Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Síða 66

Frjáls verslun - 01.10.1969, Síða 66
ROTA ÍHEIDír , <»ir f(i 99 MARGRA ÁRA REYNZLA TRYGGIR GÆ-ÐIN 9 9 FELAGSFANAR FELAGSMERKI LIMMERKI A RUtJUR PRENTUMA HVAÐ SEM ER FJOLPRENT H.F INGOLFSSTRÆTI 9 SÍM119909 BOX1231 ur nú að gerð ljósaskilta fyrir sjónvarpið, en það verður sett á þak byggingarinnar við Laugaveg og sýnir merki sjón- varpsins. Auk Ingibergs er Steingrímur Steingrímsson eig- andi að fyrirtækinu. Hinrik Árnason er einkum þekktur sem útstillingamaður. Hann er af finnsku bergi brot- inn, útskrifaðist sem auglýs- ingafræðingur (reklamekonsul- ent) frá Helsinki 1949, en kom hingað til lands 1953, og hefur dvalið hér síðan. Hinrik rekur fyrirtækið De- kor; segist lítið auglýsa sig, enda nóg að gera og rétt að láta verkin tala. Talið berst að gluggaútstill- ingum. Góður gluggi selur bet- ur en fallegar stúlkur bak við afgreiðsluborðið, segir Hinrik. Og það þýðir ekkert að biðja um góða gluggaútstillingu fyr- ir 1000 krónur í dag. Hann hef- ur stillt út í glugganum hjá Guðlaugi Magnússyni í ein sjö ár, skiptir um ca. mánaðarlega og leggur að sjálfsögðu mesta vinnu í jólagluggaskreyting- una. Það er erfitt að gera gluggaútstillingar, þar sem var- an er alltaf sú sama, en það hefur tekizt furðu vel til þessa. Hinrik segir, að hann hafi gert tveggja ára hlé á gluggaskreyt- ingum fyrir þessa verzlun og það hafi verið talsverður mun- ur á sölunni á þeim tíma, svo að fyrirtækið hikar ekki við að láta faglærðan mann sjá um þennan lið í sölu fyrirtækisins. Hinrik er, eins og aðrir, sem hafa aflað sér einhverrar þekk- ingar á sviði sölumennsku, hissa á hvað margir kaupmenn og heildsalar líta á auglýsingar eins og hálfgerða plágu og álít- ur, að það hljóti að vanta mik- ið á fræðslu um þessi mál. Hann tók sem dæmi verzlun,

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.