Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 25
Bifreiðastöft Islands:
Fyrirhugað að opna nýja
ferðaskrifstofu
„Þaft ætti engan aft saka, þött svo færi aft einhverjir nýir markaftir opn-
uftust t.d. á IMorfturlöndum”, segir Kristjón Kristjónsson forstjóri
Umferðarmiðstöðin, þar sem BSÍ hefur skrifstofur og afgreiðslu
bíla sinna.
Nú eru á landinu 28 sérleyfis-
hafar á 50 sérleyfisleiðum. Sér-
lcyfishafar þessir eiga 139 bif-
reiðir með samtals 5463 sætum.
Flestir sérleyfishafanna hafa af-
greiðslu hjá Bifreiðastöð Is-
lands, en það er einmitt hlut-
verk BSÍ að sjá um afgreiðslu
fyrir þá. Ferðir frá BSÍ ná frá
Egilsstöðum um Hornafjörð til
lieykjavíkur, um allt Suður- og
Vesturland, á Snæfellsnes, til
Vestfjarða og allt norður til
Akureyrar. Alls eru sérleyfis-
kílómetrarnir 6.991.
Kristjón Kristjónsson er foi'-
stjóri Bifreiðastöðvar íslands
og við hann ræddi F.V. um mál-
efni sérleyfishafa.
300.000 FARÞEGAR FLUTTIR
TIL EÐA FRÁ BSÍ Á
SÍÐASTA ÁRI
Nýting bifreiðanna hefur ver-
ið mjög svipuð ifrá 1969—1976
eða frá 28'—32,4%. Á síðasta
ári voru fluttir til og frá Bif-
reiðastöð fslands um 300.000
farþegar, og vega þar hæst far-
þegaflutningar til og frá Kefla-
vík og til og frá Selfossi. Með-
altal farþega í ferð frá 1969—
1976 er frá 12,9—19,4. Auk
þess fer árlega um stöðina mik-
i'll fjöldi hópferðafarþega.
Bifreiðarnar eru fhá 9 manna
til 65 manna, en algengasta
stærðin er frá 20—60 manna.
TÖLULEGAR STAÐREYNDIR
UM SÉRLEYFI Á ÍSLANDI
BSf 'hefur látið gera töluleg-
ar stað.reyndir um sérleyfi hér
á landi og kemur þar fram að
stærstu sérleyfisfyrirtækin mið-
að við farþegaflutninga eru
Landleiðir, Sérleyfisbifreiðar
Keflavíkur og Sérleyfisbifreið-
ar Selfoss. Árið 1974 fluttu
Landleiðir 667.011 farþega til
og frá Hafnarfirði.
Stærstu sérleyfisfyrirtækin
miðað við bifreiðaeign eiga 12
—20 bifreiðir. Auk farþega-
flutninga flytja bilarnir einnig
pakka, póst og ýmsan smávarn-
ing.
FARÞEGAFLUTNINGAR
MEÐ ÁÆTLUNARBIFREIÐ-
UM HAFA DREGIST SAMAN
Þessi starfsemi hefur átt í
vök að verjast og hefur dregist
saman að sögn Kristjóns, eink-
um vegna aukinnar einkabíla-
eignar landsmanna og fólks-
flutninga með flugvélum.
Sagði Kristjón, að ýmsar
kvaðir og skattar væru lagðir á
sérleyfishafa, sem þeir ættu
erfitt með að sætta sig við s.s.
há innflutningsgjöld og tollar,
sem gætu verið allt að 6 millj-
ónir á hvern nýjan bíl og enn-
fi'emur þungaskattur, sem sí-
fellt er að hækka.
Fólksflutningar með áætlun-
arbifreiðum til Vestfjarða hafa
dregist stórlega saman eftir að
farið var að fljúga að staðaldri
til hinna ýmsu byggðarlaga
þar. Sama er að segja um ferðir
til Austfjarða. Hins vegar er
talsvert um farþegaflutninga á
vegum BSÍ á Suðurlandi á
svæðinu til Snæfellsness og
austur til Víkur í Mýrdal.
Einnig er töluvert um farþega-
flutninga í Húnavatnssýslur og
Skagafjörð og til Aku.reyrar.
Sagði Kristjón, að með til-
komu nýja hringvegarins hefðu
sérleyfishafar gert sér von um
aukna farþegaflutninga til
staða austanlands, en þær von-
ir hefðu brugðist að verulegu
leyti.
STÆRSTA HÓPFERÐA-
AFGREIÐSLA Á LANDINU
Hjá BSÍ e,r stærsta hópferða-
afgreiðsla á landinu. Á sumrin
aka þaðan auk bíla sérleyfis-
hafa um 60 hópferðabílstjórar
með um 80 bíla með 2100 sæti.
Mikill Wuti þessa aksturs er
fyrir ferðaskrifstofurnar og þá
FV 1 77
25