Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 92
AUGLÝSING
ÓLAFUR GÍSLASOM & CO. HF.:
Chubb Fire eldvarnir
Ólafur Gíslason og Co hf.,
Sundaborg, Klettagörðum 3
hefur umboð fyrir breska. stór-
fyrirtækið Chubb Fire, en þetta
fyrirtæki er einn stærsti fram-
leiðandi tækjabúnaðar til
slökkvistarfa og eru framleidd
hjá fyrirtækinu lítil hand-
slökkvitæki og allt upp í
stærstu slökkvibíla.
Fluttar eru inn fjölmargar
gerðir af handslökkvitækjum
s.s dufttæki, vatnstæki, koltví-
sýringstæki og kvoðutæki og
hafa slík tæki verið flutt inn
um áratuga skeið. Framleið-
endu.r handslökkvitækjanna
flytja út öll handslökkvitæki
hingað til lands með íslenskum
leiðbeiningum.
Nú ér í undirbúningi inn-
flutnin^ur á nýrri tegund
slökkvitækja, sem mjög hafa
verið að ryðja sér til rúms í
heiminum, en það er Halon
(BCF) slökkvitæki, sem er
þannig úr garði gert, að við
notkun breytist vökvinn sem er
í tækinu í lofttegund, sem kæf-
ir eld á augabragði. Tæki þetta
er sérlega árangursríkt á eld,
sem kviknar af völdum raf-
magns, og þegar kviknað hefur
í eldfimum vökva eða gasteg-
und. Ahrif þessarar lofttegund-
ar á eldinn eru fimm föld mið-
að við koltvísýringstæki. Tæki
þessi verða framleidd í ýmsum
gerðum og ein gerðin er sér-
staklega ætluð í bíla.
Ennfremur flytur Olafur
Gíslason & Co. hf. inn bruna-
slönguhjól, og getur slangan
verið allt að 46 metrar. Slík
hjól eru sérlega hentug fy.rir
iðnfyrirtæki, skóla og félags-
heimili. Eldvarnarteppi úr
asbest og fiber sem eru sérstak-
lega ætluð til notkunar í mötu-
neytum, veitingastöðum og á
heimilum eru einnig flutt inn.
Nýlega hófst samstarf með
Ólafi Gíslasyni og Co. hf. og
Eldvarnamiðstöðinni, en það
samstarf er fólgið í því að veita
viðskiptavinum sem víðtækasta
þjónustu á sviði eldvarna.
ELDVARMAMIIDSTÖÐIM HF.:
Ný gerð reykskynjara
Eldvarnamiðstöðin hf. að
Löngubrekku 45 Kópavogi var
stofnuð árið 1974 af tveimur
starfsmönnum úr slökkviliðinu
í Keflavík, sem hafa mikla
þekkingu og reynslu í alhliða
eldvörnum. Tilgangur fyrir-
tækisins er að selja vörur og
þjónustu á sem víðtækustum
grundvelli gagnvart eldvörn-
um.
Á boðstólum eru m.a. reyk-
skynjarar fyrir heimahús og
brunaviðvörunarkerfi fyrir
stærra húsnæði, sjálfvirk
slökkvikerfi, eldtraustur hlifð-
arfatnaður fyrir slökkviliðs-
menn. reykgrímur og alls kon-
ar tæki og búnaður fy.rir
slökkvilið. Ennfremur þjónusta
á sviði eldvarna.
Til þessa hefur 90% af starf-
seminni verið fólgin í sölu
reykskynjara fyrir heimahús.
Reykskynjarar hafa mjög .rutt
sér til rúms á undanförnum ár-
um vestanhafs. Er það yfirlýst
af opinberum stofnunum í
Bandaríkjunum, að likurnar
fyrir því að fólk geti brunnið
inni séu 87% minni hafi það
reyikskynjara í húsum sínum. í
ýmsum fylkjum Bandaríkjanna
er það komið í lög að fólk hafi
reykskynjara í húsum sínum.
Nýlega fékk Eldvarnamið-
stöðin nýja tegund reykskynj-
ara, þá nýjustu, sem komið hef-
ur á markaðinn og er algjör
nýjung í framleiðslu reykskynj-
ara. Rafhlöðup.rófun tækisins
er margfalt fullkomnari en áð-
ur hefur þekkst og því raá nota
venjulegar rafhlöður í þessa
nýju reykskynjara, í stað sér-
smíðaðra rafhlaðna, sem hafa
verið illfáanlegar og dýrar.
Þessi nýja gerð reykskynj-
ara nefnist Smoke Gard 8oo A
og er framleidd hjá banda-
ríska fyrirtækinu Statitrol í
Colorado, en það fyrirtæki
valdi Eldvarnamiðstöðina hf.
umboðsmann mánaðarins fyrir
desembermánuð, þar sem fyrir-
tækið náði mestri aukningu í
sölu hinna nýju reykskynjara.
Jl
92
FV 1 77