Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 91
AUGLÝSING
BIFKEIÐAVERKSTÆOI SÍS:
GEIMERAL MOTORS
vetrarþjónusta
A'ð mati Bjarna Ólafssonar,
þjónustufulltrúa, SÍS, er mjög
nauðsynlegt að bifreiðaeigend-
ur láti yfirfara og stilla bif-
reiðar sínar fyrir veturinn til
að fyrirbyggja skemmdir og ó-
þarfa bilanir á erfiðasta tíma
ársins þegar bifreiðar er einna
mest þörf. Slíkar skoðanir,
sagði Bjarni, eru á boðstólum
fyrir General Motors bifreiða-
eigendur og kallast þessi þjón-
usta „General Motors vetrar-
þjónusta“ og fer fram hjá bif-
reiðaverkstæði SÍS, Höfða-
bakka 9, Reykjavík.
í ofangreindri skoðun er far-
ið yfir sextán atriði í bifreið-
inni. Hún er mótorstillt, skipt
er um kerti, platínur, olíu, loft-
og bensínsíu, ljósastillt o.fl.
Þessi þjónusta hefur gefist
mjög vel og viðskiptamönnum
SÍS bent á að láta yfirfara þarf-
asta þjóninn fyrir hans erfið-
ustu árstíð.
Á bifreiðaverkstæði SÍS eru
starfandi 22 bifvélavirkjar sem
eru sérstaklega sérhæfðir í við-
gerðum á General Motors bif-
reiðum og annast þeir við-
gerðir á G.M. bílum frá V-
Þýzkalandi, Bretlandi og Ame-
ríku.
Bifreiðaverkstæði Sambands-
ins hefur yfir að ráða rúmgóðu
og björtu 1250 fermetra hús-
næði. Verkstæðið rekur al-
mennt bifreiðaverkstæði,
standsetningarverkstæði og
bílaryðvörn, og hefur yfir að
ráða öllum nýtísku stillingar-
tækjum eins og fyrir mótorstill-
ingar, hjólastillingar, vélavið-
gerðir, ásamt öllum verkfærum
sem nauðsynleg eru til við-
gerða á G.M. bílum.
Við spurðum Bjarna Ólafs-
son, að því hvað viðgerð á púst-
kerfi ásamt nýjum varahlutum
mundi kosta á bifreiðaverk-
stæði SÍS og sagði hann okkur
að ef pústkerfi í bifreið af
Vauxhall gerð bilaði kostaði
viðgerð með vinnu og efni kr.
10.000.
Að lokum sagði Bjarni, að
engar algildar reglur væri
hægt að gefa bifreiðaeigendum
um hve oft þeir ættu að endur-
nýja bifreiðir sínar til þess að
tapa ekki á viðskiptunum. Til
þess að halda bíl í góðu ásig-
komulagi og til þess að tryggja
hátt endursöluverð væri nauð-
synlegt að bifreiðin fengi sem
besta umhirðu. Ætti hver ein-
asti bifreiðaeigandi að láta
framkvæma reglubundnar
skoðanir á bifreið sinni.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
er vettvangur 80 þúsund meðlfma íþrótta- og
ungmennaíélaga víðs vegar um landið.
ÍÞRÓTTABLADIÐ
LAUGAVEGI 178. — SÍMI 82300.
FV 10 1976
87