Frjáls verslun - 01.09.1975, Blaðsíða 69
eftirliti verðlagsyfirvalda og
hafa átt í erfiðleikum vegna
þess. Þetta hefur þó verið sér-
staklega erfitt að undanförnu,
er hráefni til þessara iðngreina
hafa hækkað dag frá degi, en
oft orðið dráttur á að verðlags-
yfirvöld leyfðu hækkanir af
þeim sökum.
Sami vandi hefur herjað á
brauð og kökugerð, í óvenju
miklum mæli, þar sem fram-
leiðsluvörur bakara eru stór
þáttur í vísitölunni. Eins og oft
áður hafa þarfir heilla atvinnu-
greina verið hafðar að engu, til
að vísitöluleikurinn geti gengið
sinn gang.
SÆLGÆTISGERÐIN MJÖG
FJÖLBREYTT
Sælgætisgerð er mjög fjöl-
breytt hér á landi og spáðu
margir illa fyrir henni, þegar
losnaði um innflutningshöft og
tollar lækkuðu, við inngöngu
íslands í Fríverslunarbandalag
Evrópu. Þær hrakspár hafa
ekki rætzt, því að íslensk-
um framleiðendum hefur tekist
að halda miklum markaðshluta,
þrátt fyrir mjög fjölbreyttan
innflutning. í kexgerð hefur
orðið nokkur samdráttur.
Ö1 og gosdrykkjagerð er orð-
in gömul atvinnugrein hér á
landi og hefur dafnað hér vel.
Hún nýtur verulegrar stað-
verndar, vegna þess hve dýrt
er að flytja gosdrykki til lands-
ins í umbúðum, eins og menn
hafa séð, í seinni tíð, eftir að
farið var að flytja þá inn.
Engin þessara atvinnugreina
miðar framleiðslu sína við út-
flutning og hafa því sumir vilj-
að halda því fram að þessi
framleiðsla væri óþörf, hér á
Kexgerðin
hefur orðið
að þola
samdrátt
vegna
erlendrar
samkeppni.
Brauð- og
kökugerð
hefur átt í
erfiðleikum
vegna
verðlags-
ákvæða.
landi. Því fer sjálfsögðu fjarri,
þar sem þær spara mikinn
gjaldeyri, en þær veita einnig
um þrettán hundruð manns
vinnu, sem annars færi fram í
útlöndum. Það er einkennileg
starfsemi, að búa til dæmis
þannig að bakaríum, að þau
eiga í stöðugum erfiðleikum.
Það er ekki líklegt til að búa
þeim fjögur hundruð íslend-
ingum, sem hjá þeim vinna,
góð lífskjör.
En kanske er mikilvægasti
þátturinn í störfum þessara fyr-
irtækja, að halda niðri verði á
erlendum vörum. Telja má
vafalaust, að margar vöruteg-
undir í þessum flokki, væru
miklu dýrari hér á landi, ef
ekki kæmi til samkeppni hér
heima.
SJÁVARFRÉTTIR
BLAB SJÁVARÚTVEGSINS
Áskriftar- og auglýsingasímar: 82300-82302
FV 9 1975
69