Frjáls verslun - 01.09.1975, Síða 13
tryggja sér verkefni út næsta
ár og var hljóðið í Þorgeiri
Jósepssyni gott þegar Frjáls
verslun hafði samband við
hann. Sagði hanin að þegar
smíðinni fyrir Bessa yrði lokið
yrði farið í það af ’krafti að
smíða flutningaferju fyrir Sem-
entsverksmiðjuna á Akranesi.
Verður ferjunni ætlað það hlut-
verk að annast sementsflutn-
inga milli Akraness og Reykja-
víkur, en hún verður um 50
metra lönig. Þá sagði Þorgeir að
stöðin væri með miklar og
tímafrekar viðgerðir í gangi og
óttuðust forráðamenn stöðvar-
innar etoki um framtíð fyrir-
tækisins á meðan þetta héldi
áfram að snúast á sama hátt og
það hefur gert til þessa.
Bátalón í Hafnarfirði: Sxóðin
er að ljúka smíði eins af þremur
7 tonna bátum fyrir Þörunga-
vinnsluna og auk þess er verið
að smíða 11 tonma bát, sem ekki
hefur enn fengist kaupandi að.
Þá eru ýmsar meiri háttar við-
gerðir í gangi, m. a. smíði nýs
stýrishúss á 70 tonna bát frá
Hornafirði, en það er smíðað
úr áli. Að sögn Metúsalems
Þórissonar hjá Bátalóni liggur
lítið fyrir um framtíðarverk-
efni og sagði Metúsalem að
starfsmönnum hefði fækkað
heldur að undanförnu af þeim
sökum. Hann kvaðst þó vonast
til að úr þessu rættist fljótlega
Samkvæmt verkáætlunum dönsku ráðgjafanna er skipinu skipt
niður í ákveðna hluta til að fá fram hreinni og hagkvæmari
vinnubrögð. Sérstök verkþjálfun hefur líka farið fram og smið-
unum kynntar ýmsar aðferðir við framleiðslu.
svo að ekki þyrfti að fæktoa
starfsmönnum meira en þegar
er orðið.
Skipasmíðastöð Marselíusar
Bernharðssonar, ísafirði: í stöð-
inni er nú unnið að srníði
stærsta skips sem þar hefur
verið smíðað. Það er skuttogari,
sem er á fjórða hundrað tonn
að stærð. Kaupandi er Einar
Guðfinnsson í Bolungarvík. Bú-
ið er að ganiga frá skrokki
skipsins og vélin komin að hon-
um. Að sögn Marselíusar for-
stjóra hefur stöðin ekki fleiri
föst verkefni framundan og
sagði hann að reksturinn væri
þungur í skauti um þessar
mundir, bæði vegna skorts á
vinnuafli og eins vegna pen-
ingaleysis. Aðspurður sagði
Marselíus að það væri mxm hag-
kvæmara fyrir stöðina að smíða
stór skip, en hins vegar kvaðst
hann setja spurningamerki við
það hvað fiskistofnarnir þyldu
mikið af þessum stórvirku
veiðitækjum sem fjölgar stöð-
ugt á miðunum umhverfis land-
ið.
Bátastöð Jóns Jónssonar,
Reykjavík: Að undanförnu hef-
ur stöðin aðallega fangist við
viðgerðir og nýsmíði minni
Þetta er líka skipasmiði! Tré-
skipasmíðin á þó í vök að verj-
ast ;yegna þess að plastbátarnir
eru orðnir harðir kcppinautar.
báta. Nýlega voru afhentar
tvær fjögurra tonna trillur og
nýbyrjað er á 25 lesta bát.
Bátastöðin er þriggja ára göm-
ul og er búið að smíða þar milli
40 og 50 báta. Stærsti báturinn
sem þar hefur verið smiðaður
er 22 tonn. Jón í Bátastöðinni
sagði að ekki væri ólíklegt að
um einhvem samdrátt yrði að
ræða á næstunni hjá fyrirtæk-
inu, þar sem bátar úr plasti
FV 9 1975
13