Frjáls verslun - 01.06.1975, Qupperneq 93
Skrifstofuvélar - Talstöðvar - Skrifstofutæki:
Við viljum vekja athygli væntanlegra auglýsenda í þessum þætti á því, að panta pláss
tímanlega svo tryggt sé, að viðkomandi frásögn komi á sem hæfilegustum tíma fyrir
auglýsandann.
PVE talstöðvar vinsælar
Þörfin fyrir betri og öruggari talstöðvar í farartæki eykst sífellt. Með aukinni rafeindatækni hafa
örbylgjustöðvar (VHF tíðni) rutt sér mikið til rúms. Þetta er eina tíðnisviðið þar sem notendur
slíkra tækja hér á landi fá úthlutað eigin talrás. Þetta þýðir aukið öryggi og þægindi fyrir notand-
ann, sem er óháður fjarskiptum annarra talstöðvaeigenda. Litlar líkur eru því á, að aðrir hlusti
á hans eigin fjarskipti, og hvert kall sem heyrist á hans rás, er eingöngu fjarskipti hans eigim fyrir-
tækis.
PYE, sem er breskt fyrirtæki
og leiðandi í þessari tækni, hef-
ur selt hér mikið af þessum tal-
stöðvum, aðallega til stofnana
eins og lögreglu og annarrar
öryggisþjónustu. En sífellt bæt-
ast fleiri einkaaðilar við, t. d.
steypustöðvar, verktakar, bank-
ar og heildverzlanir. PYE bíla-
og handtalstöðvar eru fyrir-
ferðarlitlar og algjörlega hljóð-
lausar, þar til kall berst, en
ekki sífellt suðandi eins og önn-
ur kerfi. Stöðvar sem þessar
kosta frá um kr. 190.000, en
arðsemisútreikningar sýna, að
fjárfestingar- og rekstrarkostn-
aður slíkra stöðva er aðeins
um 2% af rekstri bíls — og
r'
PYE FM bílatalstöð og
PYE vasatalstöð.
ekki þykir það mikið, þegar
ljóst er, að í flestum tilfellum
geta eigendur svona kerfa spar-
að allt að eina bifreið af hverj-
um 5. Umboð fyrir PYE hefur
Heimilistækni sf., Sætúni 8.
REMINGTON RAND skjalaskápar
Orka hf., Laugavegi 178, flytur inn Remington Rand skjala-
skápana og er hægt að fá þá tveggja, þriggja, fjögurra og fimm
skúffa. Skáparnir eru sérstaklega vel útbúnir, spjaldskrárkerfi,
röðunarkerfi og þessháttar búnaður er fáanlegur m-eð skúffum í
vandaðri útfærslu. Skáparnir sem eru fyrirliggjandi, eru í mild-
um gráleitum lit.
Þá hefur Orka einnig fyrirliggjandi eldtrausta skjalaskápa fra
Remington Rand, tveggja og fjögurra skúffa. Verð beggja teg-
unda er hagstætt í samanburði, en allar nánari upplýsingar er að
fá í umboðinu Laugavegi 178, sími 38000.
FV 6 1975
93