veginn fyrirfram, hvað markaðurinn fyrir vör- una er stór. Við eigum erfitt með að finna út, hvað við selj- um mikið hverju sinni. FV: Er það svo enn, eftir að hafa rekið verzlunina þetta lengi? Guðmundur: Ja, við höfum auglýst fyrir um það bil 1,5% af umsetningu, og það hafa ver- ið nokkuð skiptar skoðanir um, hvort það er of mikið eða of lítið. En ég vil taka skýrt fram, að þetta fer mikið eftir því, hvernig auglýst er. Það er hægt að eyða mjög miklum peningum og hafa lítið upp úr því, ef ekki er farið rétt að hlutunum. Mér finnst alltof á- berandi hér, hvað fyrirtæki eyða gífurlegum fjármunum í alls kyns gjafa- og styrktar- starfsemi. Að vísu eru ekki allar auglýsingar í íþrótta- bæklingum, afmælisritum og þess háttar gagnslausar, en alltaf miklu fé er varið til einskis á þessum vettvangi. FV: Svo virðist sem þið hafið auglýst eftir fyrirframgerðri áætlun. ... 1 Guðmundur: Síðastliðið ár komum við saman á þriggja 5 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.