Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 13

Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 13
Gunnar Vagnsson, fjármálastjóri (Jfvarps um 10% og auglýsingastofurnar: Gætum tapað stórviðskiptum á framkvæmd þessarar tillögu í skýrslu nefndar um skipulag og rckst'ur ríkisú tvarpsins, en Gísli Blöndal, hagsýslustjóri, er for- maður þeirrar nefndar, segir orðrétt undir millif yrirsögninni: „Afnuminn verði afsláttur auglýsinga- deildar sjónvarpsins“: „Frá upphafi hefur auglýs- ingadeild sjónvarpsins veitt til- teknum auglýsingastofum 10% afslátt auk gjaldfrests fram yf- ir aðra. Þegar sjónvarpið var að hefja göngu sína var mikil á- sókn frá ýmsum aðilum í það, að sjónvarpið sjálft annaðist gerð auglýsinga, en aðstaða var af skornum skammti annars staðar. Mun þessi veiting af- sláttar í upphafi að einhverju leyti hafa haft þann tilgang að hvetja aðra til að koma á fót aðstöðu til gerðar sjónvarps- auglýsinga. Nú eru þessir byrj- unarerfiðleikar yfirunnir og hlutverki afsláttarins að því leyti lokið. Öllu alvarlegra er það, að afsláttur þessi og gjald- frestur er bundinn við tiltekna aðila, en öðrum er haldið utan við. Þegar af þessum sökum er vart verjandi, að þessari fyrir- greiðslu af hálfu opinbers aðila sé haldið áfram. Þessi afsláttur nam um 3 m. kr. á árinu 1974. Ólíklegt verður að telja, að af- nám afsláttarins hafi greinan- leg áhrif á auglýsingamagn, því að vart er um nána keppinauta að ræða. Af þessum sökum leggur nefndin til, að sjónvarp- ið hætti að veita afslátt af aug- lýsingum og einnig verði af- numin mismunun varðandi gjaldfrest." Þar sem hér er um verulegar fjárhæðir að tefla árlega, leit- aði FV til Gunnars Vagnssonar, fjármálastjóra Rikisútvarpsins og innti hann eftir hugsanleg- um áhrifum, yrði þessi tillaga að veruleika. í fyrsta lagi sagð- ist Gunnar ekki geta fallist á forsendu nefndarinnar fyrir því að ,,afsláttur“ var veittur í upp- hafi. Hann liti ekki á þetta sem afslátt, heldur greiðslu fyrir veitta þjónustu auglýsingastof- anna. Hann sagði að þetta fyrir- komulag væri víðast erlendis og fengju auglýsingastofur víða mun hærra hlutfall fyrir vinnu sina en hér, enda litu erlendar sjónvarpsstöðvar svo á að þessi þjónusta væri mikilsverð. Gunnar bjóst við að fram- kvæmd þessárar tillögu yrði mjög torsótt. Benti hann t. d. á að erlendir aðilar, tugum sam- an, hefðu viðskipti við Sjón- varpið í gegnum auglýsinga- stofur, en yrði tillagan að veruleika, yrði Sjónvarpið að sinna þessum auglýsendum beint, en þeir eru ekki vanir að skipta beint við fjölmiðla. Varðandi innlenda viðskipta- vini bjóst Gunnar við að Sjón- varpið missti ekki viðskipti við þá aðla, sem létu sér nægja þá þjónustu, sem Sjónvarpið gæti veitt með auknum tilkostnaði. Hann benti á þá mikilvægu þjónustu, sem auglýsingastofur veittu Sjónvarpinu, sem m. a. kemur fram í því, að Sjónvarp- ið fær auglýsingarnar fullunnar upp í hendurnar og stofurnar á- byrgjast sjálfar greiðslur fyrir hönd viðskiptavina sinna, sem fækka viðskiptaaðilum Sjón- varpsins, dregur úr innheimtu- kostnaði og skapar aukið öryggi fyrir greiðslum. Þær hafa aldr- ei brugðist frá auglýsingastof- unum. Varðandi það sem lesa má úr tillögunni um að nokkrir útvaldir njóti þessara kjara, sagði Gunnar að þeir aðilar væru nú 10—12 talsins og byggðust þessi viðskiptakjör á því að að viðkomandi gætu veitt viðskiptavinum sínum al- hliða þjónustu á sviði auglýs- ingagerðar, annað lægi ekki til grundvallar og væri þetta opið öllum þeim, sem uppfylla þau skilyrði. Villandi upplýsingar um laun fréttamanna Vegna þeirrar fullyrðingar, sem fram kom í skýrslu nefndar um skipulag og rekstur Ríkisútvarpsins, að frétta- menn fréttastofu Sjónvarps hefðu allt að 75% heildarlauna sinna fyrir yfirvinmu, leitaði FV skýringar hjá fjármála- stjóra Útvarpsins, Gunnari Vagnssyni, og kom þá í ljós að hér er um mjög villandi tölu að ræða. Hlutfall yfirvinnu í heldartekjum fréttamannanna var að meðaltali 24,5% árið ’71, 28,8% árið ’72, 25,4% árið ’73, 31,7% í fyrra og 30,6% til 31. maí sl. Vaktaálag er hér ekki reiknað sem yfirvinna, enda er það sjálfsögð þóknun fyrir afbrigðilegan vinnutíma. Þeir fréttamenn, sem einnig ero dagskrármenn, fá laun fyrir dagskrárstörf sín, en villandi er að nefna það yfirvinnu við fréttastörf, enda teljast þau störf ekki til fréttastarfa og eru unnin utan vinnutíma þeirra við þau. Ekki er óalgengt að einn ríkisstarfsmaður sinni fleiri en einu verki fyrir ríkið, og tíðkast þá ekki að leggja þóknun fyrir annað starfið ofan á þóknun fyrir hitt, sem yfirvinnu, eins og gert er í skýrslunni, hvað þá að reikna vaktaálag sem yfirvinnu. FV 6 1975 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.