Frjáls verslun - 01.09.1972, Side 7
FRJÁLS
VERZLUN
9. TBL. 1972
Á döfinni
Því miður er það ekki alltaf svo, að hægt sé
að skýra frá mikilvægu fréttaefni í löngu og ítar-
legu máli einfaldlega vegna þess að aðilar, sem í
hlut eiga, eru ekki tilbúnir að gefa nauðsynlegar
upplýsingar eða veita staðfestingu til að umræða í
löngu máli væri eðlileg og réttlætanleg. Þessum
nýja þætti er því ætlað að brúa þarna ákveðið
bil, hann á að verða fyrir stuttar frásagnir, þar
sem komið er á framfæri meginatriðum mála, sem
á döfinni eru. Einnig verður brugðið á léttara
hjal og skýrt frá hinum skoplegri þáttum mann-
lífsins á okkar ástkæra landi, eftir því sem tilefni
er til.
Útlönd
Þíðviðrið í viðskiptum risaveldanna hefur mjög
verið á dagskrá undanfarið. í kjölfar heimsóknar
Nixons Bandaríkjaforseta til Sovétríkjanna fyrr á
þessu ári búa bandarísk framleiðslufyrirtæki sig
undir stóraukin viðskipti við Sovétmenn. Frjáls
verzlun birtir að þessu sinni viðtal við Samuel Pisar,
bandarískan lögfræðing, sem er sérfræðingur í mál-
um er lúta að viðskiptatengslum austurs og vesturs.
Sérefni: Norðurland
Blaðið hefur annað slagið birt greinar um málefni
einstakra landshluta og að þessu sinni er Norðurland
í brennidepli. Greint er frá þeim vandamálum, sem
við er að etja í sambandi við búsetutilfærslu og
þeim erfiðleikum, sem við blasa í atvinnumálum
norðanlands. Við heimsækjum síðan nokkra staði
á Norðurlandi og tökum forystumenn bæjarfélaga,
stofnana og fyrirtækja tali.
*
Islenzkur fatnaður ‘72
Fatnaðarframleiðsla er í örum vexti á íslandi og
nýverið var haldin kaupstefnan íslenzkur fatnað-
ur’72, sem 140 innkaupastjórar verzlunarfyrirtækja
víðs vegar af landinu sóttu. FV birtir myndir frá
sýningunni ásamt kynningu á mörgum fyrirtækjum,
sem þátt tóku í henni.
Forsíðumyndin
í tilefni af sérefni blaðsins að þessu sinni frá
Norðurlandi birtist á forsíðu þess loftmynd sem tekin
var yfir Blönduósi. Mannlífið og mannanna verk
eru fyrirferðarlítil að sjá úr mörg þúsund feta hæð.
En þó að landakortið eða loftmynd af þessu tagi
sýni ekki hinar mannlegu hliðar á tilvist slíkra staða,
hljótum við með öðru móti að beina athyglinni að
vandamálum hins daglega lífs í byggðarlögunum úti
um landið.
Efnisyfirlit:
Bls.
í STUTTU MÁLI .............. 9
Á DÖFINNI .................. 10
Island
Laan misrétti í Brekkukoti? . . 11
Húseign landsmanna ......... 11
Gjaldskrá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur .............. 12
Vöruflutningar Loftleiða .... 12
Hækkar þorskblokkin?..... 12
Sveifluþjóðfélagið. — eftir dr.
Guðmund Magnússon prófes-
sor.......................13
Útlönd
Viðskiptasambönd Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. Við-
tal..................... 15
Sérefni: Norðurland
Bjarni Einarsson bæjarstjóri á
Akureyri um byggðaþróun . . 19
Yfirlit yfir búsetuþróun á Norð-
urlandi 1967—1970 ......... 22
Spjallað við Áskel Einarsson
framkv.stjóra Fjórðungssam-
bands Norðlendinga ........ 23
Meðaltekjur í Reykjavík 10.967
kr. hærri á íbúa en landsmeð-
altal ...................... 25
Hlutdeild Norðurlands í at-
vinnuleysinu ........... 26
Helgarferðir Reykvíkinga til
Norðurlands stöðugt algeng-
ari......................... 31
Umfcrðartölur ................31
Vinnuaflsskortur á B'önduósi 33
Trefjaplast: Óþrjótandi mögu-
leikar í framleiðslunni .. .. 33
Pólarprjón: Nýir samningar um
prjónaskap fyrir American
Express? ................... 34
Ferðamál: Vilja bæta stöðu
Sauðárkróks í ferðamálum
Skagafjarðar ................35
Loðfeldur; Hvolpadauðinn í ís-
lenzku minkabúunum óeðli-
lega mikill ... .............36
Verzlun: Góð samvinna við
Kaupfélag Skagfirðinga .... 39
Sauðárkrókur orðinn nógu stór
sem þjónustubær .......41
Ólafsfjörður: Undirbúa stofnun
spónaverksmiðju ...... 42
Byggingafyrirtækið Varði,
Húsavík .....................43
Heilbrigðismiðstöðin Húsavík . . 44
Á markaðnum
Skrifstofuvélar .......45
ÍSLENZKUR FATNAÐUR ’72 53
Frá ritstjórn
Fyrirtækin og samfélagsvanda-
málin — Landhelgissöfnunin —
ísland og markaðsmálin .... 66
FV 9 1972
5
L