Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 67
Iðnvogar
Fyrirtækin þar hafa um
800 manns í þjónustu sinni
Rætt við Halldór Olafsson, formann Iðnvoga
Nú vinna alls 800 manns í
86 fyrirtækjum í svokölluðu
Iðnvogahverfi í Reykjavík, en
þetta hverfi afmarkast af Súð-
arvogi, Dugguvogi. Kænuvogi,
Tranavogi og hluta Elliðavogs.
Þetta er mikið athafnasvæði
hvers konar iðnfyrirtækja og
starfar 'um % hluti fyrirtækj-
anna á þessu svæði að fram-
leiðslu, en % eru þjónustufyr-
irtæki.
Fyrirtæikin hafa myndað
með sér félagsskap til að vinna
að sameiginlegum hagsmuna-
málum sínum. Hlaut félagið
nafnið Iðnvogar og er Halldór
Ólafsson, bólstrari og fram-
kvæmdastjóri Sedrus húsgagna
formaður í þessu félagi. Við
hann ræddi F.V. um helstu
hagsmunamál félagsins og að-
dragandann að stofnun þess.
Iðnvogahverfið samanstend-
ur af mörgum fyrirtækjum
með smáan rekstur og allt upp
í stórfyrirtæki. Hverfið er nú
nær fullbyggt, aðeins eru ör-
fáar lóðir, sem ekki hefur ver-
ið byggt á.
BYGGINGALÓÐIR ÓDÝRAR
Á ÞEIM TÍMA SEM BYGGT
VAR A
Um 1954—55 var hafist
handa um byggingu fyrstu hús-
arma, en á þeim tíma voru
byggingarlóðir mjög ódýrar.
Eitt af fyrstu fyrirtækjunum,
sem hófu starfsemi í hverfinu
var Tækni hif., en einnig tóku
Fínpússningagerðin og Gunnar
Guðmundsson hf. til starfa um
svipað leyti.
Sagði Halldór, að upphaflega
hefði átt að reisa húsin á einni
hæð með risi og voru þau ætl-
uð fyrir pípulagningamenn,
múrara og húsasmiði til að
geyma verkfæri yfir nóttina.
Leyfi fékkst til að breyta hús-
unum og auk þess að hefja þar
annars konar rekstur. Sagði
Halldór ennfremur, að um lán
til iðnaðarbygginga hefði ekki
verið að ræða á þessum árum.
SAMEIGINLEG NÆTUR-
VARSLA í HVERFINU
Mikið var brotist inn og eyði-
lagt í hverfinu, enda var þar
nær engin lýsing, aðeins 4
ljósastraurar í öllu hverfinu.
Um þverbak keyrði eina nótt-
ina, er brotist var inn í 14 fyr-
irtæki. Sagði Halldór, að eftir
þetta hefði komið maður að
máli við forráðamenn fyrir-
tækjanna og boðist til að vakta
yfir nóttina. Upp úr þessu var
stofnað félagið Iðnvogar til að
standa að sameiginlegri nætur-
vörslu og einnig til að vinna
að öðrum hagsmunamálum.
Nú starfa 3 vaktmenn í Iðn-
vogahverfinu yfir nóttina og
auk þess er þar vaktað allar
helgar og helgidaga. Sagði
Halldór, að algjör breyting
hefði orðið eftir þetta.
Farið var að setja upp ljósa-
staura og lagfæra götur og nú
er einnig verið að vinna við
gangstéttarlagningu.
UNNIÐ AÐ MÖRGUM HAGS-
MUNAMÁLUM FYRIRTÆKJ-
ANNA
Annað hagsmunamál félags-
ins er að fá strætisvagnaferðir
inn í Iðnvoga, en hingað til
hafa Strætisvagnar Reykjavík-
ur ekki ekið inn í hverfið. Um
þetta mál er m.a. rætt í Iðn-
vogatíðindum, en það er blað,
$em félagið gefur út. Er þar
ritað um ýmis hagsmunamál
og einnig er í því fyrirtækja-
kynning. Sagði Halldór, að
samband hefði verið haft við
forráðamenn SVR, en ekkert
hefði komið út úr þeim málum
enn.
Sagði Halldór, að stofnað
hefði verið félag innan Iðnvoga
til að sækja um byggingarlóðir
á svæði sem er áframhald af
Súðarvogi. Var sótt sameigin-
lega um 52000 m2 gólfflöt und-
ir iðnað. Ekki fékkst hljóm-
grunnur fyrir þessu, og var lóð-
unum úthlutað til annarra að-
ila.
Ennfremur sagði Halldór, að
þeim sem reka fyrirtækið í
Iðnvogum hefði fundist þeir
hafa orðið fyrir ranglæti er ak-
greinaskiptingu á gatnamótum
Elliðavogs og Suðurlandsbraut-
ar var breytt, þannig að alls
ekki er hægt að komast inn í
hverfið eftir þeirri leið og
þarf því að taka á sig langan
krók ef komast á inn í 'hverfið
frá sumum borgarhlutum.
Sagði Halldór, að þeir hefðu
bent á auðvelda leið inn í
hverfið með svipuðum hætti
og áður var. Hins vegar hefur
verið ákveðið að koma upp
skilti á gatnamótum Skeiða-
vogs og Suðurlandsbrautar,
þar sem umferð verður leið-
beint inn í hverfið. Að lokum
sagði Halldór, að frágangur á
hverfiniu væri einnig mikið
hagsmunamál félagsins og iðn-
fyrirtækjanna í Iðnvogum.
FV 10 1976
63