Frjáls verslun - 01.09.1972, Side 45
Varði hf. Húsavík:
Umfangsmikil byggingastarfsemi
og rekstur steypustöðvar
Fyrir tíu árum tóku sig sam-
an nokkrir múraranemar og
stofnuðu byggingafyrirtækið
Varða h.f. Annast Varði aðal-
lega uppbyggingu á íbúðarhús-
um Húsvíkinga og frágang
húsa fyrir tréverk en á staðn-
um eru reknar fimm trésmiðj-
ur, sem vinna að miklu leyti
til hliðar við framkvæmdir
Varða. Hjá Varða h.f. hafa
starfað í sumar 38 menn en
eigendur eru fimm og hjá þeim
vinnur ennfremur einn tækni-
fræðingur.
Varði h.f. hefur auk bygg-
inga íbúðarhúsa fengizt við
aðrar meiriháttar húsbygging-
ar á Húsavík eins og byggingu
sláturnúss, sem lokið var við í
september í fyrra. í fyrra var
svo líka byggt upp hótel áfast
við nýtt félagsheimili Húsvík-
inga.
Valur Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Varða, skýrði
blaðinu svo frá, að atvinna í
byggingariðnaðinum væri jðfn
allt árið á Húsavík og hefði
árferði verið slíkt í fyrravetur,
að hótelið var hægt að reisa
yfir háveturinn.
LJÚKA EINBÝLISHÚSINU
Á 4—5 MÁNUÐUM.
Utan Húsavíkur hefur Varði
h.f. fengizt við verkefni eins
og sláturhús á Raufarhöfn og
nýjan skóla að Stóru—Tjörn-
um hjá Ljósavatni. En annars
má segja, að fyrirtækið hafi
varla haft undan í fram-
kvæmdum fyrir Húsvíkinga
sjálfa. Venjulegu einbýlishúsi
er yfirleitt lokið á 4—5 mán-
uðum ef peningageta eigand-
ans leyfir. Er það einkanlega
ungt fólk á staðnum, sem bygg-
ir um leið og það stofnar
heimili en aðkomufólk fer
heldur í leiguhúsnæði eða
Valur Valdimarsson, {ramkvœmdastjóri byggingafyrirtœkisins
Varða h.f. á Húsavík.
kaupir gamalt, ef slíkt húsnæði
er þá fyrirliggjandi.
STEYPUSTÖÐ.
Varði h.f. rekur vísi að
steypustöð á Húsavík og var
byrjað með hana í vor. Hefur
stöðin steypubíla í gangi og
selur hverjum sem er, einnig
út um sveitirnar. Eru mögu-
leikar fyrir hendi til að flytja
steypuna alla leið austur í
Kelduhverfi eða vestur í
Ljósavatnsskarð. Eru nú tveir
bílar í förum með steypuna og
getur stöðin ekki annað allri
eftirspurn. Ætlunin er að bæta
einum bíl við í vetur. Fram-
leiðslan er áætluð um 4000
rúmmetrar af steypu á árinu.
Valur Valdimarsson sagði,
að iðnaðai’menn gerðu það al-
mennt mjög gott á Húsavik
og væri frekar*skortur á vinnu-
afli en hitt. En erfitt er að fá
húsnæði og nefndi Valur sem
dæmi, að múrari úr Reykja-
vík með sex manna fjölskyldu
hefði gjarnan viljað flytjast
norður fyrir nokkru en orðið
að hætta við, þar sem hann
fékk ekki öruggt húsnæði.
Á næsta ári taldi Valur
nokkurn veginn öruggt, að full-
gerð yrðu 12 einbýlishús á
Húsavlk. Þá er og unnið að
því að skipuleggja nýtt íbúð-
arhúsahverfi, þar sem áherzla
verður lögð á fjölbýlishús og
taldi Valur nauðsynlegt, að
hugmyndir um sambýli fengju
byr undir báða vængi á Hú^a-
vík svo að auðveldar mætti
leysa húsnæðisvandamálin.
FV 9 1972
43