Frjáls verslun - 01.09.1975, Page 42
TILKYNNING
Digítal Equipment Corporation og
Kristján ó. Skagf jörö h.f. tilkynna, að
nú er hægt að bjóða tölvur og tölvu-
bónað frá Digital á íslandi.
Samningur hefur verið gerður milli
Digital og Kristján Ó. Skagfjörð h.f.,
þar sem Skagfjörð tekur að sér að
selja framleiðslu Digital og veita
kaupendum viðgerðar- og hug-
búnaðarþjónustu. Verður sami gæða-
staðall á þjónustunni á Islandi og
Digital veitir viðskiptavinum sinum
um heim allan.
Digital er stærsti f ramleiðandi í heimi
á ,,mini computers" og leiðandi í
,,timesharing" og „real time"
tölvukerfum. Á íslandi verður
aðaláherzla lögð á PDP-8 og PDP-11
framleiðslulinuna, sem um allan heim
er mjög mikið notuð í háskólum,
sjúkrahúsum, rannsóknastofum og á
viðskiptasviðinu.
Bæði fyrirtækin eru sannfærð um
árangursríkt samstarf, sem mun
tryggja kaupendum Digital tækja
örugga þjónustu á íslandi.
KRISDÁN Ó.SKAGRJÖRÐ HF
Hólmsgötu 4 - Reykjavík - P.O. Box 906 - Sími 24120,24125
42
FV 9 1975