Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 98
41H
HFrá
ritstjárn
Aukið aðhald til tryggingar
útflutningsmörkuðum okkar
Aö undanförnu höfum viö orðið fyrir
hverju áfallinu á fætur öðru á hefðbundn-
um útflutningsmörkuðum okkar. Ástæöur
eru margar; lækkandi verölag á fiskafurð-
um, aukin samkeppni við aðrar fiskveiði-
þjóðir, stórfelldar niðurgreiðslur í nokkrum
ríkjum, innflutningshöft og m. fl. mætti
nefna. Ofan á allt þetta bætist sú staðreynd,
að vinnuvöndun og gæðamat hefur minnk-
að hér á landi, meö þeim afleiöingum að út-
flutningsverð hefur hrapað allt of langt
niður.
Það er leitt að vita til þess að við höfum
glatað traustum viðskiptasamböndum og
stórum markaðssvæðum, vegna þess m. a.
að gæöi íslensku afurðanna hafa í’ýrnað
meira en góöu hófi gegnir. Sjómenn, starfs-
Aukið aðhald í
Nú þegar efnahagur landsmanna er í
öldudal og úti í hinum stóra heimi rikir því
sem næst kreppuástand, velta menn fyrir
sér meir en áður, hve miklum fjármunum
hið opinbera kastar á glæ vegna of lítils
aðhalds í ríkisrekstrinum. Einstök ríkisfyr-
irtæki geta t. d. eytt milljónum og tugum
milljóna króna í nánast tóma endaleysu,
án nokkurs aðhalds ríkisvaldsins og án
þess að veita landsmönnum bætta þjónustu,
jafnvel þótt það sé tilgangur stofnananna í
flestum tilfellum.
Embættismenn og yfirmenn ríkisstofnan-
anna eru sjálfs síns herrar, og reka þær oft
sem einskonar einkafyrirtæki, og enginn
virðist líta eftir athöfnum þeirra. Þeir þurfa
ekki einu sinni að svara fyrirspurnum al-
mennings eða fjölmiðla um einstök atriði
eða mál, sem viðkomandi stofnanir fjalla
um.
Frumvarp það, sem embættismenn sömdu
fólk vinnslustöðva, útgeröamenn, fram-
leiðendur og aðilar, sem bera ábyrgð á
gæðamatinu og eftirlitinu, hafa slakaö á
kröfunum og sjálfsaganum í þessum efnum.
Það er ekki nóg að tala um nauðsyn þess
að finna nýja markaði fyrir útflutning okk-
ar, eða nýjar framleiðsluvörur fyrir erlend-
an markað, meðan við getum ekki haldið
uppi nauðsynlegum lágmarks gæðakröfum
á hefðbundnum framleiðsluvörum, fyrir
trausta og góða viðskiptavini.
Aldrei fyrr hefur verið jafn nauðsynlegt
og nú, að framleiöa einvörðungu gæðavöru
úr einhverjum bestu hráefnum, sem þekkj-
ast á þessu sviði, til þess aö halda við og
hækka verðið, sem fæst fyrir útfutnings-
vörurnar, er raunar halda í okkur lífinu.
ríkisrekstrinum
um upplýsingaskyldu við fjölmiðla, og ligg-
ur fyrir Alþingi, ber þess glöggt vitni aö
breytingar er ekki að vænta þar á nema þá
til hins verra. Um leið og frjáls blaða-
mennska og auknar upplýsingar um gerðir
ráðamanna eru viðurkennd sem hornsteinn
lýðræðis um öll vesturlönd, er þróunin öfug
hér.
Bruöl ríkir á öllum sviðum ríkisreksturs-
ins og lítið sem ekkert er gert til að koma í
veg fyrir þaö. Þjónustustofnanir hins opin-
bera geta t. d. hækkað útselda þjónustu
sína og/eða framleiðslu án nokkurs fyrir-
vara, meöan verzlunin og iðnaðurinn er
beittur óréttmætum þvingunum, sem miða
að því aö kippa grundvellinum undan
frjálsri verzlun og samkeppni. Það er krafa
þeirra, sem kusu núverandi ríkisstjórn, að
hún verði við óskum almennings og auki
enn aðhaldið í ríkisrekstrinum.
98
FV 6 1975