Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 67
Vélaverkstæðið Foss
Framleiðsla á stálgrindarhúsum
hafin hjá verkstæðinu
Stærsta verkefnið 800 fermetra skemma fyrir Kröflu
— Þetta fyrirtæki hefur aðallega snúist um rekstur bílaverkstæð-
is síðustu árin, en núna cr verið að breyta þcssu og leggjum við
meiri áherslu á vélaverkstæðið, sagði Kristinn V. Magnússon
framkvæmdastjóri Vélaverkstæðisins Foss hf. á Húsavík þegar
Frjáls verslun heimsótti hann.
— Þegar fyrirtaekið var
stofnað fyrir u.þ.b. þrjátiu ár-
um, hélt Kristinn áfram, — var
það bara vísir að bílaverkstæði,
em smám saman hefur bættst
við rekstur vélaverkstæðis,
smurstöðvar, bílasprautunar-
verkstæðis og blikksmiðju. Nýj-
asta viðbótin er blikksmiðjan,
sem bættist við fyrir tveimur
árum. Þar eru verkefnin að
aukast jafnt og þétt. Tveir til
þrír menn vinna í því stöðugt
og sjá varla fram úr.
— Eins og ég sagði, þá erum
við að setja drift í rekstur véla-
verkstæðisins. Fram til þessa
hefur verkstæðið aðallega sinnt
smáviðgerðum fyrir bátaflot-
ann á staðnum, en fyrir ári síð-
an fórum við að smíða stál-
grindahús. Stærsta verkefnið á
því sviði er 800 fermetra
skemma við Rröflu, sem á að
vera birgðageymsla. Því verk-
efni höfum við skilað af okk-
ur núna. Þá erum við að undir-
búa smíði á fjórum ca. 200 fer-
metra hlöðum fyrir bændur
hér í nágrenninu. Við skilum
þeim grindunum tilbúnum til
samsetnin'gar og látum þá hafa
efni til að klæða með. Þeir
setja þetta svo saman sjálfir að
mestu, en við aðstoðum þá ef
þeir óska eftir.
REYNA AÐ AÐSTOÐA Á
ÖLLUM TÍMUM
Foss hf. er annað tveggja
bílaverkstæða á Húsavík og
hafa bæði ærin verkefni. —
Það er engan veginn hægt að
sjá fram úr verkefnunum á því
sviði, sagði Kristinn. — Mest
er þó að gera að sumrinu, bæði
fyrir skoðun og þegar ferða-
mannastraumurinn er mestur.
Við höfum ek'ki farið út í það
að hafa kvöld- eða helgarvakt-
ir vegna ferðamanna, en við
reynum að leysa vanda þeirra
sem til okkar leita með bilanir,
hvenær sem það er og svo fram-
arlega sem ekki er yfirvinnu-
bann! sagði Kristinn og brosti
við.
Foss hf. hefur haft aðsetur á
sama stað, allt frá stofnun
fyrirtækisins. Hins vegar hefur
tvisvar verið byggt við upp-
hafleg húsakynni. — Nýjasta
byggingin er frá 1973, en það
er um 1500 fermetra bygging
þar sem bílaverkstæðið og
smurstöðin eru til húsa, sagði
Kristinn. Framundan er svo
að byggja nýtt vélaverkstæði á
þessari sömu lóð. Blikksmiðjan
fengi þá núverandi húsnæði
vélaverkstæðisins. Um þetta
hefur ekki verið neitt afráðið,
en viðræður eru hafnar við
bæjaryfirvöld um nauðsynleg
leyfi. Svo vantar auðvitað pen-
ingana til að gera þetta og ekki
gott að segja hvað opinberir
sjóðir segja við lánsumleitun-
um.
Að sögn Kristins vantaði
fleira en fé. — Fólk vantar
okkur líka, sagði hann. — Iðn-
aðarmenn sem við þurfum á
að halda eru bara ekki til á
staðnum, en við reynum að
mennta þá sjálfir. Eins og er
starfa um 10 nemar hjá fyrir-
tækinu. Að vísu hefur verið til-
hneiging hjá nemunum að
hverfa burtu þegar námi lýkur,
en ég vona að það sé að verða
breyting á þeirri þróun. Ég veit
lika að menn myndu fást til að
flytja hingað ef húsnæði væri
til.
AÐDRÆTTIR EITT VERSTA
V AND AMÁLIÐ
Eins og gengur og gerist með
fyrirtæki, og þá e.t.v. ekki síst
þjónustufyrirtæki úti á landi,
eru ýmsir erfiðleikar sem
steðja að rekstrinum. — Eitt
versta vandamál okkar eru að
drættirnir, sagði Kristinn. —
Við þurfum að sækja flest allt
til Reykjavíkur og jafnvel þeg-
ar við pöntum beint að utan
koma vörurnar í gegnum
Reykjavík. Það er takmarkað
sem við getum flutt með vöru-
flutndngabílum, því vörurnar
eru yfirleitt svo þungar og
flutningsgjaldið þar af leiðandi
hátt. Skipaflutningar eru þvi
það helsta sem kemur til greina
og það tekur sinn tíma. Þetta
skapar enn önnur vandræði.
Fyrirtækið hefur ekki fjárhags-
legt bolmagn til að liggja með
lager eða panta stórt. Því ligg-
ur okkur oft á að fá vörur fljót-
ar en skipin geta fært okkur
þær. Svo má náttúrulega sjá
af þessu, að símakostnaður
verður gífurlegur vegna tíðra
og langra símtala suður til
Reykjavíkur. Síðasti reikning-
ur sem við fengum skipti
hundruðum þúsunda, sagði
Kristinn að lokum.
FV 6 1977
67