Frjáls verslun - 01.02.1978, Qupperneq 22
Sovétríkin:
Hafa sett á stofn alþjóðleg
fyrirtæki víða um heim
Sovéftmenn hafa gripið til eins áhrifamesta viðskiptavopnsins, sem vestræn ríki hafa notfært
sér, það er að segja stofnunar fjölþjóðlegra fyrirtækja til að vinna markaði fyrir sovézkar vörur
á Vesturlöndum. Sovétmenn hafa sett á stofn næstum 40 alþjóðleg fyrirtæki með dótturfyrirtækj-
um í 13 löndum utan kommújnistaríkjanna. Helztu verksvið: bankastarfsemi, útflutningshvetj-
andi aðgerðir og skipaútgerð.
Fjármagnið, sem fest er í
þessum fyrirtækjum er lítið á
vestrænan mælikvarða, senni-
lega ekki nema um 500 millj-
ón dollarar, en fréttir frá Evr-
ópu, Asíu og Norður-Ameríku
benda til þess að sala og hagn-
aður sé á hraðri uppleið.
Stundum renna tilraunir
Sovétmanna til þátttöku í við-
skiptum og fjármálastarfsemi í
vestrænum ríkjum algjörlega
út í sandinn og á þetta eink-
um við, þegar sovézkir emb-
ættismenn leggja á ráðin um
aðgerðir á svæðum, sem þeir
þekkja ekki og þar sem ókunn
vandamál steðja að þeim.
Til dæmis hefur Lundúnaúti-
bú Norodny-bankans í Moskvu
stöðugt sýnt ágóða en átt í erf-
iðleikum með fjárfestingar sín-
ar. Bankinn opnaði útibú í
Singapore árið 1971 og hafði
náð til sín um 15% af lána-
markaðinum þar um slóðir á
fjórum árum. í Hong Kong tap-
aði bankinn aftur á móti um
60 milljón dollurum á viðskipt-
um við fasteignafyrirtæki, sem
varð gjaldþrota. Stuttu seinna
glataði bankinn álitlegri fúlgu
á fasteignaviðskiptum í Aust-
urríki. Þegar allt annað um
þraut var sendur enskur fram-
kvæmdastjóri til að greiða úr
allri flækjunni og hafa eftirlit
með fjárfestingum bankans í
framtíðinni.
MARGS KONAR
SAMKEPPNI
Þrátt fyrir þetta er rekstur
Norodny-bankans nærri sam-
felld frægðarsaga um allan
heim. Auk útibúanna í London
og Singapore rekur bankinn
starfsemi í Líbanon, Frakk-
landi, Vestur-Þýskalandi, Aust-
urríki, Sviss og Luxemburg. Ef
starfsemin er metin samkvæmt
þeim lögmálum, sem gilda á
Vesturlöndum, þ.e.a.s. hagnaði,
þrífast þessar bankastofnanir
hið bezta, að því er virðist. Ein
deildin, Ost-West Handelsbank
í Frankfurt jók veltu sína um
17% árið 1976 og hagnaðurinn
jókst um meira en 25%. Sovét-
menn standa einnig í sam-
keppni á ýmsum öðrum svið-
um. Dæmi:
• Comix, sem er franskt dótt-
urfyrirtæki myndavéla- og
útvarpsútflytjandans Mash-
priboringtorg í Moskvu, hef-
ur náð um 20% af mynda-
vélamarkaði í Frakklandi.
• Traktorexport selur land-
búnaðarvélar fyrir milli-
göngu dótturfyrirtækja eins
og Konela í Finnlandi, Bel-
arus í Kanada og Actif-
Avto í Frakklandi.
• Nafta GB, brezkt dóttur-
fyrirtæki Soyuznefteexport,
selur olíuvörur fyrir meira
en 300 milljón dollara á ári.
• Avtoexport hefur 150 um-
boðsmenn, sem selja næst-
um 12 þúsund sovézka Lada-
bila í Frakklandi.
Aðrir sovézkir kaupsýslu-
menn fást við að selja stærri
og kostnaðarsamari fram-
leiðslueiningar eins og túrbínur
í orkuver, kjarnakljúfa og flug-
vélar.
Sala á framleiðsluleyfum til
að nota sovézka tækni erlendis
er einnig vaxandi hjá sovézkum
útflutningsaðilum.
Vestrænir samkeppnisaðilar
telja, að Sovétmenn eigi enn
margt ólært, þrátt fyrir að þeir
viðurkenni bætta stöðu Sovét-
ríkjanna í alþjóðaviðskiptum.
Vestrænir keppinautar benda
einkum á lakleg gæði sovézkr-
ar vöru og þá staðreynd að Sov-
étmenn eigi söluárangur sinn
fyrst og fremst að þakka lágu
verði.
ÁSAKANIR UM
UNDIRBOÐ
Embættismenn í London
halda því fram, að forsvars-
mennirnir í Moskvu undirbjóði
oft vörur á brezka markaðin-
um. Verðið á sovézkum vekj-
araklukkum, ljósaperum og
haglabyssum var hækkað ný-
lega eftir að yfirvöld í Lundún-
um lögðu hart að sovézkum um-
boðsmönnum.
Óvíða verður sovézkrar sam-
keppni jafn greinilega vart og
í skipaútgerð. Sovétmenn ráða
yfir miklum og nýlegum flota
og þar sem þeir taka ekki þátt
í ráðstefnum, sem ákveða
fraktir, undirbjóða þeir verð
vestrænna skipafélaga iðulega
um 10—40%. Slík verðlagning
hefur gert það að verkum að
Sovétmenn hafa nú náð í 12%
af flutningi með skipum milli
Sovétríkjanna og Frakklands.
Kaupskipaflotinn sovézki ger-
ir eigendum sínum meira gagn
en að afla gjaldeyris. Að sögn
sérfræðinga um sjóhernað á
Vesturlöndum eru sovézku
kaupskipin oft útbúin til
njósna og fylgjast með herskip-
um vestrænna ríkja.
22
FV 2 1978