Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 49
Ólafur hafnarvörður.
viðbótin þversum norður af
bryggjuendanum. Við þessa
viðbót varð kyrrara á höfninni
og 'hættuminna fyrir smábát-
ana. — Ég tel þó að hér þurfi
að bæta um betur, sagði Ólaf-
ur. Það þarf fyrst og fremst að
lengja hafnargarðinn hérna
norðan við til þess að loka
hafnarmynninu betur. í norð-
vestanátt verður ennþá of óró-
legt í höfninni fyrir allar trill-
urnar. Þegar skuttogari verður
fainn að koma hér í höfnina er
vont að hafa alla þessa smá-
báta hér fyrir. Nú það hefur
svo sem ýmislegt verið gert
hér við höfnina til að undir-
búa komu togarans. Það er bú-
ið að leggja rafmagn fram eftir
allri bryggju svo nú er hægt að
fá rafmagn í alla bátana, sem
ekki var hægt fyrr. Svo er bú-
ið að koma fyrir nýrri vatns-
leiðslu, sem er með rafmagns-
hitun svo hún frýs ekki. Þá er
verið að koma hér upp nýrri
flóðlýsingu.
Meðan rætt var við Ólaf
sigldi Tungufoss inn í höfnina
og lagðist við hafnargarðinn. Að
sögn Ólafs var skipið með ein-
hvern flutning fyrir Kröflu-
virkjun og þar með var Ólafur
rokinn, því hans biðu skyldu-
störf við afgreiðslu skipsins.
Saumastofan Prýði hf.:
Saumar fatnað til útflutnings
í samvinnu við S.I.S.
Russlandsviðskipti skapa mikla vinnu
— Við höfum fulla trú á því að rekstur fyrirtækis sem þessa eigi fullan rétt á sér og sé þegar búinn
að sanna gildi sitt, sagði Guðmundur Hákonarson, framkvæmdastjóri saumastofunnar Prýði hf. á
Húsavík þegar Frjáls verslun heimsótti hann fyrir skömmu. — Reksturinn hérna hefur gengið
mjög vel síðustu tvö árin, hélt G'uðmundur áfram, — einkum vegna aukinnar eftirspurnar á fram-
leiðsluvöru okkar. Það hefur líka verið mikið lagt í markaðskönnun og kynningu á íslenskum
og Álafossi. Annars hafa við-
skipti við Rússland útvegað
okkur mikla vinnu hér. Rússar
pöntuðu 60.000 barnajakka frá
íslandi og var um helmingur
þeirra saumaður á norðlensk-
um saumastofum á þessu ári.
SAMVINNA UM INNKAUP
Á VÉLUM
Sauma- og prjónastofur á
Norðurlandi 'hafa með sér sér-
stök samtök, sem stofnuð voru
fyrir tveimur árum og eru 6
fyrirtæki aðilar að samtökun-
um. — Við höfum sérstakan
framkvæmdastjóra fyrir þessi
samtök, sagði Guðmundur, —
og sér hann um ýmis sameigin-
leg innkaup, sölusamninga og
önnur sameiginleg hagsmuna-
mál. Núna eru samtökin t.d. að
leita fyrir sér um sameiginleg
FV 10 1976 49
ullarfatnaði, en við framlciðum svo til eingöngu slíkan fatnað.
Saumastofan Prýði hf. var
stofnuð árið 1971 og eru hlut-
hafar 26. Langstærsti hluthaf-
inn er Húsavíkurkaupstaður,
verkalýðsfélagið á hluta og síð-
an einstaklingar. — Við byrj-
uðum á því að framleiða fatn-
að fyrir Hagkaup. Núna hefur
þetta þróast þannig að við
framleiðum svo til eingöngu
fatnað til útflutnings í sam-
vinnu við SÍS. Við fáum mikið
af okkar hráefni frá SÍS og
mikið af hönnuninni fer fram
hjá hugmyndabanka SÍS á Ak-
ureyri. Núna erum við að fram-
leiða fyrir Evrópu og Ameríku-
markað og er þar aðallega um
kven- og barnafatnað að ræða
svo sem jakka, kápur og slár.
Ullarvoðin sem við erum að
sauma úr núna er framleidd á
Blönduósi úr garni frá Gefjun
Guðmundur Hákonarson
framkvæmdastjóri.