Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 39

Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 39
ferðir til Norðurlandanna. í fyrra bauð ferða- skrifstofan upp á ferðir til Kanada og verður það einnig í boði í sumar. Jón sagði að þær ferðir hefðu verið mjög vinsælar í fyrra og kvaðst hann eiga von á að svo yrði einnig 1 sumar. En hvert eiga þeir að fara sem vilja skemmta sér og lifa hátt, hvert eiga þeir að fara sem vilja læra og fræðast og hvert á fjölskyldufólkið með börnin að fara? Jú, því var fljótsvarað: Jón sagði að Mallorca væri staðurinn fyrir þá sem vildu skemmta sér, Grikkland væri land hinna fróðleiksfúsu og Costa del Sol væri staðurinn sem hægt væri að mæla sérstaklega með fyrir barnafólkið, enda rekur Sunna þar barnagæslu. Miðað við verð á ferðum í fyrra, þá verður meðalhækkun á Sunnuferðum í ár um 30—50%. Jón sagði að þessi hækkun væri mjög svipuð þeim hækkunum, sem orðið hefði milli ára að undanförnu. Hann sagðist telja að sumarið, sem nú er framundan yrði gott ferðaár, fyrir ferða- skrifstofurnar. Þegar er farið að bóka mikið og greinilega kominn ferðahugur í íslendinga. í fyrra flugu um 8000 íslendingar með Sunnu til sólarlanda og í aðrar ferðir, sem ferðaskrif- stofan skipulagði og eins og áður segir, þá lá leið þeirra flestra til Mallorca. * Urval: Hópferðir til Algarve í Portúgal — Erum við ekki allir að selja sól og sex, sagði Steinn Lárusson, hjá Ferðaskrifstofunni Urval, í gamansömum tón 'þegar leitað var upp- lýsinga hjá honum um ferðir sumarsins á veg- um ferðaskrifstofunnar. Annars var Steini ekki hlátur í hug, daginn sem rætt var við hann, því hann var önnum kafinn við að cndurrcikna öll verð á sumarferðunum eftir aðgerðir ríkisstjórn- arinnar í efnahagsmálum. Sagði Steinn að eftir gengisfellinguna væri meðaltalshækkunin á ferðum miðað við sams konar ferðir í fyrrasumar um 40%. En ef vinnu- friður héldist taldi hann þó ekki ástæðu til þess að óttast samdrátt í ferðum íslendinga á þeirra vegum. í fyrra fóru all.s um 3500 í sumarferðir Úrvals. Úrval býður fyrst og fremst upp á ferðir til þriggja staða. Það er Mallorca, Ibísa og Portúgal. HEFÐ KOMIN Á MALLORCAFERÐIR Mest hefð er komin á Mallorcaferðirnar, en þangað hefur ferðaskrifstofan skipulagt ferðir í 8 ár og sagði Steinn að þessar ferðir væru allt- af jafn vinsælar. Úrval er nú að skipuleggja Ibísaferðirnar þriðja árið í röð og sagði Steinn að nú væri líka að komast nokkuð gott lag á þær ferðir, en það tæki alltaf töluverðan tíma að koma góðu lagi á alla hluti þegar byrjað væri að skipuleggja ferðir til nýrra staða. Hann sagði að það væru ákveðin atriði, sem Ibiza hefði fram yfir Mallorca. Þar væri enn miklu rólegra að dvelja og eyjan væri ekki eins þéttsetin ferða- mönnum og Mallorca. Verðið væri hins vegar mjög áþekkt fyrir svipuð hótel og þjónustu á þessum tveimur stöðum. Á hinn bóginn væri nokkuð dýrara að dveljast á hótelum í Portúgal, en Úrval skipuleggur ferðir þangað, nánar til- greint til Algarve. Algarve er syðst í Portúgal og er um 200 kiló- metra langt strandsvæði, sem ferðamenn sækja í vaxandi mæli. í Algarve er mikil náttúrufeg- urð, að sögn Steins og veðrátta góð og kvaðst hann binda miklar vonir við þennan stað í framtíðinni. Klettótt strönd Portúgals. Útsýn: Mest dálæti á Costa del Sol Þrátt fyrir gengishreytingar að undanförnu sem gætu þýtt 70% liækkun á sólarlandaferð- um býður Ferðaskrifstofan Útsýn nú sólarlanda- ferðir sem aðeins hafa hækkað um 20 — 30%. Skýringin á þessu er sú, að Útsýn hefur nú gert samning við Flugleiðir h.f. um leigu á FV 2 1978 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.