Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 88

Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 88
Notið tíma til að fá meiri tíma Einhver vinsælustu stjómunarnámskeið erlendis fjalla nú um tímastjórn,un og töluvert er orðið um ráðgjafarstarfsemi á því sviði að aðstoða menn til að nýta tíma sinn sem bezt. Sá tími sem menn hafa til umráða er einn af þeim þáttum, sem eru afgerandi fyrir afköst þeirra, og það eru fáir stjórnendur, sem geta sagt að þeir1 hafi nægilegan tíma til að sinna þeim verkefnum sem þeir vilja. Nú er það svo, að vinnuað- ferðir eru mjög einstaklings- bundnar og þvi er erfitt að gefa einhverjar algildar reglur um það hvernig menn geta bezt nýtt tíma sinn, en hér verður varpað fram nokkrum hug- myndum, sem hafa reynzt vel þeim stjórnendum, sem hafa notað þéssar aðferðir. Að hafa stjórn á tímanum, en láta ekki tímann stjórna sér, krefst mikillar sjálfsögunar. Það þarf að temja sér nýjar starfsreglur og breyta ýmsum venjum. Það krefst þess að maður tileinki sér og venji sig á aðferðir, sem eru árangurs- ríkar, en brjóti sig úr viðjum vanans þar sem hann hindrar árangur. SKIPULEGGIÐ STARF HVERS DAGS Byrjið ekki daginn á því að leysa ýmis smáverkefni sem fyrir liggja með það í huga að tímafrekari verkefni verði tek- in fyrir seinna um daginn. Patrick J. Frawley, Jr. stjórnarformaður Schick, Inc. segist raða þeim verkefnum, er daglega liggi fyrir, eftir mikil- vægi þeirra. Hann merkir þau eftir mikilvægi þeirra með A, B og C þar sem A er mikilvæg- ast. Oft kemur það fyrir að nokkur verkefni, sem merkt eru C eru eftir á listanum að loknum starfsdegi en þá kemur einnig oft í ljós að þessi verk- efni hafa ekki þarfnast með- höndlunar svo þau eru strikuð út af listanum. Þegar menn skipuleggja ekki hvern dag fyr- ir sig verður það oft til þess að menn ýta vandamálunum á undan sér og síðustu klukku- stundirnar fara í að leysa ó- grynni mála, sem hafa safnast saman yfir daginn en ekki ver- ið leyst. Það er betra að sleppa alveg vissum verkefnum en að byrja á mörgum og ljúka þeim e. t. v. aldrei. Oft verður það svo þegar menn fara að skipuleggja starf sitt yfir daginn að það er erf- iðara að áætla hvað maður ætl- ar ekki að gera heldur en hvað á að gera. Áður en byrjað er að gera tímaáætlun er oft betra að hafa skráð hjá sér í ca. tvær vikur í hvað tíminn fer, þannig verður áætlunin raunhæfari. Mikil- vægt er að skrifa niður hjá sér í dagbók eða á sérstök eyðublöð hin ýmsu verk jafnóðum og taka tíu mínútur hvern dag í að bera saman áætlunina og raun- veruleikann og skipuleggja næsta dag. Einn af stóru kostunum við slík vinnubrögð er að menn setja tímatakmörk á hvert verkefni og sé t. d. um fundi að ræða þá verður honum oft fyrr lokið en ella, eingöngu vegna þess að fyrirfram var á- ætlað hvenær hann skyldi hafa lokið verkefni sínu, sama gild- ir og með ýmis önnur verkefni. Hliðstæðar áætlanir fyrir hverja viku eru einnig mikið notaðar. Mesta gildi tímaáætlana er e. t. v. það að maður notar stutt- an tíma dag hvern til að íhuga hvað maður hefur verið að gera þann daginn eða þá vikuna. REYNIÐ AD FA VINNU- FRIÐ Könnun, sem gerð var á starfsvenjum stjórnenda í Bandaríkjunum sýndi að und- antekningarlítið gátu þeir ekki unnið í meira en 20 mín. að ein- hverju verkefni án þess að verða fyrir ónæði og jafnframt að flestir þeirra unnu 30—40 mismunandi verk yfir daginn, sem tóku þetta 3—20 mín. Athugið í fyrsta lagi 'hvern- ig meðhöndla skal símhringing- ar. Fæstir eru e. t. v. í þeirri aðstöðu að geta haft ákveðna simaviðtalstíma, en nær allir geta beðið símastúlkuna um að segja að viðkomandi sé ekki við eða upptekinn og beðið um skilaboð. Síminn er að vísu ekki bara tímaþjófur. Menn skyldu ætíð hafa það í huga er þeir skrifa bréf hvort betra sé að leysa málið með símtali (jafnvel þótt það sé til út- landa), og ef bréfaskriftir taka mikinn tíma frá stjórnandanum ætti hann hiklaust að venja sig á að nota ,,diktafón“ það tekur ótrúlega miklu styttri tíma að lesa bréf inn á segulband en að skrifa það. Þegar um meiriháttar verk- efni er að ræða, sem krefjast úrlausnar er nauðsynlegt að hafa nægan og samfelldan tíma til umráða. Þetta getur gert það nauðsynlegt að loka dyrun- 88 FV 6 1975
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.