Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 39

Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 39
hins vegar rétt um 1000 kr. Er þar ekki beinlínis um arð- sama framleiðslu að ræða því að hjá Loðfeldi var framleiðslu- kostnaður á skinn á árinu 1971 þessi, miðað við skinn og líf- dýr: Fóður ............... 440.00 kr. Vinnulaun ........... 315.00 kr. Vaxtagjöld .......... 224.00 kr. Annar kostn....... 128.00 kr. Alls 1.107.00 kr. RÆKTUN STOFNSINS TEKUR LANGAN TÍMA. Adolf Björnsson sagði, að þótt reksturinn hefði verið erf- iður stæði það allt til bóta, því að alllangan tíma tæki að ná upp stofni, sem gæfi af sér verðmætustu stærðir skinna og mestu gæði. Eigendur Loðfeld- ar fengu norskan minkaræktar- mann með 15 ára reynslu til að vinna við minkabúið fram- an af og nú hefur Reynir Barð- dal tekið þar við forstöðu. Hann hefur sömuleiðis unnið á minkabúum í Noregi og lært þar á landbúnaðarskóla. Sagði Adolf Björnsson, að það væru byrjunarörðugleikar, sem nú háðu rekstrinum. Finnskur skinnasérfræðingur heimsótti búið fyrir nokkru og hafði orð á því, að sér fyndust dýrin nokkuð smávaxin. Þegar hann komst að því, að búið væri aðeins eins árs gamalt, sagði hann þetta eðlilegan hlut og myndu dýrin stækka með komandi árgöngum. ÓEÐLILEGUR HVOLPADAUÐI. Afkoma min'kabúanna á ís- landi hefur verið misjöfn það sem af er, og hefur ekkert þeirra náð þeim árangri, sem menn gerðu sér vonir um áð- ur en í framkvæmdir var ráð- izt. Því réði verðlagsþróunin erlendis fyrst og fremst því að verð á minkaskinnum hefur verið í öldudal. Minkabúin sunnanlands munu þó hafa íar- ið einna verst út úr því og rétt haft upp í fóðurkostnað._ Eitt sameiginlegt vandamál 'hafa öll búin átt við að glíma en það er óeðlilegur hvolpa- dauði. í ár hafa komizt á legg 3,4 hvolpar á hverja læðu að meðaltali hjá Loðfeldi en hjá minkabúum sunnanlands að- eins 2, að sögn Adolfs. Er þetta að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir eigendur búanna og var gerð vannsókn á ástæðum fyrir þessu. Bendir flest til þess að hinn mikli hvolpadauði standi í sambandi við erlendan fóður- bæti eða vítamín sem notað hefur verið í búimurn. Hjá Loð- feldi höfðu menn búizt við betri árangri en raun varð á eða 3,6—3,7 hvolpum á hverja læðu . HVERT STEFNIR í VERÐLAGSMÁLUM? Reynir Barðdal, bússtjóri hjá Loðfeldi, var að því spurður, Af því sælgæti eru borin fram 250 grömm á dag handa hverju dýri. í sambandi við fóðrunina taka þeir forstöðumenn Loð- feldar fram, að betri nýting á fóðri mætti fást við það að reka refabú til hliðar við minkabúsreksturinn, og sagðist Reynir Barðdal, minkabús- stjóri, hafa mikinn áhuga á að hefja þess konar rekstur. Reynir Barðdal með stóran og gildan karl úr minkabúi LoS- feldar. hvert stefndi í verðlagsmálum fyrir næsta ár og sagði hann, að fremur væri bjart framund- an og væri þróunin augljóslega upp á við. Greinilegt væri, að skinnaframboð á heimsmarkaði yrði með minnsta móti og ótt- uðust Danir jafnvel skort á skinnum. Mest mun fram- leiðsla á minkaskinnum hafa orðið 24 milljón skinn á einu ári, en ástandið er gjörólíkt núna. Þegar skinnaverðið var hvað hæst voru minka- skinn seld á 120 norskar krónur að meðaltali á heims- markaði, en hvort því marki verður náð aftur vilja for- svarsmenn Loðfeldar engu spá um. Þeir eru þó bjartsýnir og Adolf sagðist álíta, að í Skagafirði ætti að vera hægt að framleiða minkaskinn fyrir 16—20 milljónir í útflutningi árlega. Væri þá miðað við bú með 3—4000 læðum, sem hent- aði vel með tilliti til mögu- leika á öflun hráefnis í fóður í Skagafirði, þ.e.a.s. fisk- og kjötúrgangs, sem hakkaður er niður í fars handa minkum. ÍSLENZKUR MINKUR í FÓSTRUN. Minkabú Loðfeldar á Sauð- árkróki hefur orðið eins konar upptökuheimili fyrir íslenzkan villimink, því að þar eru nú í fóstri 11 íslenzkir minkar vegna tilraunar, sem verið er að gera í samráði við veiði- stjóra. Það er með nokkurn tregðu að þetta er gert, eftir því sem tíðindamanni FV virt- ist, og benti einn af forstöðu- mönnum Loðfeldar á það, að gerði íslenzkur minkur ein- hvern usla í nágrenni við búið mætti halda því fram, að hann hefði sloppið þaðan út án þess að hið sanna 1 málinu kæmi nokkurn tíma fram. Hins veg- ar væri minkastofninn í búinu svo frábrugðinn íslenzka minknum, að enginn vafi léki á því, hvort um dýr Loð- feldar væri að ræða, ef svo ó- líklega vildi til, að eitthvert þeirra slyppi út. SKEMMDARVERK? En slíkt á alls ekki að geta komið fyrir, staðhæfa minka- FV 9 1972 37

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.