Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 20
Þeir munu halda áfram til- raunum til hermdarverka á hernámssvæðum ísraelsmanna og innan Ísraelsríkis sjálfs. Þeir munu líka gera allt sem þeir geta til að vinna skemmd- ar verk annars staðar í heim- inum. Ég get bætt því við, að ísra- elsmenn telja það skyldu sína að berjast með öllum tiltæikum ráðum gegn hryðjuverkamönnr um og þá ekki aðeins með því að sýna viðbrögð, þegar þeir reiða til höggs. Þetta er sífellt stríð og við teljum það skyldu okkar að láta til skarar skríða gegn þeim hvar sem er og hve- nær sem er, ef við álítum að það verði til að skerða árásar- mátt þeirra. — Þegar bardagar í Líbanon eru hafðir í huga og vaxandi innbyrðis deilur Araba, búizt þér þá við því, að ísraelsmenn fái að vera í friði um sinn? — Ekki ráðlegg ég neinum að spá fyrir um friðarharfur. Breyting á afstöðu Araba til ísraels gerist aðeins á löngum tíma. Átökin í Líbanon eiga enn eftir að standa í langan tíma. Lausn fæst ekki í þeim málum fyrr en Palestínumenn hætta að skipta sér af málefnum Líb- anon. í Líbanon verður enn um sinn brennidepill pólitískra og hernaðarlegra átaka innan fylkingar Araba. Stríðið hefur leitt til skiptingar landsins milli kristinna og múhammeðs- trúarmanna. Eftir því sem stríðið dregst á langinn gerir sjálfstjóm þessara landshluta endursameiningu Líbanon erf- iðari í framtíðinni. Ég get ekki ímyndað mér, að Sýrlendingar fallist á skiptingu landsins eftir trúarbrögðum né heldur að þeir sætti sig við sigur vinstrimanna. Á hinn bóginn held ég að írak og Líbía muni ekki fella sig við stefnu Sýrlands. fsraelsmenn mega ekki gera nein mistök, sem gæfu Arab- um tilefni til að sameinast, og gegn ísrael geta þeir ekki sam- einazt af neinu jákvæðu. Á uið 09 drcif Brezku verksmiðjurnar, sem framleiða lúxusbílinn Rolls Royce, eru svo önnum kafnar, að þriggja ára bið er nú eftir sumum gerðum. Þetta gerist þrátt fyrir að verðið á bílunum gctur farið talsvert yfir 50 þús. dollara. í fyrra keyptu Bandaríkjamenn einir 1085 Rolls Royce-bíla en 765 árið áður. Aðeins Bretar sjálfir kaupa fleiri. Framleiðslan var 3134 bílar í fyrra og nú. hafa verksmiðjurnar ákveðið að auka framleiðsluna um 30% snemma á næsta ára- tug. Fjármálamenn í Evrópu spá nú margir hverjir í fasteignakaup á meginlandinu. í Vestur-Þýzka- landi, Sviss og Hollandi er mikið af óseldum íbúð- um og skrifstofuhúsnæði. Ekki er búizt við að á- standið breytist að neinu marki á næstunni. í Frankfurt er t.d. hægt að kaupa hálftóm skrifstofu- hús fyrir 50% af því verði sem sett var upp í fyrra. Japanir hafa nú um nokkurra ára skeið rætt mögu- leika á að flytja út heilar verksmiðjur til Víetnam, þar á meðal áburðarverksmiðjur og plastverksmiðj- 'ur. Sanyo Electric fyrirtækið telur möguleika á að geta hafið að nýju framleiðslu útvarpstækja í verk- smiðju sinni í Saigon, sem N-Víetnamar tóku árið 1975. Japönsk fyrirtæki sjá jafnvel fram á samn- inga við Víetnam um kornræktaráætlanir og olí'u- borun með ströndum fram. Fjárfesting í sænskum iðnaði er áætluð 15.100 milljónir sænskra króna fyrir árið 1976, sem er aukning að magni til um 2% miðað við 1975. Þetta kemur fram í nýlegri athugun hagstofu sænska rík- isins. Á næsta ári er búizt við auknum fjárfesting- um er nemi 2—3%. Fjárfestingar sænska iðnaðar- ins á þessu ári eru 2% minni í byggingum en í fyrra, en á móti hefur fjárfesting í vélum aukizt um 4%. Mest ber á aukningum hjá fyrirtækjum í matvælaiðnaði, trjávöru- og efnaiðnaði. Þrjú norsk framleiðslufyrirtæki á sviði rafeinda- tækni hafa tekið höndum saman um rekstur út- flutningsfyrirtækis til að styrkja stöðu sína á er- lendum mörkuðum. Þessi fyrirtæki eru NERA, Gustav A. Ring og Jotron Elektronik. Þess’u fyrir- tæki er ætlað að annast inilligöngu um sölu erlend- is á margvíslegum útbúnaði fyrir flugvelli, lcnd- ingartæki frá NERA, radioscnda og móttakara frá Jotron og fjarskipta- og stjómtæki frá Gustav A. Ring. 20 FV 10 1976
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.