Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 21
Bandaríkin
Þar safna menn gömlum bílum,
sem seljast á háu verði
Fyrstu árgerðir af Corvair og IVIustang seljast á 3500 dollara eða meira
E£ mönnum finnast verðin á
nýjum bílum vera komin fram
úr öllu hófi væri fróðlegt að
kynna sér, hvað er að gerast í
sambandi við söl'u á eldri mód-
elum. Vestur í Bandaríkjunum
fer verð á ýmsum gerðum gam-
alla bíla stig hækkandi og
verða bér rakin nokkur dæmi
um þróunina í þessu efni.
Ford Phaeton, árgerð 1936,
sem kostaði 600 dollara nýr og
skipti um eigendur 1955 fyrir
Ford
Phaeton
kostaði 600
dollara
nýr árið
1936.
Selst nú á
8000
dollara.
500 dollara er nú talinn garnga
á 8000 dollara á bílamarkaði
vestan hafs.
Bnskur MG Roadster árgerð
1948, sem þá var seldur í
Bandaríkjunum fyrir 2400 doll-
ara kostar þar nú 5000 til 7000
dollara eða þaðan af meira.
í stuttu máli hefur markað-
urinn fyrir gamla bíla styrkzt
alveg geysilega, ekki aðeins í
Bandaríkjunum heldur um all-
an 'heim. Þetta ihefur haft í för
með sér, að iðngreinar, sem
fást við viðgerðir og lagfæring-
ar á gömlum bílum hafa eflzt
mikið, sömuleiðis er mikill
fjörkippur kominini í varahluta-
sölu og umboðsverzlun með
þessar gömlu árgerðir.
AFTURHVARF TIL FOR-
TÍÐARINNAR
Einu sinni gerðu auðkýfing-
ar sér til dundurs að halda við
gömlum bílum. Nú er hópur
þessara áhugamanna skipaður
fólki úr öllum stéttum. William
E. Bomgardner, sem er fram-
kvæmdastjóri áhugamannahóps
um varðveizlu gamalla bíla í
Bandaríkjunum hefur sett
fram sínar kenningar um or-
sakir fyrir þessu: „Þetta er út-
rás fyrir þrá til afturhvarfs til
gamalla tíma. Hún fer saman
við meiri tómstundir, aukin
fjárráð og viðleitni fólks til að
fjárfesta í hlutum, sem standa
af sér áhlaup verðbólgunnar.“
Bílasali nokkur gat þess enn-
fremur að eigendur gömlu bíl-
anna, sem nú eru í tízku, væru
fyrst og fremst á aldrinum frá
tvítugu og til fertugs. Það er
kenning þessa bílasala, að um
leið og fólk kemst í sæmileg
efni fari það að langa í þá bíla,
sem algengastir voru í bernsku
þess eins og t.d. árgerðir frá
sjötta og sjöunda áratugnum.
Þetta muni vera skýringin á
því, að bílar frá þessum árum,
sem safnarar hafa ekki litið við
séu nú að ná vinsældum.
Sem dæmi um þetta má
nefna, að vaxandi eftirspurn er
eftir Chervolet Corvair og
fyrstu gerðum af Ford Mus-
tang, sem báðir eru frá síðasta
áratug. Vel með farinn Corvair-
blæjubíll, sem kostaði nýr um
2500 dollara árið 1966 er end-
urseldur fyrir að minnsta kosti
sömu upphæð nú. Staðreyndin
er sú, að margar svipaðar gerð-
ir seljast á 3500 dollara og sér-
fræðingar halda, að verðið
muni hækka óðfluga.
Ford Thunderbird og Chevro-
let Corvette síðan á miðjum
sjötta áratugnum eru sérstak-
lega eftirsóttir. Fyrstu árgerðir
af Thunderbird, sem kostuðu
liðlega 3000 dollara árið 1955,
þegar þeir voru nýir, seljast
nú á 5000—7000 dollara og
dæmi eru um að stöku bíll hafi
farið á 11000 dollara.
Ford Thunderbird árgerð 1955 selst nú á tvöföldu eða þreföldu
upprunalegu verði, sem var 3000 dollarar.
FV 10 1976
21