Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 81
Raufarhöfn
Ailt atvinnulífið stendur og
fellur með einu fyrirtæki
1 nýútkominni byggðaþróunaráætlun Norður-Þingcyjarsýslu, sem gerð var á vegum Framkvæmda-
stofnunar ríkisins, kemur fram að nýting mann afla á Raufarhöfn hefur verið tiltölulega léleg und-
anfarin ár og er talið að á tímabilinu frá 1973—1985 komi til með að vanta atvinn'utækifæri fyrir
86 manns á staðnum. í áætluninni segir á öðrum stað að Jökull hf. sé langstærsti atvinnuveitandinn
í kauptúninu og raun og veru sá aðili sem allt atvinnulíf stendur og fellur með. Þá segir að fyrirtæk-
ið hafi verið byggt upp á undanförnum fimm árum og jafnan átt í miklum örðugleikum með rekstr-
arfé og hafi sveitarfélagið þá vegna stöð'u fyrirtækisins í kauptúninu hlaupið undir bagga. Þetta
komi aftur niður á öllum framkvæmdum á veg um sveitarsjóðs og því spáð að með sama áfram-
haldi muni Raufarhöfn dragast meira og meira aftur úr öðrum sveitarfélögum á þeim sviðum sem
sveitarsjóði beri að standa að. Verði því að gera fyrirtækið Jökul hf. fjárhagslega sjálfstætt þannig
að það hvorki þurfi né geti sett sveitarsjóð í sjá Ifheldu.
Frjáls verslun átti nýlega
samtal við Karl Ágústsson
stjórnarformann Jökuls hf. og
Ólaf Kjartansson framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Voru þeir
sammála um að þó að Jökull
hf. hafi bjargað Raufarhöfn út
úr tímabili vonleysis og sam-
dráttar og opnað nýja atvinnu-
möguleika, þá hafi fyrirtækið
alltaf frá upphafi notið lítils
skilnings yfirvalda og allar
lánagreiðslur til þess verið í al-
gjöru lágmarki. Og því hafi
fátt verið gert til þess að Jökull
mætti verða fjárhagslega sjálf-
stætt fyrirtæki.
-- Oft hefur fjárhagur Jök-
uls verið þröngur, sagði Karl,
en aldrei svo að við örvæntum
um framtíð þess, enda þýddi
það algjört volæði fyrir Rauf-
arhöfn. Hins vegar hafa alltaf
margir verið fljótir til að spá
okkur illa. Það fyrsta sem við
heyrðum þogar við komum
heim með skuttogarann okkar í
fyrsta sinn, var að það ætti að
fara að selja hann burt vegna
fjárskorts. Þeir voru líka marg-
ir sem lágu okkur á hálsi fyrir
að fara þá leið að kaupa skut-
togara til Raufarhafnar í stað
þess að reyna að byggja upp
atvinnu í kringum bátaútgerð
eins og Húsvíkingar hafa gert.
Nú hefur það hins vegar sýnt
sig að við vorum framsýnni en
þeir og nú eru Húsvíkingar að
feta í fótspor okkar og eru að
leita fyrir sér með skuttogara
sem á að bjarga útgerðinni þar.
Jökull hf. var stofnað 22.
október 1968 og var hreppur-
inn lang stærsti hluthafinn, en
einstaklingar á staðnum áttu
afganginn. í byrjun keypti Jök-
ull brunarústir frystihúss, sem
hafði verið í eigu Kaupfélags
Raufarhafnar. í júlí 1969 var
hægt að hefja fiskvinnslu í
frystihúsinu og var hráefni
keypt af smábátum, sem lögðu
upp á Raufarhöfn. Þetta sama
ár var keypt 260 tonna skip
Jörundur II., sem síðar var
skírt Jökull. Skipið gerði út frá
Karl
Ágústsson
°g
Ólafur
Kjartans-
son.
Unnið í
frysti-
húsinu á
Raufar-
höfn.
FV 6 1975
81