Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 47
Vestursalur Kjarvalsstaða, þar sem sýningar
ýmissa listamanna fara fram.
ar“. Sýningunni er ætlað að sýna 'hina nánu sam-
vinnu skálds og myndlistarmanns, sem getur átt
sér stað í bókaútgáfu. Aðalverkið á sýningunni
verður bók Asgers Jorns og Halldórs Laxness:
Die Geschichte vom teurem Brot, sem kom út í
Sviss 1972. Nokkrar litografíur og textar annarra
þekktra rithöfunda og myndlistarmanna verða
ennfremur á þessari sýningu.
í vetur myn félagið íslensk grafík halda sýn-
ingu í Norræna húsinu, svo og mun Bragi Ás-
geirsson halda þar einkasýningu, og væntanlega
munu fleiri íslenskir listamenn sýna verk sín í
Norræna húsinu í vetur.
maí—7 júní er fyrirhugað að halda málverka-
sýningu á verkum eftir 12 enska listmálara og
er nú verið að vinma að undirbúningi þessarar
sýningar. 1 i 1 tl 1 :'!ll
Allar sýningarnar verða haldnar í vestursal
Kjarvalsstaða. í mars er áætlað að opna sýningu
á verkum Jóhannesar Kjarval og stendur sú sýn-
ing í allan vetur og sumar.
í mars og apríl verður brúðuleikhús að Kjar-
valsstöðum og einnig verða þar haldnir fyrir-
lestrar og tónleikar.
• Norræna húsið
Nýtt starfsár er hafið hjá Norræna húsinu og
verður þar margt fróðlegt á dagskrá s.s. fyrir-
lestrar, vísnasöngur, ýmsar sýningar og margt
fleira. Fyrstu dflgana í febrúar kemur Erik
Kjersgaard, deildarstjóri við þjóðminjasafnið
danska í Kaupmanmiahöfn, en þessi maður er
mjög kunnur í Danmörku vegna ritstarfa sinna
og sjónvarpsþátta.
Erik Kjersgaard flytur hér tvo fyrirlestra dag-
ana 3. og 5. febrúar.
Helgi Gíslason, myndhöggvari sýnir eigin verk
í sýningarsölum hússins í febrúar. Hann hefur
einkum femgist við höggmyndir og grafík. Þessi
sýning er fyrsta sýning Helga hér á landi.
Af öðrum fróðlegum sýningum, sem settar
verða upp í Norræna húsinu er m.a. sýning sem
Selskabet til hándarbejdets fræmme í Kaup-
mannahöfn heldur. Þetta er sýning á handa-
vinmiu, sem einkum er unnin úr íslenskri ull.
Sýningin stendur dagana 26. febrúar—13. mars.
5. mars verður opnuð sýning í bókasafni Nor-
ræna hússins á myndskreytingum í finnskum
barnabókum. Á sýningunni verða sýnd verk 11
finnskra listamanna.
16. apríl verður opnuð sýning í sýningarsöl-
um hússins, sem nefnist „samspil orðs og mynd-
• Hótel Saga
Mikið er um að vera á Hótel Sögu í vetur, því
þar verða haldnar árshátíðir og skemmtikvöld
um hverja helgi fram á vor. f Súlnasalnum hlið-
arsölum og Bláa salnum er unnt að hafa allt að
600—630 manns í mat og í Átthagasal geta um
180 manns verið í mat, og að auki eru þar 45
barsæti.
Aðallega eru haldnar árshátíðir félagasamtaka
og átthagafélaga, en að auki eru ferðaskrifstofu-
skemmtikvöld á hverju sunnudagskvöldi, sem
ferðaskrifstofurnar Sunna og Útsýn, halda. Á
þessum skemmtikvöldum eru ferðakynningar,
skemmtiatriði og snæddur er réttur frá viðkom-
andi landi, t.d. Spáni og stundum skemmta er-
lendir skemmtikraftar á þessum kvöldum.
Auk þess hafa ferðaskrifstofurnar Sunna og
Útsýn gengist fyrir binigókvöldum, og á hverju
ári hefur verið haldin fegurðarsamkeppni á veg-
um ferðaskrifstofunnar Útsýn.
Súlnasalur er alltaf opinn fyrir matargesti með
dansleik frá kl. 19 á hverjum laugardegi og þar
leikur hljómsveit danstónlist, en Stjörnusalur á
8. hæð hótelsins er opinn fyrir matargesti frá kl.
8—23.30 alla daga vikuntnar.
f hádeginu liggur þar fyrir matseðill með
ódvrum réttum. Á kvöldin er hægt að velja úr
nokkrum kvöldréttum, og auk þess um 50 sér-
réttum. Á 1. hæð hótelsins er Mímisbar opinn
öll kvöld, nema á miðvikudagskvöldum.
Á Hótel Sögu við Hagatorg eru 90 hótelher-
bergi með u.þ.b. 150 rúmum. Á hótelinu er einn-
ig ýmis þjónusta s.s. gufubað, nuddstofa, banki,
snyrtistofa og fleira.
Helstu árshátíðir átthagafélaga eru árshátíð
Skagfirðingafélagsins 25. febrúar, Svarfdælinga-
félagsins 5. mars, Súfffirðingafélagsins 12. mars,
Siglfirðingafélagsins 25. mars og Breiðfirðinga-
félagsins 1. apríl.
FV 1 77
47