Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1972, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.09.1972, Blaðsíða 29
I. Úttekt á ástandinu. • Veiðar á fremur litlum þil- farsbátum og opnum vélbátum. Þessir bátar eru mjög háðir fiskigöngum á nálægustu fiski- mið hverrar veiðistöðvar. Afli þeirra verður því allmikið breytilegur frá ári til árs, eftir fiskigöngum á heimamið við- komandi staða. Megin afli hinna litlu báta berst á land yfir vor- og sum- artímann, en sjósókn þeirra erfið yfir vetrartímann. I ýms- um sjávarplássum er afli þess- ara báta meginhluti þess hrá- efnis, sem að landi berst. Meg- inhluti þessara vélbáta er i eigu og útgerð sjómanna. • Veiðar á togbátum 150 til 300 rúmlesta stórum, sem flest- ir stunda veiðar allt árið. A þessum togbátum eru 11 til 14 sjómenn og hefir afli þeirra verið hin síðustu ár 90 til 120 tonn fiskjar á hvern mann, sem á þeim starfa. Mest hafa togbátarnir stundað veiðar við Norðurland, en einnig nokkuð við Vestfirði og Austfirði. Afli togbátanna frá Norðurlandi hefir verið mjög álíka mikill og gerist á sambærilegum bát- um á öðrum stöðum á landinu. Nú sem stendur munu aðeins 15 slíkra togbáta vera gerðir út frá Norðurlandi, en fyrir 2 árum voru þeir 22, hafa 7 þessara báta verið seldir burtu, flestir á s.l. ári. Togbátarnir hafa lagt upp meginhluta^ afla síns í heimahöfnum sínum nema afla úr einni eða tveim veiðiferðum, aðallega síðari hluta haustvertíðar, þegar fisk- verð er hæst á erlendum mark- aði. • Veiðar á togurum: Eru nú gerðir út 5 togarar frá Norður- landi (þ.e. frá Akureyri). Um tíma voru gerðir út 8 togarar frá Norðurlandi (árin 1954— 59). Togararnir, sem gerðir eru út frá Norðurlandi hafa fiskað álíka mikið og sambærilegir togarar, sem gerðir eru út frá Suðurlandi, eða 2800 til 3600 tonn á ári hin síðari ár, þ.e. um 120 til 140 tonn á hvern sjómann, sem á þeim starfa. Meginhluti afla togaranna er fenginn við Vestur- og Suð- vesturJand hin síðari ár. Á tog- urunum eru að jafnaði 26 til 28 menn. Afla togaranna er landað í heimahöfn þeirra, nema einum til tveim veiði- ferðum um miðjan veturinn, þegar fiskverð er hæst á er- lendum mörkuðum. • Veiðar með síldar- eða Ioðnu- nætur: í eigu útgerðarmanna á Norðurlandi eru 10 skip, 250 til 400 rúmlestir að stærð, sem gerð eru út mestan hluta árs á síldveiðar — aðal- lega í Norðursjó — og loðnu- veiðar við Suðurland. Útgerð þessara skipa hefir litla sem enga þýðingu fyrir atvinnulífið á Norðurlandi, að öðru leyti en því, að hluti áhafnanna eru sjómenn frá Norðurlandi. Eins og ljóst er af þessu stutta yfirliti um sjávarútveg á Norðurlandi, hefir útgerð hinna stærri skipa, þ.e. tog- báta, dregizt saman, sérstak- lega á s.l. ári, þar sem 7 all- stór og góð fiskiskip hafa verið seld burtu. Auk þess, er eins og greint er frá annars staðar í skýrslu þessari, ófullnægj- andi hráefni, sem berst að fiskvinnslustöðvunum og vinn an því stopul við fiskvinnsluna — sérstaklega yfir vetrarmán- uðina — fyrir það verkafólk, sem við fiskvinnsluna starfar. Þá er þess ennfremur að geta, að togararnir eru allir orðnir 22ja til 25 ára gamlir, og því dýrir í viðhaldi og ekki vel hæfir til reksturs öllu leng- ur, nema togarinn Sólbakur, sem er keyptur 4 ára gamall. II. Ábendingar og tillögur til úrbóta. Þar sem sjávarútvegur og fiskvinnsla er og verður vænt- anlega um næstu framtíð aðal- atvinnuvegur nær því allra bæjanna og sjávarþorpanna á Norðurlandi, telur ráðstefnan óhjákvæmilegt að unnið verði kappsamlega að því að auka og efla fiskveiðarnar með því að keypt verði allmörg hæfi- lega stór og velútbúin fiski- skip til útgerðar frá Norður- landi. Væntir ráðstefnan þess, að veitt verði af hálfu stjórn- valda og lánastofnana öll fyllsta fyrirgreiðsla, sem kost- ur er og þörf krefur. Vill ráð- stefnan bera fram eftirfarandi tillögur um eflingu sjávarút- vegsins á næstu 3 til 4 árum. • Að veitt verði sérstök fyrir- greiðsla um lán til útgerðar- fyrirtækja á Norðurlandi, til að auka útveginn með 3 til 4 nýjum skuttogurum árlega á næstu árum, enda verði þeir af hagkvæmri gerð og stærð, til að veiða hvar sem er við landið. • Að togararnir verði endur- nýjaðir með minnst einu til tveim nýjum skipum á ári, næstu ár. • Að greitt verði fyrir þeim sjómönnum og útgerðarfyrir- tækjum með hagkvæmum lán- um, sem hug hafa á að endur- nýja báta sína, eða kaupa nýja báta til útgerðar við Norður- land. • Að aukin verði fiskileit og haf- og fiskirannsóknir úti fyr- ir Norðurlandi, m.a. til að kanna til hlítar möguleika til rækju-, skelfiskveiða og loðnu- veiða við Norðurland. • Unnið verði að því, að allur fiskur, sem ekki er landað dag- lega, verði ísaður í kassa í skipum og bátum jafnóðum og hann er veiddur. Til að greiða fyrir þessu, verði veitt sérstök hagkvæm lán, til hæfilega langs tíma, til að gera nauð- synlegar breytingar á lestum skipa og til kaupa á fiskiköss- um. Jafnframt verði gerður meiri verðmunur en nú er á lausum fiski og fiski í kössum. • Að hraðað verði nauðsynleg- um framkvæmdum í hafnar- málum á Norðurlandi, með auknum fjárveitingum og láns- útvegunum, svo hafnirnar verði sem fyrst öruggt lægi fyrir fiskiflotann. • Að samfara auknu námsvali gagnfræðastigsins verði tekin upp kennsla í sjóvinnu. Eins kemur til greina kennsla á sér- stökum námskeiðum. Telur nefndin nauðsynlegt að þetta verði gert til að auka virðingu fyrir sjómennsku og verði hvatning til ungs fólks að gera sjómennsku að ævistarfi. FISKIÐNAÐURINN. Ráðstefna Fjórðungssam- bands og Alþýðusambands Norðurlands um atvinnumál telur að: — Ein af meginástæðum fyrir lélegu ástandi í atvinnulífi Norðlendinga sé skortur á hrá- efni til vinnslustöðva sjávaraf- urða. — Ráðstefnan skorar því á stjórnarvöld landsins að styðja skipakuup til hráefnisöflunar í fjórðungnum. Jafnframt verði viðleitni sveitarfélaga studd af ríkisvaldinu til þess að halda uppi stöðugri atvinnu. FV 9 1972 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.