Frjáls verslun - 01.06.1977, Side 25
lands en aðjkaup á súkkulaði
séu að mestu leyti viðbótar-
kaup. Jafnframt er engum vafa
undirorpið að margir útbúa sig
betur fyrir brottför. Sumir fara
jafnvel með ýsu og dósamat.
Aðrir mundu kaupa meira er-
lendis ef yfirfærslur á ferða-
mannagjaldeyri væru frjálsar.
Hins vegar hef ég litla trú á að
skömmtunin aftri mönnum frá
að ferðast. Að sjálfsögðu hefur
gengið áhrif á hve mikið er
ferðast innanlands og utan. Þó
er hæpið að skömmtunin sem
slík örvi mikið ferðalög inn-
anlands. Helsta niðurstaðan af
þessum vangaveltum er sú, að
skömmtunin á gjaldeyri til
ferðamanna hafi minni áhrif á
gjaldeyriseyðsluna en á tekjur
ríkissjóðs. Þetta er í sjálfu sér
ekki ómerkileg niðurstaða. í
fyrsta lagi eru aðaláhrifin önn-
ur en skömmtuninni var ætlað
að hafa í upphafi og yfirleitt
er látið í veðri vaka, þ.e. að
spara gjaldeyri. í öðru lagi er
verið að sjá til þess að mepn
sleppi ekki við að greiða óbeina
skatta of auðveldlega. En síðar-
nefnda markmiðinu ætti að
vera unnt að ná með ströngu
eftirliti við heimkomu ferða-
manma. Það álit að skömmtun-
in hafi fyrst og fremst áhrif á
tekjur ríkissjóðs sannast best á
því að unnt er að fá leyfi til að
flytja inn hvers kyns glingur
í stað þess að fá ferðagjaldeyri.
HEILDAREYÐSLA
Það er fróðlegt í þessu sam-
bandi að líta á tölur um eyðslu
íslenskra ferðamanna erlendis
og erlendra hérlendis.
Samkvæmt tölum úr þjón-
ustujöfnuði fyrir árið 1976
námu útgjöld íslenskra ferða-
manna erlendis og manna í
verzlunarerindum (en skil milli
þessara flokka eru ekki alltaf
glögg) um 3.900 millj. kr., eða
3,7% af gjaldeyristekjum það
ár. Árið 1974 nam samsvarandi
tala 2.142 millj. kr., eða 3.0%
af gjaldeyristekjum, en á móti
er talið að tekjur af erlendum
ferðamönnum hafi verið 1.810
millj. kr., eða næstum sama
fjárhæð. Óþarft ætti að vera að
taka fram að þessar tölur eiga
við gjaldeyrisviðskipti í þessu
skyni í gegnum bankakerfið
(í báðum tilvikum) þannig að
tölurnar eru í reynd talsvert
hærri.
TILLAGA
Við komumst að raun um upp-
úr 1960 að íslendingar geta bú-
ið við frjáls utanríkisviðskipti
eins og aðrar þjóðir. Á tíma
var meira segja unnt að skipta
íslenskum krónum í erlendum
bönkum svo um munaði. Ég
tel að við ættum að gefa ferða-
mannagjaldeyri frjálsan strax,
a.m.k. í tilraunaskyni í nokkur
ár. Þar með er ekki verið að
gefa allar yfirfærslur frjálsar.
Ef einhver efast um að þetta sé
rétt er honum hollt að spyrja:
Hvernig stendur á því að þetta
blessast hjá öðrum þjóðum?
Eða er gengið ekki rétt skráð?
QOFíFe
•RKA
BORGARNESI
Framleiðir og selur:
RÖR AF ÖLLUM STÆRÐUM.
Einnig:
GANGSTÉTTARHELLUR — GARÐHELLUR — KANTSTEINA
MILLIVEGGJASTEINA — ÚTVEGGJASTEINA —
STEINSTEYPU OG STEYPUMÖL.
VERKTAKAR. — KRANALEIGA.
LOFTORKA SF.
Ölafsvíkurbraut, sími 93-7153.
Konráð Andrésson, heima, sími 93-7153.
FV 6 1977
25