Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 12

Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 12
A DOFINNI... Verða vextir af Iánum bank- anna gerðir mismunandi háir? Verða sett skilyrði um lág- marksupphæðir víxla, sem bankarnir kaupa? Jóhannes Elíasson, bankastjóri ræddi þessi atriði meðal annars í erindi, sem hann flutti á fundi hjá stórkaupmönnum nýlega. Benti hann á, að á Norður- löndum væru vextir af svo- nefndum eyðslulánum allt að 16-17%. Þá sagði bankastjórinn að furðu gegndi, hvað mikil viðskipti færu fram með víxl- u<m hérlendis. Til dæmis hefði Útvegsbankinn afgreitt 70.000 víxla á sl. ári en það þýddi sama og að víxill hefði verið afgreiddur á hverri mínútu, sem bankinn var opinn. Fannst bankastjóranum ekki síður at- hyglisvert, að margir þessara víxla voru að upphæð allt nið- ur í 500 krónur! ! ! ! Þær skulfu ofurlítið stoðirn- ar undir samvinnugrundvelli núverandi stjórnarflokka í sumar, þegar Nýtt land —< frjáls þjóð, málgagn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna beindi spjótum sínum gegn Lúðvík Jósepssyni vegna skip- unar nefndar til að endurskoða bankakerfið, og ennfremur út af þeirri gagnrýni, sem fram kom á síðum blaðsins á álagn- ingu skatta samkvæmt nýju skattalögunum. Svavari Gests- syni, ritstjóra Þjóðviljans, þótti ástæða til að kippa í spottann og hringdi til ritstjóra Nýs lands og hótaði honum öllu illu, ef gagnrýni á gerðir kommúnista í ríkisstjórninni birtist í blaðinu framvegis. Ritstjóri Nýs lands lét ofstop- ann í Þjóðviljaritstjóranum ekki á sig fá og svaraði: — Þú mátt láta þjóðnýta á þér kjaftinn, Svavar, en ég geri það ekki. ! ! ! Verulegra vonbrigða stjórn- valda hefur gætt vegna tregðu í sölu spariskírteinanna, sem gefa átti út fyrir 300 miíljónir á þessu ári. Þau hafa ekki runnið út á sama hátt og áður og vantar enn 100 millj- ónir upp á, svo að þessu marki verði náð. Ástæðumar eru einkum þær, að almenn þensla er í peningakerfinu og hitt, að nú eru útgefin skírteini skráð á nafn, sem ekki var áður, og fælir það fólk frá kaupun- um. ! ! ! Hér var á sýningarferð fyrir skömmu risaþota af gerðinni Lockheed Tristar. Ekki er ó- sennilegt, að framleiðendurnir hafi eitthvert hugboð um, að Loftleiðir hyggi á endurnýjun flugvélakosts síns og vilji fá enn stærri vélar en þær 250 sæta þc»tur, sem félagið hefur nú í förum. Loftleiðamenn hafa verið að kanna málin, og eins og þau standa nú benist áhugi þeirra helzt að Boeing 747. Kaupi félagið tvær slíkar eftir tvö eða þrjú ár mun því standa til boða að fá þrjár minni þotur, af gerðinni Boeing 707 á milli, — svona fyrir slikk. ! ! ! Fyrir nokkm kvcinkaði Þjóðviljinn sér undan því, að Morgunblaðið fengi of greinar- góðar upplýsingar af því, sem gerist á ráðherrafundum. Var veitzt að embættismanni Stjórn- arráðsins og ferill hans í flokksstarfi Sjálfstæðisflokks- ins rakinn svo að allir sáu, að um beinar dylgjur um trún- aðarbrot var að ræða. Það hef- ur hins vegar fátt verið ritað af þessu taginu í Þjóð- viljann síðan Mogginn gaf skýringar á málinu: Upplýs- ingarnar koma beint úr sjálfri ríkisstjórninni. Og þá er það gáta mánað- arins: Hver af ráðherrunum er líklegastur til þess að vera svona hriplekur? ! ! ! Efnahagsmálasérfræðingar rík- isstjórnarinnar hafa að undan- förnu gert úttekt á stöð'i frystihúsannna og bátaflotans. Vandræði hraðfrystiiðnaðarins hafa mjög verið rædd undan- farnar vikur og ástandið ekki sagt síður ískyggilegt hjá báta- útgerðinni. Aflaverðmæti bát- anna hefur minnkað stórlega á einu ári og telja fróðir menn, að 400 milljónir vanti á árs- grundvelli til að tryggja rekst- ur frystihúsanna og útgeiðar- innar. Bíða menn þess með eftirvæntingu að sjá, hvar þeir peningar verða teknir. ! ! ! Og svo er það barsagan frá Hótel Mælifelli á Sauðárkróki. Hóteleigandinn sótti í fyrra um vínveitingaleyfi fyrir stað- inn, og þar sem engin áfeng- isútsala er á Króknum varð bæjarstjórnin að taka afstöðu til málsins. Hún samþykkti að veita leyfið til eins árs. En hótelstjórinn vildi hafa veit- ingaaðstöðuna eins góða og kostur væri og lét smiða bar. Voru tvö gistiherbergi tekin úr brúki og forláta bar reistur í þeirra stað. Var nú komið að endurnýjun veitingaleyfis- ins, en þegar barinn var loks tilbúinn, sagði bæjarstjórnin nei. Situr Hótel Mælifell því uppi með bar, sem kostaði rúmar 200 þúsund krónur, en ekkert vínveitingaleyfi. 10 FV 9 197'-s

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.