Frjáls verslun - 01.09.1975, Blaðsíða 55
SJÖ SAMLÖG AÐILAR
Osta- og smjörsalan var stofn-
uð árið 1958. Stofnendur voru
Samband ísl. samvinnufélaga
fyrir hönd mjólkursamlaga í
eigu kaupfélaganna og Mjólk-
ursamsalan fyrir hönd Mjólkur-
bús Flóamanna og samlaganna
í Borgarnesi og Búðardal. Sam-
tals eru það sjö mjólkursamlög
sem Osta- og smjörsalan annast
sölu fyrir og er það gert á um-
boðsgrundvelli með föstum um-
boðslaunum, sem reiknast til
baka við árslok og endurgreið-
ast ef þau eru ekki notuð. í
fyrra nam velta Osta- og smjör-
sölunnar 1800 milljónum króna
en umboðslaunin hafa verið á
bilinu 3—3V2 % eftir árferði og
umsetningu.
Hjá Osta- og smjörsölumni
starfa um 30—40 manns eftir
árstíma. Fyrirtækið rekur ýmsa
þjónustu við mjólkursamlögin
og starfrsekir í því sambandi
rannsókna- og eftirlitsdeild. Til
dæmis senda búin sýnishorn af
hverjum smjörstrokk allt árið
til rannsóknardeildarinnar, þar
sem gerðar eru á þeim ýmsar
athuganir og geymsluþol reynt.
Þrír ríkisskipaðir dómarar
dæma svo niðurstöðurnar.
Þá sendir Osta- og smjörsalan
starfsmenn sína í mjólkurbúin
úti á landi til eftirlits og leið-
beinendastarfa. Gæðaeftirlit
með ostaframleiðslu er ekki
eins strangt og með smjörgerð-
inni, og stafar það aðallega af
húsnæðisskorti. Þó eru alltaf
athuguð sýnishorni um leið og
osturinn kemur frá búunum til
pökkunar í aðalstöðvum Osta-
og smjörsölunnar við Snorra-
braut.
OSTATEGUNDIRNAR MILLI
25 OG 30
Óskar H. Gunnarsson sagði,
að nú væru framleiddar milli
25 og 30 ostategundir hér á
landi, að smurostunum með-
töldum. Er þetta mjög fjöl-
breytilegt úrval miðað við það
sem var fyrir stofnun Osta- og
smjörsölunnar. Búin áttu áður
í erfiðleikum með að selja fram-
leiðsluna hvert fyrir sig en með
sameiginlegu átaki á því sviði
hefur neyzlan líka aukizt og
grundvöllur myndazt fyrir auk-
inni fjölbreytni. Helztu grunn-
tegundir osta hérlendis eru
svipaðar því sem gerist í osta-
framleiðslu nágrannalanidanna.
Hérlendir mjólkurfræðingar
hafa numið í Danmörku og
Noregi og sækja þangað hug-
myndir. Ágætt samstarf hefur
einnig tekizt við mjólkurbú og
rannsóknarstöðvar í þessum
löndum, t. d. tilraunabúið í
Hilleröd í Danmörku, sem hef-
ur oft veitt mjólkurbúunum
hér mikilsverða aðstoð.
ÁHERZLA LÖGÐ A
VANDAR UMBÚÐIR
Osta- og smjörsalan hefur
lagt áherzlu á að hafa vörur
sínar í vönduðum og smekkleg-
um umbúðum og setja verð-
merkingu og dagsetningu
greinilega á þær. Sagði Óskar
að fallegar og vandaðar um-
búðir hefðu geysimikið að segja
við sölu á vörum Osta- og
smjörsölunnar enda hefðu þær
oft úrslitaáhrif um val manna
t. d. í kjörbúðum.
í vetur er væntanlegur upp-
lýsingabæklingur fyrir kaup-
menn um meðferð á ostum og
smjöri. Ber í því sambandi helzt
að nefna rétt hitastig. í kæli
geymist ostur í neytendaum-
búðum í 3—4 vikur án þess að
hann skaði á nokkurn hátt. í til-
raunaskyni hefur þó ostur verið
geymdur mun lengur i geymsl-
um Osta- og smjörsölunnar, eða
allt upp rmdir heilt ár, án þess
að hann léti hið minnsta á sjá.
í húsakynnum Osta-og smjör-
sölunnar í gömlu mjólkurstöð-
inni við Snorrabraut er rekin
verzlun og þar kaupir fólk heila
og hálfa osta á nokkru lægra
verði en í öðrum verzlunum.
Þar er líka mun meira úrval af
ostum en annars staðar og auk
þess geta viðskiptavinirnir feng-
t>ö
Húsakynni
Osta- og
smjör-
sölunnar
hafa vakið
athygli
fyrir hve
snyrtileg
þau eru.
Til hægri:
Unnið við
pökkun
osta í
pökkunar-
sal fyrir-
tækisins.
FV 9 1975