Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 16
Fjárlagafrumvarpið
IVIikið lánsfé til
raforkuframkvæmda
Til Kröfluvirkjunar þarf að afla 2,8 milljarða króna
í athugasemd með fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1977 er að finna yfirlit yfir lánamál ríkisins. Niður-
stöðutala á úthlið lánahreyfinga er 10.360 m.kr. og á innhlið 9.608 m.kr. þannig að fram kemur 752
m.kr. halli, sem jafnað'ur er með afgangi á rekst rarreikningi. Lántökur, sem ráðgerðar eru innan-
lands, eru byggðar á lögum um happdrættislán ríkissjóðs fyrir hönd Vegasjóðs vegna framkvæmda
við Norðurveg og Aust'urveg og á heimild í 6. gr. fjárlagafrumvarpsins ásamt 3. gr. laga nr. 77/
1974 um skattlega meðferð verðbréfa o.fl., sem ríkissjóður selur innanlands. Heimildar fyrir er-
lcnda lántöku verður leitað í sérstöku lagafrum varpi.
VEGAGERÐ
Gert er ráð fyrir 1.500 m.kr.
lánsfjáröflun til vegagerðar.
Með þessu móti yrðu útgjöld
vegagerðar í heild 5.400 m.kr.,
sem er svipað framkvæmda-
magn og verður á árinu 1976,
en skipting þess fjár verður að
venju ákveðin í vegáætlun,
sem ætlunin er að afgreidd
verði samhliða fjárlögum.
LANDSHAFNIR
Hér er um að ræða fram-
kvæmdir við landshöfnina í
Njarðvík, 55 m.kr. til að ljúka
við gerð grjótgarðs, og við
landshöfnina í Rifi 35 m.kr. til
áframhalds framkvæmda þar.
Fjáröflun til landshafna lækk-
ar um 210 m.kr. frá 1976, vegna
þess að framkvæmdum í Þor-
lákshöfn er lokið.
HAFNARGERÐ
VIÐ GRUNDARTANGA
Kostnaðaráætlun um þetta
verk er um 650 m.kr., en 50
m.kr. verður aflað árið 1976
vegna undirbúningskostnaðar.
Af þeim 600 m.kr., sem eftir
eru, koma 450 m.kr. í hlut rík-
isins og 150 m.kr. í hlut við-
komandi sveitarfélaga. Er gert
ráð fyrir að ríkissjóður annist
fjáröflun vegna sveitarfélaga-
hlutans.
ORKUSTOFNUN VEGNA
JARÐHITARANNSÓKNA
Þær jarðhitarannsóknir, sem
hér um ræðir, eru svonefndar
hitastigulsboranir, sem ráðgert
er að fram fari víða um land í
þeim tilgangi að leita að jarð-
hita á svæðum, þar sem engin
ummerki um jarðhita eru
greinileg á yfirborði. Eru 40
m.kr. ætlaðar til þessa verks.
RAFMAGNSVEITUR RÍKIS-
INS, ALM. FRAMKVÆMDIR
Alls er ráðgert að afla 1.619
m.kr. til almennra fram-
kvæmda RARIK. Er það 196
m.kr. hærri fjárhæð en 1976,
en þá var auk þess um 317 m.
kr. fjáröflun að ræða vegna
skuldagreiðslna. Skipting þessa
fjármagns á helztu verkefni er
þessi: Hofsárveita til lúkningar
framkvæmda 25 m.kr., Bessa-
staðaárvirkjun til skulda-
greiðslna 70 m.kr., stofnlínur
354 m.kr., aðveitustöðvar 760
m.kr., innanbæjarkerfi 300 m.
kr., dísilstöð (færanleg) 25 m.
kr., vélar og tæki 60 m.kr. og
meiri háttar viðaldsverk 60 m.
kr. Auk lánsfjár til að standa
undir þessum framkvæmdum
koma til tekjur af heimtaugar-
gjöldum, sem áætlaðar eru 35
m.kr.
SVEITARAFVÆÐING
Lánsfjáröflun til sveitaraf-
væðingar er áætluð 200 m.
kr. Auk þess er gert ráð fyrir,
að hluta Orkusjóðs af olíugjaldi
verði m.a. varið til styrkingar
dreifikerfis í sveitum.
NORÐURLÍNA
Heildarkostnaður við Norð-
urlínu á árinu 1977 er áætlaður
1.144 m.kr., þar af greiðsla af-
borgana og vaxta af lánum,
svonefnd fjármagnsútgjöld, 286
m.kr. og framkvæmdir 858 m.
kr. Helztu framkvæmdaliðir
eru lúk'ning línulagna 85 m.kr.,
og aðveitustöðvar við Vatns-
hamra 307 m.kr., Laxárvatn
247 m.kr. og á Aikureyri 219
m.kr.
KRÖFLUVIRKJUN:
a. Stöðvarhús og vélar. Nauð-
synleg fjáröflun árið 1977 er
l. 989 m.kr. Þar af eru fjár-
magnsútgjöld áætluð 851 m.kr.
og lúkning framkvæmda 1.138
m. kr.
b. Borholur og aðveitukerfi.
Fjáröflun er ráðgerð samtals
814 m.kr. þar af fjármagnsút-
gjöld 242 m.kr. og fram-
kvæmdakostnaður 572 m.kr. Er
þá gert ráð fyrir, að boraðar
verði fimm viðbótarho'lur á ár-
inu 1977, þannig að í lok þess
árs verði til 11 holur, og að síð-
ustu 3 holurnar verði boraðar
á árinu 1978.
c. Lína Krafla-Akureyri. Fjár-
öflun til þessa verks er áætluð
155 m.kr., sem er að megin-
hluta, eða 125 m.kr., fjármagns-
útgjöld, en 30 m.kr. eru ætlað-
ar til frágangs línunnar.
JÁRNBLENDIVERKSMIÐJA
Vegna hlutafjárframlags og
fjármagnsútgjalda er á þessu
stigi áætlað að þurfi 897 m.kr.
á árinu 1977 til járnblendiverk-
smiðjunnar, þar af er hluta-
fjárframlag 680 m.kr. og fjár-
magnsútgjöld 217 m.kr.
16
FV 10 1976