Frjáls verslun - 01.06.1977, Page 37
Ingvar Helgason
Japanir kenndu honum að
nýta húsnæðið til hins ýtrasta
Reynslan af viðskiptum við Japani mjög góð
— Þegar ég byrjaði að versla við Japani þá tóku þeir mig í nokk-
urra daga námskeið', ef þannig mætti orða það, og kcnndu mcr að
nýta það pláss sem ég hef fyrir fyrirtækið, sem allrabest. í aug-
um Japana er það löstur að kunna ekki að nýta húsrými. Þessi
kennsla kom mér að svo góðum notum að enn hef ég ekki þurft
að flytja í stærra húsnæði þrátt fyrir sívaxandi viðskipti.
framkvæma varahlutaþjónustu
á annan veg en þennan, og
sem betur fer hefur þetta fyr-
irkomulag reynst vel.
Það var svo í fyrra í október
að Ingvar byrjaði að flytja
Subaru-bíla inn líka og hefur
Þetta sagði Ingvar Helgason,
heildsali, þegar Frjáls verslun
heimsótti fyrirtæki hans að
Vonai’landi við Sogaveg 6. Og
til marks um vöxt fyrirtækisins
má til gamans geta þess að
samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar er fyrirtækið komið
númer 1. á lista yfir söluhæstu
fyrirtæki varðandi bílainnflutn-
ing fyrstu 6 mánuði ársins og
hefur það ekki gerst áður.
Hafði Ingvar flutt inn samtals
386 bíla á þessum tíma og gat
hann þess í gamansömum tón
að allt starfsfólk fyrirtækisins
ætlaði að fara út að skemmta
sér af þessu tilefni næstkom-
andi föstudag.
Af þessum 386 bílum kemur
bróðurparturinn frá japönskum
bílaverksmiðjum. Ingvar Helga-
son flytur inn Datsun og
Subaru frá Japan, en auk þess
selur hann Trabant-bifreiðar.
— Mín reynsla af því að
skipta við Japani er mjög góð.
Að vísu er ekki hægt að neita
því að fjarlægðirnar milli fs-
lands og Japan eru miklar og
flutningur á vörunni tekur
langan tíma, en þetta hefur
aldrei verið okkur fjötur um
fót.
Ingvar byrjaði að flytja inn
Datsun árið 1971 og flytur þá
aðallega inn í gegnum Dan-
mörku, en Subaru eru fluttar
hingað beint og milliliðalaust
frá Japan.
Ingvar Helgason.
— Hér á landi eru í dag yfir
20 mismuniandi gerðir af Dat-
sun-bílum og til þess að geta
veitt eigendum allra þessara
tegunda viðunandi þjónustu
var ákveðið að hafa þann hátt
á varahlutaþjónustunni að
varahlutirnir eru geymdir í
tollvörugeymlu og leystir út
eftir þörfurn.
Það eru Danir og Japanir
sem eiga að sjá um að alltaf sé
til nóg þar af öllum varahlut-
um og fer það eftirlit fram í
gegnum tölvur. Varahlutalag-
erinn mum vera upp á um 50
milljónir króna. Þar sem þessar
tegundir af Datsun eru svona
margar er útilokað fyrir mig að
salan á þeim verið lygilega góð,
svo orð Ingvars sjálfs séu notuð.
Siðan leiðrétti hann sig og
sagði að orðið lygilega væri
ekki rétta orðið. Þessi bíll hent-
aði svo vel íslenskum aðstæð-
um, að það væri í raun og veru
mjög skiljanlegt að hann seld-
ist vel hér á landi. Hvað vara-
hlutaþjónustu viðkemur, þá
sér Ingvar um þá hlið líka enda
er hér um eina tegund að ræða.
Sú þjónusta er enn ekki full-
mótuð, enda hafa bílar þessir
verið enn svo stutt á markaðn-
um. En hann kvaðst vera bjart-
sýnn á að þessi þjónusta gæti
orðið jafngóð og veitt væri öðr-
um bílategundum hér.
FV 6 1977
37