Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 9
Sögur eru sagðar af á-
formum Sambandsins um
stóraukin umsvif á höf-
uðborgarsvæðin'u. Af
hálfu þess eru nú gerðar
tilraunir til að auka við-
skipti við smásöluverzl-
anir í Reykjavík og ná-
grcnni frá vörudrcifingar-
miðstöð í Sundahöfn. Hef-
ur kaupmönnum verið
boðið upp á mjög hag-
stæð Iánsviðskipti, ef þeir
taki vörur frá Samband-
inu. Þá hefur komið til
tals að Sambandið setti
upp verzl’un með ullar-
vörur og minjagripi í
Hafnarstræti 5 en tvær
sams konar verzlanir eru
þar á næstu grös'um, ís-
lenzkur heimilisiðnaður í
vestanverðri götunni og
Rammagerðin í henni
austanverðri.
Það er ekki bara Al-
þýðubankinn, sem hefur
veitt mönnum lán án þess
að krefjast haldgóðra
trygginga. Menn virðast
geta slegið margra millj-
ón króna lán gegn veði i
hinu og þessu — jafnvel
dálítilli holu í leigulóð
hjá borginni. Þannig hef-
ur húsbyggjandi nokkur
fengið bankalán út á
byrjunarframkvæmdir á
íbúðahúsalóð þó svo að
enginn lóðarsamningur
væri fyrir hendi enda
gatnagerðargjöldin ó-
greidd. Búið var hins veg-
ar að taka nokkrar
skóflustungur og munu
þær hafa verið lagðar til
grundvallar við þinglýs-
ingu veðs í umræddri
„fasteign".
Fyrir nokkru barst
Flugleiðum orðsending
Ingram-hótels í Glasgow,
þar sem gcfið var til
kynna að íslendingar
væru ekki lengur neinir
sérstakir aufúsugestir á
þeim bæ. íslenzkar ferða-
skrifstofur og Flugleiðir
eiga mikil viðskipti við
hótelið og hafa sent
marga tugi farþega til
gistingar þar í sérstökum
helgarferðum, sem nú eru
farnar til Skotlands. í
einni slíkri gekk íslenzk-
ur gestur berserksgang að
næturlagi og hringdi öll-
um brunaboðum, sem á
vegi hans urðu. Slökkvi-
lið Glasgo-wborgar sendi
alla tiltæka menn og bíla
að hótelinu og er ekki að
vita nema Fl'ugleiðir
verði að borga útkallið.
Eigendur Ingram hafa
hins vegar Iátið óánægju
sína í ljós með harðórðu
bréfi.
— • —
íslenzkur embættis-
maður, sem sótti fund al-
þjóðabankans í Manila
fyrir skömmu hafði við-
dvöl í Moskvu á leiðinni
heim til íslands. Þar fór
hann á matsölustað á
hóteli, sem ætlað er út-
lendingum. Þegar reikn-
ingurinn kom tók 'hann
upp nokkra dollara og
fékk þjóninum en beið
síðan eftir að fá mismun-
inn greiddan til baka.
Eftir nokkra stund kom
þjónninn aftur að borð-
inu og rétti fslendingnum
tyggjópakka. — Þessi
pakki er jafnvirði 15
senta, gjörið þér svo vel,
sagði sá sovézki og sneri
sér að næsta gesti.
•
Ferðamálafröm'uðir
hafa orðið varir við nokk-
uð kvíðvænlega þróun í
íslenzkum ferðamálum.
Ráðstefnuhald hér á
landi, einkanlega norræn-
ir fundir og þing, verða
æ umfangsmeiri í ferða-
mennskunni hér og
fást af þeim drjúgar tekj-
ur. Svo virðist þó sem er-
lendir aðilar taki stærri
skerf af tekjunum í sinn
hlut en eðlilegt getur tal-
izt, því að í ljós hefur
komið, að flest fyrir-
greiðsla við norræna þátt-
takend'ur á ráðstefnum
hérlendis er skipulögð
af erlendum ferðaskrif-
stofum en ekki þeim ís-
lenzku. Þannig er talið,
að ein ferðaskrifstofa í
Danmörku hafi með að
gera um 80% alls ráð-
stefnuhalds, sein fram fer
hér á landi.
— • —
Kristinn Finnbogason,
framkvæmdastjóri Tím-
ans, er í ritstjóraleit
þessa dagana en hefur
ekki árangur sem erfiði.
Hann' er búinn að sækj-
ast mjög eftir að fá Magn-
ús Bjarnfreðsson, fyrr-
verandi sjónvarpsfrétta-
mann í ritstjórastarf, en
Magnús sýnir því ekki á-
huga. Síðustu fréttir
herma, að Kristinn hafi
leitað til Jónasar Guð-
mundssonar, rithöfundar
og listmálara og sé Jónas
enn að hugsa sig um.
— • —
Sala Sambandsins á ó-
unnum gærum til Pól-
lands hefur sem kunnugt
er mælzt illa fyrir hjá
innlcndum framleiðend-
um, sem vildu kaupa slíkt
hráefni til úrvinnslu.
Gærurnar eru seldar Pól-
verjum á lágu verði en í
samningum við Samband-
ið munu Pólverjar hafa
heitið því í staðinn að
kaupa héðan aðrar vörur
á mun hærra verði en áð-
ur.
FV 10 1976
9