Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 73
Þingeyri
Togarinn missti af afla-
hrotunni vegna bilunar
Togari frá Akureyri landaði afla þar,sem skapaði verkefni fyrir frystihúsið
Þegar blaðamaður FV var á ferð á Þingeyri um miðjan janúar-
mánuð hafði hann samband við Sigurð Kristjánsson kaupfélags-
stjóra Kaupfélags Dýrfirðinga. Sigurður kvaðst vera svo nýtekinn
við stöðunni, að hann væri ekki rétti maðurinn til að segja frá
þróun mála á Þingeyri í gegnum árin en hann gæti gefið yfirlit
um rekstur félagsins í dag. Sigurður tók við starfinu nú um árar
mótin og auk þess er hann framkvæmdastjóri Fáfnis hf. Hann var
áður skrifstofustjóri hjá skipadeild Sambandsins í 7 ár.
— Kaupfélag Dýrfirðinga var
stofnað 8. júní 1919 að Mýrum
í Dýrafirði. Fyrsta stjórn félags-
ins var skipuð þeim Kristni
Guðlaugssyni oddvita Núpi, en
hann var formaður. JóJiannesi
Daviðssyni bónda Neðri-Hjarð-
ardal, Birni Guðmundssyni
kennara Núpi, Friðriki Bjarna-
syni hreppstjóra Mýrum og
Kristjáni Davíðssyni bónda
Neðri-Hjarðardal. Félagið gekk
í SÍS 1921.
aukist og iþá vinnan þar. f
frystihúsinu eru starfandi 14
útlendingar núna. Hér hefur
ekki fengist nægur vinnukraft-
ur til vinnu þar, svo til þessa
ráðs var gripið. Skólabörn
koma svo inn á vorin enda lýk-
ur ráðningartíma útlending-
anna í maílok. Útlendingarnir
ihafa reynst mjög vel, eru dug-
legt og áihugasamt fólk og
komast mjög fljótt upp á lagið
hefur verið í viðgerð í Reykja-
vík sem nú er nýlokið. Hann
missti því af aflahrotunni sem
ikom milli hátíðanna, þegar aðr-
ir togarar fylltu sig á skömm-
um tíma hér út af Vestfjörð-
unum. Aftur á móti fengum við
togara frá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa til löndunar með 150
tonn 2. janúar og hefur sá fisk-
ur haldið vinnslu gangandi, ef
frá er talinn afli af einum línu-
bát. Það eru því vonir til að
rekstur frystihússins verði eðli-
legur þegar togarinn kemst aft-
ur til veiða.
Að lokum sagði Sigurður að
sér fyndist gaman að vera 'kom-
inn hér til starfa og vonaðist
til að geta orðið til gagns fyrir
byggðarlagið.
Sigurður
Kristjáns-
son, kaup-
félagstjóri
á
Þingeyri.
Núverandi stjórn er skipuð
þeim Valdimari Kristinssyni
bónda Núpi sem er formaður,
Valdimari Gíslasyni bónda Mýr-
um, Guðmundi Ragnarssyni
bónda iHrafnarbjörgum, Þórði
Jónssyni bónda Múla og Knúti
Bjarnarsyni bónda Kirkjubóli.
TOGARINN HEFUR GJÖR-
BREYTT ATVINNUÁSTANDI
— Á Þingeyri rekur félagið
verzlun, sláturhús, skipaaf-
greiðslu, tryggingarumboð, olíu-
og benzínafgreiðslu á svæðinu.
Einnig rekur félagið Hrað-
frystihús Dýrfirðinga, sem er
með fiskverkun, saltfiskverkun
og beinamjölsvinnslu. Kaupfé-
lagið gerir ú,t línubátinn Fram-
nes ÍS 608. Er þessi bátur enn
mikið afla- og happaskip frá
síldarárunum. Dótturfyrirtæk-
ið Fáfnir hf. gerir út skuttogar-
ann Framnes I ÍS 708 sem er
þriggja ára smíðaður í Noregi.
Togarinn hefur gjörbreytt öllu
atvinnuástandi og valdið því að
hráefni frystihússins hefur stór-
að vinna í fiski þó það sé ó-
kunnugt þegar það kemur.
— Útgerðin hefur gengið illa
að undanförnu. Línubáturinn
Framnes strandaði við Bjarg-
tanga í desember sem kunnugt
er og hefur verið í viðgerð síð-
an en ætti að komast á veiðar
aftur um miðjan febrúar. Tog-
arinn stöðvaðist svo á aðfanga-
dag vegna bilunar í spilgír og
— Fólki hefur ekki fækkað
hér og þróunin í dag er sú að
fólk flyst frekar út á lands-
byggðina. Gallinn er sá að þar
sem atvinna er að mestu bund-
in við sjávarafla verður hún
ein'hæf. Það eru ekki alíir sem
kæra sig um að vinna í fiski og
þarf að vera hægt að bjóða upp
á fleiri möguleika í atvinnu-
rekstri fyrir þá.
FV 1 77
73