Frjáls verslun - 01.09.1975, Blaðsíða 75
ur út. Breytingar á staðnum standa
jafnvel fyrir dyrum.
# Sicjtún, Suðurlandsbraut
Sigtún að Suðurlandsbraut 26 er veit-
inga- og skemmtistaður og var húsið
sérstaklega hannað, með tilliti til þess-
háttar reksturs. Húsið er yfirleitt opið
frá kl. 20 á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldum og eins lengi og
leyfilegt er. Bingó er alltaf á þriðju-
dagskvöldum. Staðurinn rúmar 900 gesti
og eru fjórir barir þar. Hljómsveitir
leika alhliða tónlist og er lágmarksaldur
gesta 20 ár. Aðalsalurinn er leigður
út til fundarhalda og skemmtana. Matur
er ekki seldur út. í ráði er að stækka
staðinni á næsta ári þannig að gesta-
fjöldi geti orðið 1500 en fyrir hendi eru
möguleikar á að stækka hann svo að
rúm verði fyrir 2500 gesti. Yrði staður-
inn þá á fjórum hæðum.
0 Þorskaffi, Brautarholti
Þórskaffi að Brautarholti 20 er
skemmtistaður án vínveitingaleyfis og
þar er ekki seldur matur, en nú er unn-
ið að stækkun staðarins og þegar við-
bótin verður tekin í notkun, verða þar
væntanlega matar- og vínveitingar. Eins
og er tekur staðurinn 339 gesti og er
opinn fjögur kvöld í viku. Hljómsveitir
leika nýju og gömlu dansana. Lág-
marksaldur gesta er 16 ár.
Veitingastaðir með
vínveitingaleyfi
# Hotel Loftleiðir
Hótel Loftleiðir við Reykjavíkurflug-
völl rúmar um 430 hótelgesti, en í hótel-
inu eru tveir veitingastaðir. Veitinga-
búðin, eða terían, er opin frá kl. 05.00 til
20,00 daglega og komast þar 100 gestir
í sæti. Þar eru hverskonar veitingar fá-
anlegar á hóflegu verði og boðið er upp
á rétti dagsins. Blómasalur rúmar um
130 manns og er hann opinn frá kl.
12,00 til 14,30 og frá kl. 19,00 til 23,30.
Þar er lögð áhersla á 1. flokks veitingar
og sérstaklega mælt með köldu borði í
hádeginu alla daga. Við hliðina á blóma-
salnum er stór bar, sem er opinn á lög-
legum tímum. Fjöldi sala er leigður út
til fundarhalda, skemmtanahalds og
veisluhalds og rúma þeir upp í 300
manns. í hótelinu er margvísleg þjón-
usta svo sem snyrtistofa, verslun, sund-
laug, gufubað, hárgreiðslustofa, flugaf-
greiðsla o. fl.
# INfaust, Vesturgötu
Veitingastaðurinn Naust er fyrst og
fremst vandaður matstaður og rúmar
hann 175 gesti, 125 í matsal og 50 á bar
á efri hæð. Staðurinn er opinn frá kl. 10
til 23,30, til kl. 01 á föstudagskvöldum
og til kl. 02 á laugardagskvöldum. Sér-
staklega er þar mælt með Naust special
steik, blönduðum sjávarréttum, körfu-
kjúklingum, humarhölum í s'kel og
franskri lauksúpu og svo að sjálfsögðu
þorramat á þorranum. Tíu manns sjá um
þjónustu. Á fimmtudags-, föstudags- og
laugardagskvöldum er leikin borðhljóm-
list fyrir matargesti og danshljómlist
eftir kl. 10. Lágmarksaldur gesta er 20
ár. Staðurinn er ekki leigður út og mat-
ur er ekki seldur út þaðan.
# Hótel Holt, Bergstaðastræti
Auk þess að vera hótel, sem rúmar
95 gesti, er Hótel Holt einn besti veit-
ingastaðurinn í borginni og rúmar veit-
ingasalurinn 65 gesti. Hann er opinn frá
kl. 7,30 til 10,30, síðan frá kl. 12,00 til
14,30 og loks frá kl. 19,00 til 23,30. Tíu
manns vinna í veitingasal og þar er einn
bar. Sérstaklega er mælt með glóðar-
steiktu lambi, graflaxi, víkingasverði og
tónum hafsins, en gestir geta annars
valið úr fjölbreyttum matseðli. Hótel
Holt selur mikið af veislumat út. Þing-
holt er veislusalur í sama húsi sem
rúmar 20 til 100 manns og er salurinn
leigður út til veisluhalda. Bar er sam-
byggður við salinn og er staðurinn allur
hinn vandaðasti. Þar er einnig hægt að
dansa, ef vill.
FV 9 1975
75