Frjáls verslun - 01.08.1972, Side 65
AUGLÝSINGAR
auglVsingar og sölustarf
Venjulegar auglýsingaher-
ferðir eru hluti sölustarfs. Þess
vegna þurfa fyrirtæki að sam-
ræma vel alla þætti sölustarfs-
ins. Það ber t.d. ekki vott um
góða heildarsýn, þegar ný aug-
lýsingaherferð fer af stað í
blöðum og sjónvarpi, en sam-
tímis eru gamlar auglýsingar
í bíóum og útstillingum í verzl-
unum og gamlir og úr sér
gengnir bæklingar í umferð.
Það er áreiðanlega mjög mikils
virði, að auglýsingastofan og
sölumenn fyrirtækis hafi með
sér gott samstarf, þannig t.d.,
að sölumennirnir fylgist vel
með, hvernig varan selzt, og
hvernig auglýsingaherferðir
verka á sölu vörunnar. Þá er
stofunnar að fylgjast náið með
þeim aðferðum, sem keppinaut-
urinn beitir Ijóst og leynt.
í könnun, sem gerð vai í
október 1967 í Bretlandi, kom
í ljós, að forstjórar nærri helm-
ings þeirra fyrirtækja, er tóku
átt í könnuninni, vissu ekki
vað helztu framleiðsluvörur
þeirra áttu stóran hlut að
markaðnum. Það þarf ekki
mikið hugvit til að snúa á
slíka keppinauta.
STÖÐUGRI AUGLÝSINGAR
— LENGRA LÍF!
Það hefur komið sumum
spanskt fyrir sjónir, að á síð-
ustu árum hafa allmörg gömul
og gróin fyrirtæki hér heima
orðið að hætta rekstri. Það
væri barnaskapur að segja, að
forstöðumenn þessara fyrir-
tækja hafi ekki kunnað sitt
fag, en hér er enn ein dæmi-
sagan, sem a. m. k. vekur á-
kveðnar grunsemdir um, að
þeir hafi ekki skynjað mátt
stöðugra og skapandi auglýs-
inga.
Af þeim 100 fyrirtækjum,
sem mest bar á í heiminum
árið 1909, voru aðeins 36 með-
al 100 stærstu fyrirtækjanna
árið 1948, en 65 af 75 leiðandi
auglýsendum árið 1914 aug-
lýstu enn af krafti árið 1953.
Þau fyrirtæki, sem auglýsa
jafnt og mikið, hafa áberandi
lengra líf en þau, sem aug-
lýsa lítið. Þetta er sérstaklega
athyglisvert, þegar jafnframt
er tekið tillit til mjög örra
breytinga á rekstri fyrirtækja
og þjóðfélagsháttum.
En aðgát skalhöfð: Skemmti-
leg auglýsing getur haft tíu
sinnum meiri áhrif en venju-
leg söluauglýsing, en það er
líka tíu sinnum erfiðara að
koma slíkri auglýsingu saman,
þannig að hún verki ekki öf-
ugt. Andlausar auglýsingar
Þessi auglýsing birtist í þýzku tímariti. Israelsku ferðaskrifstof-
unni bárust 6000 fyrirspumir af þessu tilefni.
GRÍN í AUGLÝSINGUM.
Þeir, sem lengi hafa fengizt
við auglýsingagerð, vita að
grínagtugar auglýsingar geta
verið mjög tvíbent vopn. Það
er þó að sjálfsögðu þakkarvert
að reyna að laða fram bros hjá
viðskiptavinunum á þessum
síðustu og verstu tímum kjarn-
orku, fjöldamorða og mengun-
ar.
vekja litla eftirtekt og þær
auka því ekki sölu, nema að
vissu marki, en þær gera vör-
unni kannski ekkert tjón. Aft-
ur á móti getur misheppnuð
„svakalega sniðug“ auglýsing
gert út um fyrirtæki á stutt-
um tíma.
Skemmtilegar auglýsingar
verka bezt, þegar tónninn er
vingjarnlegur og húmorinn
FV 8 1972
53