Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 53
starfshæfileiki og heilbrigð
dómgreind eru eiginleikar sem
sízt eru léttar vegnir á meta-
skálunum en fagleg þekking
þegar ráðið er í stjórnuinarstörf.
Það er engin trygging fyrir
hæfni knattspyrnuliðs þótt það
sé s'kipað „frábærum11 knatt-
spyrnumönnum, ef þeir ná ekki
að leika saman á grundvelli á-
kveðinnar verkaskiptingar.
Af þessu leiðir að forsenda
þess að samhæfni náist í stjórn-
sýslu fyrirtækja er að ákveðin
skilgreind verkaskipting sé fyr-
ir hendi.
AÐALVERKSVIÐ STJÓRN-
SÝSLU
Ef greina ætti aðalþætti
þeirrar stjórnsýslu sem væri
táknræn fyrir iðnaðarfyrirtæki
yrði upptalningin í flestum til-
vikum þessi:
1. Stefnumörkun — yfirstjórn.
2. Hönnun — vörUþróun.
3. Framleiðsla.
4. Sala.
5. Fésýsla.
6. Starfsskipulag og aðbúð.
1. Stefnumörkun og yfirstjórn
Þessi þáttur felst í markmiða-
rannsóknum, stefnumörkun,
skipulagningu, samvirkjun
(kerfisvæðingu), sam'hæfingu
og stjórnun fyrirtækis, þannig
að það þjóni sem bezt fjárhags-
legum og þjóðhagslegum mark-
miðum.
2. Hönnun og vöruþróun
felst í því að hanna framleiðslu
fyrirtækis með tilliti til mark-
aðskrafna, framleiðslutækni og
framleiðslukostnaðar þannig að
markaðshæfni vörunnar sé
tryggð með samkeppnisfæru
söluverði. Vöruþróun byggist
á 3 aðalþáttum sem eru: endur-
skoðun með tilliti til notagildis
og um leið markaðshæfni, um-
hönnun með tilliti til breyti-
legra þarfa markaðsins eða
nýrra framleiðsluaðferða/tækja
og tilraunir með nýjar fram-
leiðsluvörur.
3. Framleiðsla
Hlutverk þess þáttar er að
FV 6 1977
framleiða vörurnar á hag-
kvæmastan hátt, á réttum tíma
og af þeim gæðum sem ákveðið
hefur verið.
4. Sala
felst í því að selja framleiðslu-
vörur fyrirtækis, ekki einungis
sem mest af vörunni og á hæsta
verði, heldur þannig að höfuð-
áherzla sé lögð á að selja þær
vörur sem fyrirtækið hagnast
mest á að selja hverju sinni.
Markaðsmál eru á þessu verk-
sviði svo sem auglýsingastarf-
semi og mar-kaðsathuganir.
5. Fésýsla
Þessi þáttur stjórnsýslu ann-
ast allan daglegan fjármála-
rekstur svo sem fjármögnun
(að vissu marki), innheimtu,
sjóðsgreiðslur ásamt launaút-
reikningi, greiðslu- og tekju-
áætlanir, og almenn bankavið-
skipti. Bókhald og fjárhags-
áætlanagerð til-heyra þessum
þætti.
STARFSKRÖFUR
Ef ráða á starfsmann til að
gegna ábyrgðarstöðu við fram-
leiðslu gætu eftirfarandi kröfur
verið gerðar:
a. Viðurkennd þekking og
reynsla á viðkomandi fram-
leiðslusviði. Þeim kröfum
gæti verið mætt með tækni-
menntun eða ákveðinni
starfsþjálfun.
b. Sérfræðileg þekking á viss-
um framleiðsluþáttum. Sú
þekking fæst oftast með sér-
stakri þjálfun innan fyrir-
tækis.
c. Þekking á sviði framleiðslu-
skipulagningar og stjórnun-
ar.
Stjórnun framleiðslufyrir-
tækis er að sjálfsögðu mismun-
andi eftir stærð fyrirtækja,
framleiðslufjölbreytni, tækni-
stigi og markaðstökum. Gerð-
um við lista yfir þau verkefni
sem flestir stjórnendur slíkra
fyrirtækja þurfa að glíma við
gæti hann litið svona út:
a. Hafa stöðugt auga með vöru-
þróun innan og utan fyrir-
tækis og vöruhönnun með
tilliti til arðsemi framleiðslu-
hátta.
b. Rekstrarskipulagning í viðri
merkingu frá byggingu
nýrra verksmiðja niður í sér-
greinda verkþætti ákveðinn-
ar framleiðslu.
c. Kynna sér eðli ákveðinna
framleiðsluhátta, verkþætti
þeirra og tækni með tilliti til
sjálfvirkni og/eða hand-
virkni.
d. Ákveða gæðastig framleiðsl-
unnar og hvaða staðalkröfur
skuli tryggja gæðin.
og hvers konar mælingar
e. Tryggja nauðsynlega rekstr-
53
Hlutafdlagaatjdrn
| FraÆkvaodk* t Járl
iws:«ít: | i
I8nkðkrn«nn Iðnaðkrnenn
1 Tflrvorkatjdri
1 Flokkatjdri 1 trdaklpaaafðl 1
| Iðnaðaraonn
Kdskamfðia. Ndnrkaelst.
] 0
I Vfnnunokkur I Vlnnunokkur
Stjdmo/oU og »klpul*€ lftll* fjrrlrtrt:!* dtl i lanJl aeð fjölbrojrtU otkrfeoal