Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 31

Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 31
Ferðamál á IMorðurlandi Ferðamannaaðstaða i Þingeyjar- sýslum í góðri uppbyggingu Að öðrum sýslum á íslandi ólöst’uðum ber mörgum saman um að Þingeyjarsýslur hafi upp á óvenju- legan fjölbreytileika og fegurð að bjóða í lands lagi. Það hefur líka sýnt sig á undanförnum árum að bæði innlendir og erlendir ferðamenn leggjamjög gjarnan leið sína þangað og á það þá ekki síst við um Mývatnssvæðið. Þingeyingar eru no kkuð vel á vegi staddir með að skapa ferðamönn- um viöunandi aðstöðu til gistingar og ætti það að verða til þess að örva enn aðstreymið. Á undanförnum árum hefur verið gert stórt átak í ferðamál- um í Þingeyjarsýslum. Hæst ber smíði glæsilegs hótels á Húsavík, sem getur tekið á móti 68 gestum í herbergi og æ fleiri skólar leggja húsnæði sitt undir sumarhótel þegar kennslu lýk- ur að vori. Það má t. d. nefna Stóru-Tjarnarskólann, Hafra- lækjarskóla, Laugaskóla, Skúla- garð og Skútustaði og fl. en auk þess er nýlega búið að opna hótel á Raufarhöfn með her- bergjum fyrir allt að 70 gesti. Hótelið er rekið af veiðleyfa- sölu í Reykjavík. SAMGÖNGUBÆTUR En það eru ekki bara gisti- staðirnir sem hafa tekið fram- förum. Sömu sögu er að segja um samgöngurnar, þó enn sé því miður allt of langt í land með að ástandið í þeim málum verði gott. — En á stuttum tíma hefur fjöldi hópferðabif- reiða stóraukist í héraðinu,flug- völlurinn hefur verið endur- bættur nokkuð og flugferðum milli Reykjavíkur og Húsavík- ur hefur verið fjölgað. í sumar eru 5 ferðir á milli þessara tveggja staða í viku og þar að auki heldur Flugfélag Norður- lands uppi tveimur ferðum í viku milli Akureyrar og Húsa- víkur. Auk þess flýgur Flugfé- lag Norðurlands til Raufarhafn- ar, Þórshafnar og Vopnafjarðar og víðar í sýslunni. En aðstöðu- leysi háir enn ferðamannaþjón- ustunni í Þingeyjarsýslum og eru uppi hugmyndir meðal heimamanna um að byggja ferðamálamiðstöð til þess að vinna að skipulagningu ferða, rekstri hótela og fleira sem við- kemur ferðamönnum. MARGT AÐ SJÁ í NÁGRENNI HÚSAVÍKUR Fyrir skömmu heimsótti Frjáls verslun Hjört Tryggva- son á Húsavík, en hann er einn af helstu áhugamönnum um ferðamál þar um slóðir. Hjört- ur sagði að ferðamenn, sem legðu leið sina um Þingeyjar- sýslur þyrftu ekki að láta sér leiðast, og var hann strax fáan- legur til þess að gefa nokkrar hugmyndir um skemmtilega Náttúrufegurð Mývatnssveitar laðar stöðugt til sín fleiri ferðamenn, innlenda og erlenda. Mynd: Jón Jóhannesson. FV 6 1975 31

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.