Frjáls verslun - 01.08.1972, Side 75
Um heima og geima
— Palli. Ég held að það sé
heysóttin aftur.
XX -j< -x-x
Greifaynjan og þjónustu-
stúlkan voru að karpa einu
sinni sem oftar.
— Ég ætla bara að láta
frúna vita það, sagði þjónust-
an, að ég kyssi betur en hún.
— Hver segir það?
— Greifinn. En svo er ég
líka almennt betri ástkona en
frúin.
— Segir greifinn það?
— Nei. Það segir einkabíl-
stjórinn.
— Jæja, kerling. Hvernig
stóð uppeldissonurinn sig með-
an ég var á sjónum?
— Þetta gengur ekki lengur,
sagði veitingakonan við Soffíu
aðstoðarstúlku á kránni.
— Ég hef tekið eftir því, að
karlarnir þvo sér ekki um
hendurnar, þegar þeir fara á
salernið. Viltu ekki fara út og
kaupa sykurtöng?
Nokkrum dögum seinna
spurði veitingakonan Soffíu,
hvort sykurtöngin hefði ekki
verið keypt.
— Jú, svaraði Soffía. Hún
hangir uppi á herrasalerninu.
-fc* -)< -K-K
— Hefurðu heyrt nýjustu
fréttir af Rolf Johansen?
Flugvélin var á leið frá Los
Angeles til Miami í Flórída.
Dyrnar á flugstjórnarklefanum
voru opnaðar og maður nokk-
ur hélt skammbyssuhlaupi upp
að hnakkanum á flugstjóran-
um.
— Jæja, vinur. Þá fljúgum
við til Miami, sagði flugvéla-
ræninginn.
— Já, en við erum einmitt
á leiðinni til Miami.
— Okey. Ég ætla bara að
vera viss í þetta sinn. Síðustu
fjögur skiptin, sem ég hef
flogið þessa leið, hefur flug-
vélin nefnilega lent á Kúbu.
— Stína þó. Svona stórar
stelpur eins og þú, eiga að
fara í skýlið, þegar þær klæða
sig úr.
xx -j< -x-x
Tveir labbakútar gengu inn
á sveitakrá, velhífaðir, og ann-
ar spurði þjóninn:
— Er nokkur hér í nágrenn-
inu, sem á stóran, svartan kött
með hvíta rönd um hálsinn?
— Nei.
— Ekki heldur hund?
— Nei.
— Heyrðu Kalli. Þá er þetta
presturinn sem við keyrðum
yfir.
•x-x -j< -x-x
-x-x ~jc
XX
xx -j< xx
FV 8 1972
63