Frjáls verslun - 01.06.1975, Qupperneq 63
NÝ STURLUNGAÖLD?
Spyrja má, hvort valdið hér
á landi sé ekki pú á síðustu ár-
um að þjappast óeðlilega mikið
um ákveðna stéttarfulltrúa,
eins og gerðist á tímum Sturl-
unga, og hvort ekki megi búast
við svipuðum afleiðingum nú og
þá, ef ríkisvaldið sýnir sig vera
of veikt.
Hvað viðvíkur stefnu Verzl-
unarráðs íslands í gjaldeyris-
og fríverzlunarmálum, eins og
fjármálum og efnahagsmálum
almennt, er þetta að segja:
Verzlunarráðið er vitaskuld
sammála því, að þegar mikill
halli er á gjaldeyrisverzluninni
þá verði að gera efnahagsráð-
stafanir, sem valda samdrætti í
innflutningi og bitna e. t. v.
með meiri þunga á verzluninni
sjálfri en nokkrum öðrum aðila
í þjóðfélaginu. En það sem máli
skiptir er það, að þessar aðr
gerðir verða að vera almenns
eðlis. Þær mega ekki vera í því
formi að stjórnvöld ákveði að
þetta megi þessi, meðan annar
má ekki. Með öðrum orðum,
hvers konar skömmtun er hafn-
að. Hér verður að ríkja algjört
viðskiptafrelsi. Viðskiptum má
hins vegar og verður að halda
niðri á því stigi, sem hæfir
framleiðsluafköstum með al-
mennum hagstjórnaraðferðum.
FRÁVIK FRÁ FRJÁLSU
MARKAÐSKERFI
Á nýafstöðnu viðskiptaþingi
Verzlunarráðs íslands kom
fram, að á undanförnum ára-
tugum hefur ríkt efnahags-
stefna, sem víkur í veigamikl-
um atriðum frá frjálsu mark-
aðshagkerfi. Slík frávik geta
einungis leitt til minnkandi af-
kasta og aukinnar sóunar fjár-
muna með margháttaðri truflun
á allri starfsemi atvinnulífsins.
Við slíkar aðstæður er starf-
semi efnahagslífsins ekki leng-
ur stýrt með almennum reglum
og hefðbundnum hagstjórnar-
tækjum. Stöðugt eru búin til ný
hagstjórnartæki og stærstur
hluti efnahagslífsins er settur
undir bein afskipti stjórnmála-
og embættismanna. Hin ein-
stöku hagstjórnartæki verða sí-
• Matvörur • Hvers konar
• Ferðavörur þjónusta
• Viðlegubúnaður við ferðafólk.
KAUPFÉLAGIÐ •• „ SELFOSSI
HO SIMAR 99-1501 1502, 1535
GEZE GU
• HURÐAPUMPUR • SVALAHURÐARJÁRN
• HURÐARENNIBRAUTIR • ARBOMAST kítti og
• GLUGGAOPNARAR kíttislistar.
GÚMMÍÞÉTTILISTAR — SÉRSTÖK GLUGGAJÁRN —
SLÝPUBÖND — EINFALT GLER O. FL.
JÁRN & GLER HF. HEILDVERZLUN
NJÁLSGÖTU 37. - - SÍMAR 17696.
FV 6 1975
63