Frjáls verslun - 01.06.1975, Side 75
Húsvíkingar hafa löngum verið frægir fyrir smábátaútgerð og
hér sjást tveir smábátar í fjörukambinum og bærinn með sinni
sérkennilegiU kirkju í baksýn.
dvalarheimilis aldraðra, safna-
húsinu og félagsheimilinu. En
af öðrum verklegum fram-
kvæmdum má nefna höfnina
hér, sem við ætlum að fullgera
í sumar, en gatnagerð verður
tvímælalaust stærsta átakið, eí
hið fræga þak á bankakerfinu
í dag verður ekki til þess að
eyðileggja áformin. Loks má
geta þess að við verðum að
vinna að dreifikerfi fyrir hita-
veituna í sumar. Við erum þeg-
ar búnir að leggja lagnir heim
að öllum bæjum í Reykjahverfi
nema tveimur og við lukum við
dreifikerfið á Húsavík sl. ár.
Við erum því ekki í vafa um
að þessi hitaveita á eftir að
borga sig vel. Hún mun sjá
okkur fyrir ódýrum hita og svo
fylgir henni sá stóri kostur að
hér er um sjálfrennandi hita-
veitu að ræða þannig að við
höldum alltaf hita í húsum
okkar þó svo að rafmagniði fari,
en það gerist oft hér um slóðir.
SAMGÖNGUMAL
HÚSVÍKINGA
Því næst vék bæjarstjórinn
að samgöngumáium Húsvíkinga
og sagði:
— Samgöngumál okkar hafa
dregist langt aftur úr og eru
ekki í neinu samræmi við þarf-
ir neytenda. Á það jafnt við um
okkur heimamenn, sem ferða-
menn, sem hingað leita. Flug-
vallarstæðið við Húsavík er frá
náttúrunnar hendi mjög gott,
en mennirnir hafa ekki staðið
við sitt. Að vísu var völlurinn
lagfærður í fyrra og til eru á-
form um að leggja á hann slit-
lag árið 1977, en áformin duga
ekki ein til. Þá má geta þess að
aðstaða fyrir farþega á flugveil-
inum er mjög frumstæð. Við
teljum að það þurfi einnig að
halda uppi daglegum flugferð-
um til Húsavíkur frá Reykja-
vík, ef vel á að vera. Nú á þessu
sumri eru áætlaðar 5 ferðir á
viku, svo við þurfum aðeins
eina ferð til viðbótar til þess að
við megum vel við una. Annað
er hins vegar upp á teningnum
með flug til Akureyrar. Þaðan
er flogið tvisvar í viku til Húsa-
víkur. Þessar ferðir eru fyrst
og fremst póstferðir, þar sem
það hefur sýnt sig að notagildi
þeirra fyrir farþega er ekki
mikið. Ef við þurfum að skjót-
ast til Akureyrar fáum við jú
ferð héðan með fluginu, en
komumst ekki til baka með
flugvél fyrr en eftir nokkra
daga. Ef þetta áætlunarflug
aítti að koma að verulegu gagni
þyrftu ferðirnar að vera miklu
tíðari.
Húsavík er oft nefnd í sam-
bandi við blómiegt tónlistarlíf
og félagslíf almennt. Bæjar-
stjórinn sagði að nýja félags-
heimiiið á staðnum ætti ekki
minnstan þátt í að stuðla að
miklu félagsstarfi. Þarna hafa
aðildarfélögin sín eigin her-
bergi sem þau hafa notað ó-
spart. Eina félagið sem ekki er
enn búið að fá aðstöðu í félags-
heimilinu er leikfélagið. Á
meðan salur þess er ókominn
Unnið að
smíði
vinnu-
húsa fyrir
starfsmenn
við Kröflu-
virkjun.
FV 6 1975
75