Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 69
Húsasmiðja Snorra Halldórssonar
Framleiða einingahús
úr timbri og steinsteypu
— Aðeins reist úti á landi
40—50
hús verða
framleidd
í Húsa-
smiðjunni
á þessu ári.
Hér er
vcrið að
vinna við
að smíða
sperrur
í eitt
húsanna.
Eitt stærsta fyrirtækið í Iðn-
vogum, að flatarmáli og starfs-
mannaf jölda er Húsasmiðja
Snorra Halldórssonar, en fyrir-
tækið hefur til 'umráða 2ja
hektara landssvæði, og á þessu
svæði hafa risið ýmsar bygg-
ingar s.s. verksmiðjuhús, skrif-
stofuhús, birgðageymslur og
lagerhúsnæði. Starfsfólk Húsa-
smiðjunnar er um 50 manns.
Snorri stofnaði Húsasmiðj-
una árið 1947 og hófst starf-
semin í gamla flugskýlinu í
Vatnagörðum. Árið 1957 flutti
fyrirtækið að Súðarvogi 3 og
skömmu síðar keypti Snorri
lóðina að Súðarvogi 5. Kom
þetta m.a. fram í viðtali sem
F.V. átti við Snorra.
VERKSMIÐJUFRAMLEIÐA
TIMBUR- OG STEINSTEYPU-
EININGAHÚS
Húsasmiðjan flytur inn timb-
ur, stál og aðrar byggingarvör-
ur aðallega frá Póllandi og
framleiðir úr timbrinu fleka,
sem síðan eru notaðir í timbur-
einingahús. Þegar Snorri hóf
þessa framleiðslu mætti hann -
víða fyrirstöðu, en þá var slík
framleiðsla nýjung hér á landi.
Smátt og smátt breyttist þetta
og sagði hann að alltaf væri
nóg af verkefnum.
Flekarnir eru algjörlega
framleiddir í Húsasmiðjunni
en síðan eru þeir fluttir á bygg-
ingarstað, þar sem 'húsin eru
reist upp á 8'—12 dögum og
gerð íbúðanhæf. Timburein-
ingahúsin hafa aðallega verið
reist úti á landsbyggðinni, aðal-
lega íbúðarhús, en einnig hefur
verið reist nokkuð af slíkum
húsum við skóla.
Um síðustu áramót keypti
Húsasmiðjan réttindi af Verk
hf. til að framleiða og reisa
steinsteypueiningahús, og fer
sú framleiðsla fram við Fífu-
hvammsveg í Kópavogi. Mikil
eftirspurn hefur verið eftir
báðum gerðum húsanna og
verða reist 40—50 timbur- og
steinsteypueiningahús á þessu
ári.
GERÐ ÍBUÐARHÆF Á
8—12 DÖGUM
Verksmiðjuframleiðsla hús-
eininga er mun ódýrari en að
reisa hús á hinn hefðbundna
hátt, að sögn Snorra. Sagði
hann það há verksmiðjufram-
leiðslu í byggingariðnaði að
borga þyrfti háan söluskatt, og
væri þessi framleiðsla þannig
ströffuð af yfirvöldum, og enn-
fremur væri hvergi gert ráð
fyrir timbur, eða steinsteypu-
einingahúsum í nokkru skipu-
lagi.
Það tekur einungis 8-12 daga
að reisa steinsteypueiningahús-
in og gera íbúðarhæf, en auk
íbúðarhúsa eru slík stein-
steypuhús mjög hentug sem
útihús, fiskverkunarstöðvar og
spennistöðvar t.d.
Auk einingahúsannna var
farið út í á þessu ári, að fram-
leiða stiga í hús s.s. fjölbýlis-
hús og einnig útitröppur. Sagði
Snorri, að þessi framleiðsla
hefði gefist nokkuð vel og sagð-
ist hann ennfremur vera að
gera tilraun með að einangra
steinhúsin að utan með því að
setja vatnskápu utan á þau,
sem getur verið timbur eða
önnur efni.
FV 10 1976
65