Frjáls verslun - 01.06.1975, Qupperneq 85
Frá ráðstefnu um byggingarmál á Morðurlandi
Samdráttur gerir vart við sig
í norðlenzkum byggingariðnaði
Samdráttur g-erir nú vart við sig í norðlenzkum byggingariðnaði og fyrir skömmu efndi Fjórö-
ungssamband Norðlendinga til ráðstefnu um málið í samráði við Landssamband iðnaðarmanna og
samtök meistara á Norðurlandi. Árið 1973 gekkst Fjórðungssambandið fyrir húsnæðiskönnun á
Norðurlandi og var sú könnun bætt fyrir ráðstefnuna. Kemur bar fram að áætluð bygginga-
liörf íbúðarhúsnæðis í fjórðungnum árið 1974 var 312 íbúðir, en aðeins tókst að ljúka 244 'þeirra
í fyrra, eða 78% af þörfinni. Á skorti 68 íbúðir. Áætluð byggingarþörf árið 1975 er 316 íbúðir,
en áætlað er að fullgerðar verði 298 íbúðir, eða 94,3% af þörfinni. Á vantar þá 18 íbúðir, svo að
,skuld‘ áranna ’74 og ’75 verður því 86 íbúðir. Jón Geir Ágústsson, byggingarfulltrúi á Akureyri,
telur að það bil vcrði að vinna ,upp árið 1976.
í byggingu fyrri hluta ársins
1975 eru 762 íbúðir. Lóðaút-
hlutun ársins 1975 er orðin fyr-
ir 318 íbúðir. Áætla má að haf-
in verði bygging 90% þeirra
íbúða eða 286. Eins og áður
sagði er áætlað að fullgerðar
íbúðir á þessu ári verði 298 og
verða því í byggingu árið 1976
750 íbúðir og að auki nýbyrj-
anir þess árs, sem áætla má
að verði 300 íbúðir. Samtals
yrðu því 1050 íbúðir í bygg-
ingu seinnihluta árs 1976.
Áætlaður fjöldi fullgerðra
íbúða á því ári er 28% af þeim
ibúðum, sem í byggingu eru,
og er þar stuðst við fram-
kvæmdir ársins 1975. Sam-
kvæmt því verða fullgerðar
íbúðir 1976 samtals 294. Á
vantar 11 íbúðir.
Standist þessi áætlun verða
fullgerðar ibúðir áranna 1974-
1976 því alls 836, en voru sam-
kvæmt könnuninni áætlaðar
933, en það er 97 íbúðum of
lítið samkvæmt áætlun um
íbúðarþörf á Norðurlandi. Er
þetta 89.6% af íbúðarþörf þess-
ara 3ja ára. Þegar áætlanir ein-
stakra staða eru athugaðar
sést að á árinu 1974 eru það
aðeins Blönduós og Akureyri,
sem byggðu umfram áætlaða
þörf og Svalbarðseyri byggði
samkvæmt áætlun. Samkvæmt
tölum um íbúðarþörf og full-
gerðar íbúðir árið 1975, en báð-
ar þær tölur eru áætlaðar, þá
nær Árskógshreppur sinni
áætlun, en Hvammstangi,
Skagaströnd, Hofsós, Grímsey,
Dalvík, Akureyri, Raufarhöfn
og Þórshöfn byggja umfram
áætlun ársins. Þegar hins veg-
ar tölur beggja áranna 1974 og
1975 eru skoðaðar kemur í ljós
að á Hvammstanga er byggt
samkvæmt áætlun, en á Skaga-
strönd, Hofsósi, Dalvík og Ak-
ureyri er byggt umfram áætl-
un.
Öttast samdrátt
Þær blikur eru nú á lofti í
efnahagsmálum þjóðarinnar að
margir óttast að mjög dragi úr
húsbyggingum. Útlit er fyrir
að ekki verði hafin bygging
nægilega margra ibúða á árinu
1975 sbr. það sem áður er sagt
(skuld áranna 1974 og 1975
samtals 86 íbúðir), þannig að
flytja þurfi fjölda íbúðarbygg-
inga fram á árið 1976, sem
verður að teljast mjög óæski-
legt. Enda þótt hafin verði
bygging 286 íbúða á þessu ári,
er ástæða til að óttast, eins og
nú horfir í efnahagsmálunum,
að nýbyrjanir ársins komist
skammt á veg á sumrinu og þá
er stoðum kippt undan at-
vinnuöryggi i byggingariðnaði
á komandi vetri. Þetta leiðir
einnig af sér að á árinu 1976
verður álag i byggingariðnaði
langt umfram það eðlilega, ef
stefna skal að því að byggja
það íbúðarhúsnæði, sem þörf
er á. Allar horfur eru á því að
verulegar sveiflur verði í iðn-
greininni enn einu sinni, verði
ekkert að gert, og þar með
verði bæði að þola íbúðarskort
og mikla erfiðleika í byggingar-
iðnaði, sagði Jón Geir í fram-
söguræðu.
Fjölgun mannára í bygg-
ingariðnaðinum
Það kom fram á ráðstefnunni
að mannárum í byggingarstarf-
semi hefur í heild fjölgað
nokkuð í landinu. Dálítill sam-
dráttur varð þó árið 1970, sem
stafar aðallega af minni
byggingarframkvæmdum við
Straumsvík og Búrfell. Á
Norðurlandi hefur byggingar-
starfsemi einnig aukizt jafnt
og þétt og er hið sama að segja
um aðra landshluta. Sé t. d.
miðað við úrvinnslugreinar, þá
hefur hlutfall byggingarstarf-
semi úrvinnslu aukist að mun,
sé miðað við árabilið 1969-1973.
Á landinu öllu var t. d. hlut-
fall byggingarstarfsemi af úr-
vinnslugreinum 24.9% árið
1969, en 25.8% árið 1973. Á
Norðurlandi voru hlutföllin
21.9% árið 1969 og 23.9% árið
1973.
Opinberar framkvæmdir
hafa aukist á Norður-
landi
Byggingarstarfsemi á vegum
hins opinbera hefur verið 25-
30% af allri byggingarstarf-
semi í landinu 1969-1973. Mest
hefur hún verið í Reykjavík
eða um 35%, en minnst á
FV 6 1975
85