Frjáls verslun - 01.08.1972, Síða 17
Útlönd
Bandaríkin:
McGovern og efnahagsmálin
Hve róftækur er hinn nýi forsetaframbjóðandi demókrata?
Vestan hafs er það nú eitt
helzta umhugsunarefni áhuga-
manna um stjórnmál hversu
róttækur George McGovern,
forsetaefni demókrata, sé í
raun og veru í efnahagsstefnu
sinni.
Kaupsýslumenn hafa vissa
tilhneigingu til að kalla Mc-
Govern öllum illum nöfnum og
segja hann stefna að því að
kollvarpa efnahagskerfi Banda-
ríkjanna. Stuðningsmenn Mc-
Governs benda hins vegar á
að stefna hans sé í fullu sam-
ræmi við bandaríska hefð, þar
eð hún hafi að markmiði að
hressa upp á hið frjálsa fram-
tak, vernda heilbrigða sam-
keppni, tryggja fulla atvinnu,
útrýma skattamisrétti og brúa
bilið milli hinna ríku og fá-
tæku í Bandaríkjunum. Fimmt-
ungur hinna auðugustu fjöl-
skyldna í landinu hafa 40%
allra tekna en 20% hinna fá-
tækustu fjölskyldna fá 5%
teknanna.
Tillögur McGoverns eru í
stuttu máli þessar:
& Auðskipting. Þessi þáttur í
stefnu hans hefur komið sem
köld vatnsgusa framan í helztu
fjámálamenn í Wall Street.
Samkvæt henni á að inn-
heimta hærri skatta af fyrir-
tækjum og auðmönnum og
miðla með eins konar öfug-
um tekjuskatti til hinna fá-
tæku. Segist McGovern þó ætla
að viðhalda núverandi 48%
skatti á rekstrarafgang fyrir-
tækja en nema úr gildi ýmsar
undanþágur eins og í sambandi
við hröðun afskrifta, fjárfest-
ingarlán og frestun á skatti af
útf lutningstek j um.
• Aðgerðir til að komast fyr-
meinsemdir í skattakerfinu.
Engum sæmilega efnuðum
manni á að líðast það lengur
að borga litla eða enga skatta.
McGovern vill koma á iág-
markstekjuskatti, án þess að
tillit sé tekið til raunverulegra
tekjustofna. Hann hefur nefnt
52,2% lágmarksskatt á hina
efnameiri meðal skattgreið-
enda.
í upphafi lagði McGovern til,
að erfðarskattur yrði 100% á
eignir, sem metnar væru á
meira en 500.000 dali. En þeg-
ar mótmæli komu fram, ekki
aðeins frá efnafólkinu, heldur
líka meðaltekjumönnum, lækk-
aði hann hlutfallstöluna niður
í 77%. Við það ætlar hann að
standa.
HVER BANDARÍKJAMAÐUR
Á AÐ FÁ 1000 DALI Á ÁRI.
Með þessum aðgerðum í
skattamálunum þykist McGov-
ern ætla að ná inn aukalega
28 milljörðum dala, sem hann
segir opinber yfirvöld hafa að
ástæðulausu farið á mis við í
skattaheimtunni, 17 milljarða í
sköttum af fyrirtækjum og 11
milljarða til viðbótar af eign-
um og einstaklingum.
Til viðbótar þessu ætlar for-
setaefni demókrata að lappa
upp á félagsmálaaðstoð hins
opinbera, sem hann segir afar
þunga í vöfum. Ætlar hann að
úthluta öllum íbúum Banda-
ríkjanna, konum, körlum og
börnum, 1000 dölum á ári úr
ríkissjóði sambandsstjórnarinn-
ar í Washington. Með þessu
móti á að tryggja fátækum
fjölskyldum lágmarkslífsviður-
væri og myndi fjögurra manna
fjölskylda, sem engar tekjur
hefði, fá þannig 4000 dala
framlag, en fjölskyldur með
tekjur fyrir ofan ákveðið mark,
yrðu að greiða ríkisaðstoðina
til baka í sköttum.
RETKNINGUR EKKI
STERKA HLIÐIN.
í fyrstu voru áform McGov-
erns aðhlátursefni og einskis
virt. En hann vann hvert kjör-
dæmið af öðru og kom fram
sem sterki aðilinn. Þá fóru
kaupsýslumenn að gefa hug-
myndum hans alvarlegan
gaum, og ekki er laust við að
hrollur hafi farið um suma.
George McGovern, forsetaefni demókrata, í kosningaham.
FV 8 1972
17