Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Side 51

Frjáls verslun - 01.06.1975, Side 51
Staðarskáli, Hrútafirði Gisting: Eins, tveggja og þriggja manna her- bergi. Verði á eins manns herbergi er kr. 1.090, tveggja manna herbergi kr. 1.700 og þriggja manna herbergi kr. 2.550. Hádegisverður kostar frá kr. 500. Kvöldverður frá kr. 600. Heitir smáréttir, kjúklingar og grill- steikur fást alian daginn. Einnig kaffi og smui't brauð. í tengslum við veitingaskálann er rekin fjöl- breytt ferðamannaverzlun. Einng benzín- og oliu- afgreiðsla með þvottaaðstöðu fyrir bílinn. Dægrastytting: Setustofa er í gistiskálanum með sjónvarpi. Sundlaug er að Réykjum 10 mín. akstur. Þar er einnig gufubaðstofa. Á Reykjanes- tanga er byggðasafn Húnvetninga og Stranda- manna, þar er m. a. Hákarlaskipið Ófeigur. Skammt neðan við skálann rennur Hrúta- fjarðará, kunn laxveiðiá ennfremur er Síká rétt hjá. Allt umhverfið er skemmtilegt til gönguferða, mikið fuglalíf og margt að skoða. Hotel Edda, Reykjum, Hrútafirði, sími um Brú. Gisting: 74 rúm eru í 37 tveggja manna her- bergjum. Einnig er svefnpokapláss í skólastofum. í þeim eru kojur með dýnum. Hótelið er opið írá 1. júlí til 31. ágúst. Eins manns herbergi kostar 1875 og tveggja manna kr. 2520. Morgun- verður, hlaðborð, kostar kr. 415. Aðrar máltíðir eru ekki fáanlegar. Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi er í hótelinu. Á Reykjum er einnig sundlaug með gufubaði. Þar er minjasafn Húnvetninga. Um- hverfið er skemmtilegt til gönguferða. Hótelstjóri: Óráðiinn 11. júní. Hotel Edda, Húnavöllum við Reykjabraut, A-Húnavatnssýslu, sími um Blönduós. Gisting: Á hótelinu eru 40 rúm í 22 herbergj- um, eins og tveggja manna. Einnig er svefn- pokapláss í kennslustofum. Eins manns herbergi kostar kr. 1875 og tveggja manna kr. 2520. Opið er frá 21. júní til 31. ágúst. Morgunverður kostar kr. 415 en aðrar máltiðir eru skv. matseðli. Veitingasalur er opinn frá kl. 8.00 til 23.30. Dægrastytting: í setustofu er sjónvarp og sundlaug er við hótelið. Margir hótelgestir veiða í Svínavatni, skammt frá. Umhverfið er fagurt og hentugt til gönguferða. Hótelstjóri: Helga Helgadóttir. Hótel Blönduós, Blönduósi, sími 95-4124, er opið allt árið og þar eru 30 herbergi. Gisting: Eins manns herbergi kostar 1350 kr. án baðs og 1800 með baði. Tveggja manna her- bergi kostar 2700 kr. án baðs og 3200 með baði. Þá er einnig svefnpokapláss, sem kosta 500 kr. fyrir nóttina. Morgunverður kostar 400 kr. en annar matur eftir matseðli. Dægrastytting: Umhverfis Blönduós eru falleg- ar sveitir, fjölbreytt landslag og margir fallegir staðir, en hótelið er fremur hugsað sem viðkomu- staður en dvalarstaður til einhvers tíma. Hótelstjóri: Haukur Sigurjónsson. HÓtel Höfn, Lækjargötu 10, Siglufirði, sími 96-71514. Gisting: 14 herbergi eru á hótelinu. Eins manns herbergi kostar 1790 kr. Tveggja manna 2536 kr. og hjónaherbergi kr. 2835. Bað er á gangi. Einnig er hægt að útvega svefnpokapláss eftir 1. júlí. Opið er allt árið. Morgunverður kostar 380 kr. en aðrar máltíðir eru skv. mat- seðli. Veitingasalurinn er opinn frá kl. 8 til 23. Dægrastytting; í bænum eru forvitnilegar minjar frá síldarárunum, sundlaug er í bænum, gufubað og golfvöllur. Skemmtileg gönguleið er upp í Hvanneyrarskál og sést þaðan til Gríms- eyjar m. a. Hægt er að fara á skiði yfir sumarið. lúaglega fara áætlanabifreiðir frá Siglufirði til Akureyrar og koma aftur að kvöldi. Hótelið getur útvegað veiðileyfi í Miklavatni og útbýr hótelið nestispakka fyrir gesti í þær dagsferðir. Hótelstjóri: Steinar Jónasson. Hótel Akureyri, Hafnarstræti 98 sími 96-22525. Gisting: Gistiherbergi eru 19 og opið er allt árið. Verð. á eins manns herbergi er 1800 kr. á tveggja manna kr. 2700 og á þriggja manna kr. 3300. Morgunverður kostar 300 kr. en aðrar mál- tíðir eru ekki fáanlegar á hótelinu. FV 6 1975 51

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.