Frjáls verslun - 01.06.1970, Side 62
FRJALS VERZLUN
60
þessa ráðstöfun í því skyni að
útrýma fátækt og atvinnuleysi
í vanþróaðri löndum EBE og þá
fyrst og fremst Ítalíu. í háþró-
aðri löndum EBE eins og Vest-
ur-Þýzkalandi ríkir mikiil
skortur á vinnuafli og er talið,
að svo muni verða áfram. Stór-
fyrirtækin eru því byrjuð að
taka mikið tillit til þess, er þau
stækka og reisa nýjar verk-
smiðjur o. s. frv., hvort vinnu-
afl verði fyrir hendi í viðun-
andi mæli til starfrækslu at-
vinnutækjanna. Það er því talið,
að þau muni, ef allt gengur eins
og vonast er til, leggja í um-
fangsmikla fjárfestingu á Ítalíu
og koma upp stórum verk-
smiðjum þar, sem myndu eiga
stórfelldan þátt í því að út-
rýma atvinnuleysi. Þá myndi
aukin kaupgeta með vaxandi
atvinnu á þessu svæði krefjast
enn aukinnar framleiðslu, sem
svo aftur myndi kalla á aukna
fjárfestingu.
Pólitískir erfiðleikar. Miklu
erfiðara er hins vegar að gera
sér fullkomna grein fyrir hugs-
anlegum pólitískum erfiðleik-
um vegna gjaldmiðilsbreyting-
arinnar. Aðildarríkin láta sam-
eiginlega af hendi þýðingarmik-
inn þátt af sjálfræði sínu, sem
er sjálfstæð yfirstjórn yfir eig-
in gjaldmiðli. Þá er það jafn-
framt ljóst, að ýmsar pólitísk-
ar forsendur verða að vera fyr-
ir hendi, eigi að verða unnt að
koma sameiginlegum gjald-
miðli á. Kauphækkanir og verð-
lag verða að haldast í hendur
hvort fyrir sig innan alls banda-
iagsins. Þetta krefst miklu
meira stjórnmálajafnvægis í
sumum löndum EBE, en í þeim
hefur ríkt til þessa. Þannig
myndi það ekki þýða að fara í
verkfall á Ítalíu í því skyni að
knýja fram óraunhæfar kaup-
hækkanir, eins og þar hefur
svo mjög tíðkazt að undan-
förnu með þeim afleiðingum að
kauphækkunum hefur verið
jafnóðum verið velt út í verð-
lagið, sem hefur hækkað að
sama skapi og þannig gert að
engu kauphækkanirnar.
Reyndin yrði sú, að það væri
ekki framar hægt, að láta launa-
hækkanirnar renna út í verð-
lagið. EBE væri orðið að meira
eða minna leyti að einu verð-
lagssvæði eins og það væri allt
eitt land og það væri augljóst,
að það gæti ekki viðgengist, að
á Ítalíu gilti allt annað verð-
lag en á öðrum svæðum innan
EBE. Það væri svipað því og
að allt annað verðlag, laun o.
fl. væri á Akureyri en í Reykja-
vík. Þarna er fyrir hendi mik-
ill pólitískur vandi. Það er
grundvallar forsenda fyrir sam-
eiginlegum gjaldmiðli innan
EBE, að í þessu tilliti verði jafn-
vægi milli aðildarríkjanna.
Þetta jafnvægi er ekki fyrir
hendi nú og vandinn er, hvern-
ig unnt verður að koma því á.
Þessi vandi er óleystur og það
á langt í land, unz svo verður.
GUMMIBATAÞJONIJSTAN
Grandagarði — Reykjavík — P.O. Box 1042 — Sími 14010.
SKOÐUN OG VIÐGERÐIR Á GÚMMÍBJÖRGUNARBÁTUM ÁL LT ÁRIÐ.
VIÐGERÐIR Á SPORTGÚMMÍBÁTUM.
Úrval af Kokos og nylondreglum. — Tökum mál.