Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 77
Heimir Ingimarsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn
Raufarhöfn hefur skipt um hlutverk -
fólksflótti nú úr sögunni
Blómatími Raufarliafnar
voru síldarárin. Staðurinn óx
og mikið fjármagn rann í gegu-
um hendur heimafólksins. Það
voru byggðar síldarverksmiðj-
ur, og heimamcnn voru bjart-
sýnir á framtíðina. En svo
hætti síldin að láta s já sig.
Raufarhöfn liætti að vera pen-
ingauppspretta og stór hluti í-
búanna flutti b’urtu. í mörg ár
var stöðug fólksfækkun á Rauf-
arhöfn og á tímabilinu frá 1967
—1973 var ekki eitt einasta hús
byggt á staðnum. Þá urðu tíma-
mót í sögu Raufarhafnar.
Heimamenn horfðust í augu við
þá staðreynd að þeir gæt'u ekki
lengur treyst á tekjur.af síld-
veiðum. Það var stofnað hluta-
félag með þátttöku sveitarfé-
lagsins og hcimafólks og menn
sneru sér að bolfiskveiðum og
fiskvinnslu. Og nú hefur brugð-
ið svo við að fólki á Raufarhöfn
cr aftur að fjölga, húsnæðis-
skortur farinn að láta bera á
sér og 12 hús eru í smíðum.
— Það má eiginlega segja að
Raufarhöfn sé staður sem hef-
ur skipt um hlutverk. Þessi
hlutverkaskipti eru vissulega
erfið fyrir stað eins og Raufar-
höfn, en hið nýja hlutverk
skapar staðnum framtíð. Bær
án hlutverks er dauðadæmdur.
Við höfum nú horfst í augu við
það að síldin kemur ekki aftur,
alia vega ekki í þeirri mynd
sem hún kom hingað einu sinni,
og við þurfum að skapa okkur
nýja framtíð. — Þetta sagði
Heimir Ingimarsson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn i viðtali við
Frjálsa verslun fyrir skömmu.
F.V.: — En hvaða hlutverk
cr þa.ð sem staðurinn ætlar sér
og hvernig er hann undir það
búinn að mæta því?
Hcimir: — Með stofnun
hlutafélagsins Jökuls var fram-
tíðin mörkuð að miklu leyti.
Jökull gerir út skuttogarann
Rauðanúp og rekur frystihús,
þar sem heimabátum hefur
einnig verið sköpuð löndunar-
aðstaða. En því miður er Rauf-
arhöfn enn mjög illa undir það
búin að verða útgerðarbær.
Héðan eru gerðir út 30 smærri
bátar og skilyrði fyrir þá eru
slæm. Öll hafnarmannvirki hér
eru frá síldarárunum og miðuð
við þáverandi þarfir. Við stönd-
um því frammi fyrir því að
Heimir Ingimarsson.
þurfa að endurbæta höfnina
mikið. Fyrst þarf að byggja
löndunarkant fyrir neðan
frystihúsið og munum við
byrja á því verki árið 1976. Þá
erum við með áætlanir um að
byggja vinkillagaðan varnar-
garð í höfninni fyrir smábáta.
Það er mjög brýnt verkefni þar
sem bátarnir eru í hættu frá
náttúrunnar hendi. Þegar við
höfum komið höfninni í viðun-
andi horf getum við farið að
hyggja að nýjum leiðum í hrá-
efnasköpun, en persónulega er
ég mjög spenntur fyrir því að
hér verði sköpuð meiri fjöl-
breytni í atvinnulífinu.
Ég held að einhæf atvinnn
fæli alltaf frá. Það er á hverj-
um stað ákveðinn hópur sem
t. d. getur ekki hugsað sér að
vinna í frystihúsinu og það
fólk hefur litla sem enga at-
vinnumöguleika á Raufarhöfn.
Við eigum mikið af ónotuðu
húsnæði frá síldarárunum. Ef
við nýttum það mætti skapa
hér mun fjölbreyttara atvinnu-
líf, en það sem er hér í dag.
Gerði það staðinn meira freist-
andi fyrir aðkomufólk.
F.V.: — En hvernig er stað-
urinn sjálfur undir það búinn
að taka við fólki í hugsanlegar
nýjar atvinnugreinar?
Heimir: — Raufarhöfn hefur
verið byggð í hrotum, ef þann-
ig má að orði komast. í hvert
skipti sem síld kom hingað að
ráði, kom kippur i bæinn. Þetta
setur sinn svip á staðinn og
þessu fylgir vafasamur arfur.
— Ég þarf að fara talsvert aft-
ur í tímann til þess að geta út-
skýrt hvað ég á við. Hér áður
keyptu ráðamenn sér gjarnan
vinsældir með því að gefa svo
og svo mikinn afslátt af álögð-
um útsvörum, þannig að raun-
verulegar tekjur sveitarfélags-
ins urðu kannski aðeins hluti
af því sem þær hefðu getað
orðið lögum samkvæmt. Hér
runnu miklir fjármunir í gegn,
en þessir fjármunir skildu lítið
eftir sig. í litlu samfélagi eins
og Raufarhöfn eru allar meiri-
háttar framkvæmdir þungur
baggi og hefði því ekki veitt af
því fjármagni, sem heimilt var
að krefjast við álagningu út-
svara. Við þurfum götur, skóla,
hafnarmannvirki, félagsheimili
og þannig mætti lengi telja.
Þessu var lítið sinnt á meðan
síldin fékkst. Þá gerðist það að
sildin hvarf og heimamenn sátu
eftir og fátt bar þess merki að
hér hefðu ótrúlegar peninga
upphæðir runnið i gegn. Síldar-
árin skiluðu bókstaflega engu
af sér fyrir Raufarhöfn. Þess
vegna verðum við nú að horf-
ast í augu við að eiga ótrúlega
mikið ógert.
FV 6 1975
77